"Ég mæti þér í myrkrinu, með munninn í augnastað"

 

 

"með fingurgómunum giska ég gætilega á það..."

 

Núna er ég í þeim sporum í þriðja skiptið í lífinu að byrja haustið á nýjum stað, í nýju landi...umkringd nýju fólki og að takast á við nýjar áskoranir. Þegar maður hendir sér inní hringiðu fólks, sem allt er á leiðinni eitthvert gerist það óhjákvæmilega að fólk "mátar" hvort annað til vinskapar. Hversu langt hleypir maður hverjum og einum, og sér maður kannski eftir því síðar að hafa hleypt röngu fólki of nærri sér?  Auðvitað mæta flestir í svona aðstæður, með hreinskiptnina í fararrúmi og jákvæðnina á kantinum en oft getur verið erfitt að greina hvar flagð leynist undir fögru skinni. Angry

 Þið gamla Keilislið munið það nú líklega, að strax fyrstu dagana parast fólk saman, svo breytist þetta eftir því sem fólk kynnist og það áttar sig á því að ef til vill á það  ekki saman með hinum eða þessum og oftar en ekki enda ólíklegustu týpur flæktar í ævilöng vinasambönd. (lovjúgæs....júnó hú jú ar InLove)

 

"í brjósti mínu bergmálið býður þér að ganga inn..."

 

Það getur verið áhætta að hleypa fólki að sér...en ávinningurinn getur líka verið svo mikill að oftast borgar það sig að taka sénsinn og þora að trúa á það góða í náunganum.

 

 Þetta lag hans Bubba, sem ég er að taka línur úr, heitir "Við tvö" og hefur það verið til hjá mér síðan ég man eftir mér....eða svona næstum því. Ég er samt einhvernvegin að heyra það fyrst núna...eða kannski er ég bara að kunna meta tilfinningarnar að baki ljóðsins í fyrsta skiptið, með hækkandi aldri Halo  Hvað stjórnar því að fólk finnst, og passar saman, og það sem meira er.....heldur áfram að vera saman?  Hvers vegna veljum við okkur það fólk í kringum okkur sem við gerum? ...Eru það bara ferómónin sem draga fólk saman..eða er það samspil fleiri þátta?    

Ljóðið "Við tvö" sáði fræinu af þessari spekúlasjón í kollinn á mér og er það mjög greinilega ástarljóð en ég bara gat ekki sleppt því úr þessari færslu þó svo að ég sé líka að tala um vináttu og verð ég líka að játa að mér finnst þetta ljóð með rómantískari ástarljóðum íslendinga...opinská einlægni og "vulnerability" út í gegn. Það má segja margt um Bubba....en fjandinn ef hann kann ekki að orða hlutina drengurinn og mig rekur í rogastans í hvert skipti sem ég heyri það hvað þessi líka illilega yang maður getur sungið angurvært... InLove

 

"Sjáðu hvernig sólin rís úr sjónum ljúfan mín"

 

Ég er svo mikill sökker fyrir svona hughrifum...þegar Bubbi syngur þessa línu (og næstum alltaf í lögum hans sem snúast um náttúruna) þá sé ég þetta ljóslifandi fyrir mér...lifi mig inní rómantík sólarupprásarinnar með öllum sínum ótrúlegu litum, sem ná að vera bæði djúpir og skærir í senn...Heart  Það eru engar sólarupprásir eins og íslenskar sólarupprásir Heart (sérstaklega ef maður situr á bryggju..með dinglandi fætur...eða einhverstaðar lengst úti í móa)

 

Í haustkuldanum sem kemur með hlýlegt myrkrið  (já...ég veit..skemmtilegar andstæður)  skulum við muna hvernig það er að líða svona...svona eins og Bubbi syngur um í þessu lagi...það er varla til betri tilfinning held ég en sú að elska einhvern svona einlægt, bæði vini og ástvini ... þó svo að viðkomandi sé stundum asni Shocking

 

Knúsið fólkið ykkar...og þakkið fyrir að það skuli þola ykkur Whistling

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Alltaf gaman að lesa þessa spekúlasjónir hjá þér og gaman hvað þú kemur þessu einstaklega vel frá þér.

sibbinn AKA N.V.G (IP-tala skráð) 14.9.2008 kl. 19:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Á vit ævintýranna....enn á ný :O)

Höfundur

Birna Eik Benediktsdóttir
Fædd og uppalin Kópavogsmær sem þrátt fyrir flakk um víða veröld hefur ræturnar kirfilega festar á Íslandinu góða. Móðir, dóttir, systir, frænka, vinkona, nemi og síðast ekki ekki síst óþrjótandi uppspretta seiglu og jákvæðni

Nýjustu myndir

  • jón hjá tannsa
  • DSC_0490[1]
  • IMG_1841
  • SDC11485
  • stóru

Nýjustu myndböndin

Jón í baði

bjútífeis að syngja fatlafól

Jón Egill tæpra 11 vikna að gera grín að mér :O)

Jón Egill 5 vikna kjaftaskur

Jón Egill eins mánaðar.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband