Blóð, sviti og tár...

 

 Þetta þrennt virðist alltaf eiga heima saman....ég vill samt bara tala um svita núna...og kannski smá blóð Devil   Ég vill vara viðkvæmar sálir, væskla og teprur við því að lesa þessa færslu...það sem ég tel saklausa hugleiðingu gæti lítt reyndum, viðkvæmum eða illa evangelískum hjörtum þótt argasti dónaskapur að hugsa um....HVAÐ ÞÁ SKRIFA UM...

 

 

Þannig er mál með vexti að ég er að byrja að taka á því í ræktinni aftur...og man oh man hvað það er frábært Grin  Ég var í dag...á milli tíma, að taka lappir (Anný og Stevie eru búin að kenna mér það Whistling ) Og þegar ég sat í einu tækinu á milli setta og var að horfa á fólkið í kringum mig...allir löðursveittir og stynjandi, byrjaði spekúlerarinn í kollinum á mér auðvitað að spá...alveg óvart Halo

 

Skrítið þetta með svita...og svitalykt af fólki.  Núna finnst manni svitalykt yfirleitt óæskileg og lítt góð, NEMA af sínum heitelskaða...!  Hvað er það?  Eigum við að kenna ferómónum um þetta líkt og svo margt annað? Mér finnst það góð hugmynd Whistling 

 

Á meðan maður vill til dæmis í ræktinni, helst halda ákveðinni fjarlægð við stóra og loðna menn...tja og konur líklega (karlar virðast samt verða blautari einhvernvegin...og loðnari....og stærri..), sem hreinlega drýpur af svitinn og kann vel að meta það þegar fólk þurkar af svitablautum tækjum og tólum þegar það hefur lokið sér af...getur maður auðveldlega tekið uppá því (eða allavega ég Blush) við ákveðnar aðstæður að renna tungunni upp eftir glansandi svitablautum hálsi...svo lengi sem það er rétti hálsinn...og ekki skemmir fyrir ef að það eru skeggbroddar á honum...Whistling Þá erum við meira að segja komin út fyrir svitalyktarumræðuna og komin í bragð...!!!...og feld...!!! EN....ókunnug svitalykt....OJJ!

 

Maður er náttúrulega fífl...það er margsannað Police

 

Ég semsagt sit og blogga um mínar undarlegu svitatengdu hugleiðingar...aaalveg að verða skárri af harðsperrum síðustu viku...þökk sé dansi helgarinnar Tounge með blæðandi sár á hnúum beggja handa sökum þess að EKKERT er dregið undan í bootcampinu og þá nuddast hanskarnir svona skemmtilega við hnúanna þegar maður lætur hnefann vaða í mann og annan Ninja...berrössuð í gallabuxunum því ég gleymdi að taka með mér hreinar nærur í ræktina og hefði heldur farið heim á handklæðinu en að fara í þær sömu aftur........hvað er þetta annað en KEPPNIS Cool


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bwahahaha...jú það er keppnis!

I wow you too

Sigga (IP-tala skráð) 17.11.2008 kl. 20:56

2 identicon

Mig langar í bootcamp... tell me more about it, hvar hvenær, hvernig, verð? ;)

Linda (IP-tala skráð) 17.11.2008 kl. 21:00

3 identicon

ha ha ha.... snillinn þinn...

eigum við eikkvað að fara að ræða hvernig fólk bragðast líka? Þú veist að fólk svitnar því sem það borðar... eða sko hluta af því.... við vitum öll hvað málið er með hvítlauk til dæmis. hvað ef að fólk borðar td. mikið af indverskum mat? er karrýbragð af því? Get ég kannski látið loverboy borða hlass af bönunum og gá hvort að það kemur bananabragð af honum? Mikið væri mergjað ef að maður færi að sleikja gaurinn og hann myndii smakkast eins og vanilluís.... namm!

Dóra tossi (IP-tala skráð) 18.11.2008 kl. 00:48

4 identicon

Dóra þú ert snilli,,, ég las,, látið loverboy borða hlass af börnum,,,bwahahah,, ég er ekki alveg heil í dag :)

Dagný (IP-tala skráð) 19.11.2008 kl. 00:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Á vit ævintýranna....enn á ný :O)

Höfundur

Birna Eik Benediktsdóttir
Fædd og uppalin Kópavogsmær sem þrátt fyrir flakk um víða veröld hefur ræturnar kirfilega festar á Íslandinu góða. Móðir, dóttir, systir, frænka, vinkona, nemi og síðast ekki ekki síst óþrjótandi uppspretta seiglu og jákvæðni

Nýjustu myndir

  • jón hjá tannsa
  • DSC_0490[1]
  • IMG_1841
  • SDC11485
  • stóru

Nýjustu myndböndin

Jón í baði

bjútífeis að syngja fatlafól

Jón Egill tæpra 11 vikna að gera grín að mér :O)

Jón Egill 5 vikna kjaftaskur

Jón Egill eins mánaðar.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband