Minn mánuður strax komin :O)

 

Ágúst er bara komin.....von á guttmundi litla eftir 12 daga og ég ekki byrjuð að þvo barnafötin, meira má nú vera af rólegheitunum sko Halo

 

Sumarönninni minni fer aaaaalveg að ljúka, ég var að klára ritgerð áðan, og svo bara próf eftir og ég er að vona að ég nái að halda Litla Jóni innvortis fram yfir það Cool

 Þessi...

Aðalpósan...tungan út

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

...er farin með pabba sínum og Marienne, hans konu, í sumarbústað á Norður-Jótlandi svo að núna verður bara stórt fólk á heimilinu í heila viku! Litli gutti var ofsa glaður að hitta pabba gamla aftur eftir nærri 8 vikna aðskilnað Smile  Stóru guttarnir fara ekkert þetta sumarið, verða bara hérna heima á sinni sveit að passa óléttu mömmuna sína InLove

 

Drengirnir hafa verið að halda frænda sínum félagsskap á meðan ég hef grafið mig ofaní gríska klassík og síðari heimstyrjöldina og er frændinn oft þreyttur kvöldin LoL

 

Einn búin að koma sér fyrir fyrir framan sjónvarpið....:O)Krútti fékk að smakka frændajógúrt....svo hann færi ekki óétinn í ferðalag með pabba og Marianne :O)

Þarna sofnaði minnstinn, búin að koma sér svo vel fyrir fyrir framan sjónvarpið...of sætar tær InLove

 

Sætu pjakkar hjá klifrutrénu fyrir utan hjá okkur  

Sætu bræður að leika fyrir framan húsið okkar, grallaraspóafélagið Cool

 

Núna er semsagt bara málið að setja í háa drifið og fara að þvo þessi krílaföt öll saman...ég er loksins búin að fara í gegnum fataskápa hinna þriggja og setja allt í viðeigandi kassa sem ekki passar lengur, kassi 1-4: of lítið á Benna-bíður Baldurs; Kassar 5 og uppúr: of lítið á Baldur-bíður litla jóns.....svo fara að bætast við kassar sem eru bara með "of lítið á alla" fötum  Grin

 

Svo er aðaltakmarkið næstu vikuna að dekra við stóru bræðurna tvo algerlega fram úr hófi  á meðan ofurhetjuþykknið er fjarverandi og litli maðurinn enn í bumbunni Joyful


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Á vit ævintýranna....enn á ný :O)

Höfundur

Birna Eik Benediktsdóttir
Fædd og uppalin Kópavogsmær sem þrátt fyrir flakk um víða veröld hefur ræturnar kirfilega festar á Íslandinu góða. Móðir, dóttir, systir, frænka, vinkona, nemi og síðast ekki ekki síst óþrjótandi uppspretta seiglu og jákvæðni

Nýjustu myndir

  • jón hjá tannsa
  • DSC_0490[1]
  • IMG_1841
  • SDC11485
  • stóru

Nýjustu myndböndin

Jón í baði

bjútífeis að syngja fatlafól

Jón Egill tæpra 11 vikna að gera grín að mér :O)

Jón Egill 5 vikna kjaftaskur

Jón Egill eins mánaðar.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 66
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband