Að gráta orðin hlut.

 

Er það málið...á maður að setjast niður og skæla eins og vindurinn yfir orðnum hlut, sögðum orðum eða óafturkræfum ákvörðunum?

 

Einhverntíma sagði vitur maður mér, að ástæða þess að konur virtust oft hafa meira tilfinningaþrek en karlar á álgastímum sé meðal annars það að þær leyfa sér að bugast og gráta..Crying..í smástund..en raka sér svo saman og takast á við málin. Cool Á meðan körlum hefur virst það tamara að loka inni vonbrigði, særindi og sársauka  Bandit og ætla áfram á naglanum...þangað til hann svo brotnar og þá eru flest björg bönnuð.  Þeir nota kannski sumir rökin "allar ákvarðanir eru réttar á þeim tíma sem þær eru teknar"...og loka þá bara á mistök og særindi liðinna tíma í stað þess að endurskoða og afgreiða þau bara Shocking

 

Ég hef tekið eftir því með mig...að ég er mikil tilfinningavera.  Ég hlæ dátt LoL, ég elska heitt InLove, ég verð djúpt særð Undecided og ég á erfitt með að leyna viðbrögðum mínum eða fara í felur með líðan mínaWizard. Þegar ég svo reiðist þá reiðist ég innilega og þá sýður svoleiðis á mér að þau vel völdu orð sem kunna að falla...gætu marið Golíat.Ninja ....sem betur fer reiðist ég afar sjaldan Halo...og þá ekki nema mér finnist mér gróflega misboðið eða ég illa svikin.

 

En ég á góða vinkonu sem ég var að  ræða ýmis mál lífsins við hérna um daginn og þá rann það upp fyrir mér (svona sér maður bara þegar aðrir benda manni á það) að ég er þessi "snýta mér í ermina, og halda svo áfram" týpa.  Nenni ekki að velta mér uppúr leiðindum eða draga erfið og leiðinleg mál á langinn....vil frekar vera hreinskilin, afgreiða hlutina og ganga hreint til verks við það....en að jórtra á sömu atriðunum aftur og aftur og staðna þar með í einhverri vesöld. Þetta vita mínir nánustu og nýta sér óspart þegar þá vantar spark í rassinn....EN...

...kannski er ég þá of köld stundum... afgreiði hlutina kannski of fljótt...kannski ýti ég þá of mikið á aðra að afgreiða mál sem ég er með puttana í...og nenni kannski takmarkað að hlusta á sjálfsvorkunnavæl annarra til lengri tíma... Whistling  Og þá kemur það fólki kannski á óvart...að ég kunni stundum að þurfa að nöldra yfir hlutunum líka...mismunandi lengi Blush...því ég er vön að ganga bara í málin head on.

 

Ætli það sé öllum ekki hollt að gráta af og til...hvort sem er af reiði, vanmætti, hamingju eða sorg. Svo lengi sem fólk finnur jafnvægið...hin gullna meðalveg.  Það gerir engum gott að leggjast í sjálfsvorkun og volæði, á meðan sá hin sami getur sem best sjálfur staðið upp og tekist á við aðstæður sínar....en það gerir heldur engum gott að byrgja allt inni og ritskoða sjálfan sig hverja vakandi stund við allt og alla í kringum sig og spila sig sáttann

 

Held ég ætli að reyna "skælum í öruggri höfn, en afgreiðum svo málin" aðferðina í óákveðin tíma, héðan í frá.  (þið þarna örugga höfn...þið vitið hver þið eruð...so prepare!)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

:*

KOmdu svo til Köben!

Monika (IP-tala skráð) 17.9.2008 kl. 20:45

2 identicon

Þú ert barasta frábær, gaman að fylgjast með blogginu hjá þér, orðin dagleg rútína að tjékka á Danmerkurförum. Kossar og knús

Eyrún (IP-tala skráð) 18.9.2008 kl. 14:55

3 identicon

Eigi þýðir að gráta Björn bónda, heldur safna liði og höggva mann og annann!!!!!

Ella frænka dk (IP-tala skráð) 18.9.2008 kl. 19:30

4 identicon

Knús og koss

 Ég er alveg að fara að bíða og bíða eftir því að þú komir í heimsókn til mín :)

Miss ya bunch

Dagný (IP-tala skráð) 18.9.2008 kl. 22:09

5 identicon

Það er vissulega fátt betra en að grenja í góðum félagsskap, mannstu þegar ég datt í sjóinn á Horni og þú ákvaðst að skella þér bara útí líka, þá gátum við báðar vælt Það er gott að standa saman í erfiðleikunum

Helga R (IP-tala skráð) 18.9.2008 kl. 22:38

6 Smámynd: Birna Eik Benediktsdóttir

Já nákvæmlega Helga...talandi um samstöðu!   Maður á að sjálfsögðu að umkringja sig fólki sem að hendir sér útí með manni þegar maður dettur

Birna Eik Benediktsdóttir, 19.9.2008 kl. 08:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Á vit ævintýranna....enn á ný :O)

Höfundur

Birna Eik Benediktsdóttir
Fædd og uppalin Kópavogsmær sem þrátt fyrir flakk um víða veröld hefur ræturnar kirfilega festar á Íslandinu góða. Móðir, dóttir, systir, frænka, vinkona, nemi og síðast ekki ekki síst óþrjótandi uppspretta seiglu og jákvæðni

Nýjustu myndir

  • jón hjá tannsa
  • DSC_0490[1]
  • IMG_1841
  • SDC11485
  • stóru

Nýjustu myndböndin

Jón í baði

bjútífeis að syngja fatlafól

Jón Egill tæpra 11 vikna að gera grín að mér :O)

Jón Egill 5 vikna kjaftaskur

Jón Egill eins mánaðar.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband