Æ fjandans!....smá vesen...það síðasta..ég lofa :O)

 

Ég er svo undarlega spéhrædd einhvernvegin að mér finnst vont að blogga um litla Jón eftir að Sigga vinkona sagði mér að Gimsi, væntanlegur barnsfaðir minn, lesi þessa blogggjörninga mína til þess að fylgjast með mér...þá fer ég að verða meðvituð um það sem ég skrifa á annan hátt og ég nenni því ekki, mér hentar betur að sleppa ritskoðun á sjálfa mig og láta bara flæða á "pappírinn" það sem ég hugsa.

 

Og svo smá óviðeigandi persónuleg orðsending....sem ég vonast til þess að endurtaka aldrei aftur Blush

Það þarf engar njósnir kallinn minn Cool, þú ert velkomin að taka allann þann þátt sem þú vilt eins og hefur legið ljóst fyrir frá því áður en ég fór fyrst í snemmsónar...jafnvel áður en ég ákvað að halda krílinu Wink   Ég á heima á sama stað...er með sama símanúmer...við erum á msn, facebook og myspace svo ég tali nú ekki um e-mail addressurnar allar saman. Við búum í sama naflanum, erum í sama skóla og eigum sömu vinina svo það ætti ekki að vera erfiðleikum bundið bara að slá á þráðin og fá fréttir og fylgjast með eða taka þátt ef það er það sem þú vilt gera, fyrir opnum tjöldum (eða að minnsta kosti svo ég viti af því hehehe)  Joyful En allt leynimakk og undirferli fer agalega í mig svo ég meika ekki einhver svona "þykjustu-kommentaðu bara á það, beint úr áramótaskaupinu-undirferlis" samskipti.  Police

 

Vona svo bara að fólk fyrirgefi mér óviðeigandlegheitin (jú það er víst orð) svona einu sinni ef ég lofa að gera þetta aldrei aftur Halo

 

 

Svo vill ég bara benda ykkur á að lesa frekar færsluna sem er hérna beint fyrir neðan....hún er bæði mikið skemmtilegri .....og svo var ég að monta mig þar Cool

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ég varð bara að kommenta á þetta, blogggjörningur er frábært orð!

Kristín (IP-tala skráð) 21.1.2009 kl. 21:26

2 Smámynd: Birna Eik Benediktsdóttir

haha   já...það er ekki oft sem maður fær að njóta þess unaðar að sjá þrjú g standa saman

Birna Eik Benediktsdóttir, 21.1.2009 kl. 22:15

3 identicon

nei, hekkklippur er líka gott orð, vegggat og hasssali líka, tala nú ekki um Heyáaey (eyjan sem er úti í Heyám hlýtur að heita þetta, hvar eyjan og árnar eru eða hvort þau eru yfirhöfuð einhversstaðar er annað mál...)

kristín (IP-tala skráð) 21.1.2009 kl. 23:10

4 Smámynd: Birna Eik Benediktsdóttir

Hahaha   þú ert snillingur....ég var bara með rassskella... 

Birna Eik Benediktsdóttir, 21.1.2009 kl. 23:12

5 Smámynd: Róbert Jóhannsson

Þátttaka er líka klassík, var með eitthvað annað, skrifa það þegar ég man

Róbert Jóhannsson, 21.1.2009 kl. 23:38

6 identicon

Elska svona orð.... Vaðlaheiðarvegavinnuverkfæraskúr... he he.... vildi bara bæta þessu við .... luvya

Pipardóra... (IP-tala skráð) 21.1.2009 kl. 23:39

7 identicon

Hæ veistu....að það hefði verið bara betra að senda honum þetta á meili...Ella

Ella frænka (IP-tala skráð) 22.1.2009 kl. 20:17

8 Smámynd: Birna Eik Benediktsdóttir

Æ það er líklega rétt hjá þér Ella....en ég er orðin svo ringluð í öllu þessu læðupúkastandi að ég bara var ekki að ná að meta hvort ég væri þá líka að læðupúkast hahaha    Svona getur maður orðið ringlaður þegar maður er ekki á sínu "turfi"     

Birna Eik Benediktsdóttir, 22.1.2009 kl. 20:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Á vit ævintýranna....enn á ný :O)

Höfundur

Birna Eik Benediktsdóttir
Fædd og uppalin Kópavogsmær sem þrátt fyrir flakk um víða veröld hefur ræturnar kirfilega festar á Íslandinu góða. Móðir, dóttir, systir, frænka, vinkona, nemi og síðast ekki ekki síst óþrjótandi uppspretta seiglu og jákvæðni

Nýjustu myndir

  • jón hjá tannsa
  • DSC_0490[1]
  • IMG_1841
  • SDC11485
  • stóru

Nýjustu myndböndin

Jón í baði

bjútífeis að syngja fatlafól

Jón Egill tæpra 11 vikna að gera grín að mér :O)

Jón Egill 5 vikna kjaftaskur

Jón Egill eins mánaðar.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband