Örugg netnotkun...

 

 Ég átti spjall við Ellu eðalfrænku mína í Tarmi útfrá blogginu hennar.  Þá kom upp að mágkona hennar hafði nýverið verið á fyrirlestri um örugga netnotkun og lét hún vel af.

Komið var inná blogg og örugga bloggnotkun líka og kom þar upp punktur að mér skilst...(ekki nema í gegnum 3 aðila Tounge )  friðhelgi einkalífsins....og þá ekki míns einkalífs, heldur barna minna Cool

 

Þó svo að ég sé opin og ófeimin og sjái ekkert að því að deila hugrenningum mínum með vinum og vandamönnum, og hinum forvitnu sem falla ekki í þann hóp LoL Þá getur verið að mér sem foreldri beri að verja og tryggja einkalíf sona minna. Ég skrifa um ýmislegt sem á daga okkar drífur og birti af þeim myndir en hef gleymt að hugsa um það að Eyþór er að verða 8 ára, vinir hans kunna að lesa og nota internetið alveg eins og hann...ókunnugir ættu ekki að geta sett sig inní dagleg málefni barnanna minna áður en þau hafa aldur til þess að ákvarða fyrir sjálf sig hversu miklu af sínu einkalífi þau vilja deila með umheiminum...

 

Svo ég ætla að prófa þetta....ef að notendatalan hrynur niður þá er nokkuð ljóst að aðilar sem ef til vill ættu bara að vera að lesa um eitthvað annað fólk hafa verið að villast inn á mitt blogg og þá er þetta að virka sem skyldi...en við sjáum til Grin  Þið sem eruð komin með lykilorðið getið óhrædd látið það ganga til "okkar" fólks, enda ekki um nein ríkisleyndarmál að ræða á þessari síðu. Bara ókunnra og óviðkomandi síu Cool

 

Ég hef aldrei áður séð ástæðu fyrir því að læsa blogginu mínu...en þetta fannst mér góður punktur sem ég hafði algerlega gleymt að íhuga Blush


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

já mér finnst það líka um að gera..þá stjórnar mar líka soldið flæðinu á bloggin sín... getur sett myndir inn án þess að hugsa að þær geti verið mistúlkaðar og notaðar af ógeðshugum um heim allan .....

anný og arnhildur (IP-tala skráð) 24.2.2009 kl. 21:32

2 identicon

Gott mál ;) 

Monika (IP-tala skráð) 25.2.2009 kl. 19:34

3 identicon

Jebbs alltaf gott að hafa varan á......annars bara kvitt kvitt þar sem að ég var búin að lofa því :):)

Jóna (IP-tala skráð) 25.2.2009 kl. 22:09

4 identicon

Fínt hjá þér bara. Full ástæða til að passa upp á þetta

Helga Rún (IP-tala skráð) 10.3.2009 kl. 19:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Á vit ævintýranna....enn á ný :O)

Höfundur

Birna Eik Benediktsdóttir
Fædd og uppalin Kópavogsmær sem þrátt fyrir flakk um víða veröld hefur ræturnar kirfilega festar á Íslandinu góða. Móðir, dóttir, systir, frænka, vinkona, nemi og síðast ekki ekki síst óþrjótandi uppspretta seiglu og jákvæðni

Nýjustu myndir

  • jón hjá tannsa
  • DSC_0490[1]
  • IMG_1841
  • SDC11485
  • stóru

Nýjustu myndböndin

Jón í baði

bjútífeis að syngja fatlafól

Jón Egill tæpra 11 vikna að gera grín að mér :O)

Jón Egill 5 vikna kjaftaskur

Jón Egill eins mánaðar.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband