Hin alræmda Nes-sveifla

 

Dagurinn í dag byrjar tíðindalítill...ég fer að sjálfsögðu með alla á sína staði eins og venjulega og kem heim og fæ mér morgunmat, þríf svolítið hér og þar og vesenast í þvotti.  Minnist svo orða ljósunnar uppi á deild og legg mig bara aðeins....og vakna ekki fyrr en klukkan er að detta í 14! Whistling

 

Þá hringir í mig Elín nokkur Guðnadóttir, við erum systradætur og býr hún á Jótlandi. Þau skötuhjú voru þeirrar gæfu aðnjótandi að hafa sloppið heiman að frá sér með einungis einn afkomanda af sex og ætluðu þau að koma við hjá mér og kíkja á herlegheitin.

Það er skemmst að segja frá því að Ella frænka breyttist í Ellu ömmu á núll einni og tók hina víðfrægu nes-sveiflu á dæmið.  ALLT sem mig hefur langað að gera en ég ekki gert....gerði Ella og við Hjalti í rauninni bara hlýddum nema hvað hann massaði þráðlausa netið og smá skrúfgræj og leiðsluvesen án fyrirmæla  (þetta kalladótarí hehe, eitthvað sem hefði tekið mig nokkra daga og góðan skammt af geðheilsunni......tja fyrir utan þetta skrúfgræj...ég hefði aldrei gert það...það var bara fast...lofa Blush).....en þess má geta til gamans að Ella frænka var að vísu ÖGN gæfari en Amma Ella átti til að vera Whistling

Svo núna er búið að færa eina koju, einn skáp, eitt hjónarúm, einn sófa, eina hillu, einn skenk, einn örbylgjuofn, ALLA geymslukassana, ALLA kassana sem enn eru með flutningsdóti í, FULLT af leikföngum já og bleyjurnar LoL  OG borðið sem ég ar búin að gleyma hvernig lítur út er autt!

 

 

Þetta var eiginlega svolítið fyndið þegar tekið er mið af mæðrum okkar frænkna. Mamma mín er ári yngri en mamma Ellu og hafa þær alltaf verið miklar vinkonur þrátt fyrir að vera afar ólíkar.  Helga móða fékk vænan skammt af sveiflunni góðu í vöggugjöf og hefur drifkraft á við fjóra á meðan mamma mín er meiri sorterari og dútlari í eðli sínu Whistling

Og þarna vorum við, dætur þessara ágætu systra, og Ella færði og massaði og sá fyrir sér hitt og þetta....og ég sorteraði dótaríið í kring flissss Tounge     Þó er þetta ekki endilega normið milli okkar frænkna....við eigum báðar dágóðan skammt af móðursystrum okkar í okkur....sem betur fer brýst þetta bara ekki allt út í einu  HAHA Cool

 

En mikil ósköp sem maður væri fátækur væri maður frænkulaus Heart  

 

 

En ég er semsagt DAUÐ eftir allt græjið í dag.....og ætla í dvala.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eru allir ofvirkir í þessari fjölskyldu?

Steinunn (IP-tala skráð) 24.5.2009 kl. 22:40

2 Smámynd: Birna Eik Benediktsdóttir

Það er allavega mikið um dugmikið kvenfólk hehe

Birna Eik Benediktsdóttir, 24.5.2009 kl. 22:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Á vit ævintýranna....enn á ný :O)

Höfundur

Birna Eik Benediktsdóttir
Fædd og uppalin Kópavogsmær sem þrátt fyrir flakk um víða veröld hefur ræturnar kirfilega festar á Íslandinu góða. Móðir, dóttir, systir, frænka, vinkona, nemi og síðast ekki ekki síst óþrjótandi uppspretta seiglu og jákvæðni

Nýjustu myndir

  • jón hjá tannsa
  • DSC_0490[1]
  • IMG_1841
  • SDC11485
  • stóru

Nýjustu myndböndin

Jón í baði

bjútífeis að syngja fatlafól

Jón Egill tæpra 11 vikna að gera grín að mér :O)

Jón Egill 5 vikna kjaftaskur

Jón Egill eins mánaðar.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 66
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband