Ég var að horfa á formúluna....FORMÚLU!!!

Svo bregðast krosstré sem önnur...Shocking   Ég varð öll spennt og allt.....en okkar gæji (sæti gæjinn Whistling)  kom sér í rétt sæti á síðustu sekúntunum svo að hann varð heimsmeistari...fyrstur litaðra manna í þessari göfugu íþrótt....hrós á hann fyrir að vera brautryðjandi.

 

 

Annars er ég voða mikið að spá þessa dagana....í hinu og þessu....Woundering Oft virðist veður skipast fljótt í lofti, bæði í náttúrunni og í lífinu og oftar en ekki virðist maður streitast á móti þessum veðrabreytingum eins og mesti kjáni Blush  Er til dæmis í sumarfötunum langt fram á haust og tekur ekki fram gúmmístígvélin fyrr en maður er BÚIN að verða blautur í fæturna allavega einusinni Shocking Aðstæður í lífinu breytast en maður heldur oft sem fastast  í hið gamalkunna, þrátt fyrir að það sé kannski ekki alltaf það besta. Wizard

Væri ekki gáfulegra að láta bara berast með veðrabreytingunum í skipulögðu algleymi Joyful...taka því sem kemur opnum örmum...slaka á, treysta og njóta þess meðan varir InLove  Anda létt þegar sumarið blæs vindum þýðum...en eiga samt alltaf eina þykka og áreiðanlega úlpu uppí skáp til þess að hjúpa sig þegar byrjar að næða Cool

Kúra sig svo hjá sínum nánustu og dúða sig vel í úlpuna góðu svo maður standi af sér veturinn og blómstri rétt eins og blómin þegar byrjar að vora í lífinu á ný Grin

 

Ég ætla að reyna að gera það Tounge....bera kennsl á allt það frábæra sem er í gangi...frábært fólk í kringum mig, frábær börn í kringum mig, frábær borg sem ég bý í og frábært nám sem ég valdi mér (fer að hljóma eins og jólasveinninn á gleðipillum, í Tivoli, að fá að....) og dúða mig og kúra fram á vor...það vorar alltaf að lokum...sama hversu langur eða harður veturinn er.

 

Síminn minn hefur ekki enn gefið sig fram og ég er ekki enn búin að redda snúru á myndavélina svo að það mun enn leika svolítið á huldu fyrir ykkur hinum hvað við erum að bardúsa dag frá degi....en þegar ég verð stór...ÞÁ ætla ég að redda þessu Whistling  ...og jújú Anný mín...þarna er vitnað í Friends bara fyrir þig...og kannski Stevie Cool og þarna eru svo RUGL miklar myndlíkingar og rósagöng í gangi að ég er ekki einusinni alveg viss hvernig ég les þetta...þetta er svokallað brainstorming og "paper"....svo it´s open to interpretationLoL


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Stundum er líka gott að dúða sig undir sæng, safna kröftum, koma síðan undan vetri á harðahlaupum eins og belja hleypt út að vori. mmmúúúúú.

Knúz Dagmar Íris

Dagmar Íris (IP-tala skráð) 2.11.2008 kl. 20:15

2 identicon

það er bara þannig!!

aoga (IP-tala skráð) 2.11.2008 kl. 21:20

3 identicon

Mæli með að klæðast kuldabuxum frá október til maí!!

elín (IP-tala skráð) 3.11.2008 kl. 21:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Á vit ævintýranna....enn á ný :O)

Höfundur

Birna Eik Benediktsdóttir
Fædd og uppalin Kópavogsmær sem þrátt fyrir flakk um víða veröld hefur ræturnar kirfilega festar á Íslandinu góða. Móðir, dóttir, systir, frænka, vinkona, nemi og síðast ekki ekki síst óþrjótandi uppspretta seiglu og jákvæðni

Nýjustu myndir

  • jón hjá tannsa
  • DSC_0490[1]
  • IMG_1841
  • SDC11485
  • stóru

Nýjustu myndböndin

Jón í baði

bjútífeis að syngja fatlafól

Jón Egill tæpra 11 vikna að gera grín að mér :O)

Jón Egill 5 vikna kjaftaskur

Jón Egill eins mánaðar.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 2891

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband