Ég er að fara út/heim......hvort er það?

 

Þegar maður er búin að búa lengi í útlöndum er þetta eilífur ruglingur....þegar ég kem heim....svo er ég á Íslandi og tala um að fara heim til Danmerkur....Shocking

 

Ég er sem sagt að pakka ...lofa...þetta er bara smá pása hehe...og er að leggja upp í langferð. Fyrst rúmlega 4 tíma lestarferð til Köben, og svo 3 tíma flug til  Íslands þeð tilheyrandi flugvallaríveru. Á klakanum er fyrsta stopp heiðin góða og því næst fer ég norður fyrir heiðar.

 

Ég hlakka svo til að hitta fólkið mitt að ég er með stanslausan spenning í maganum!  Eigum við að ræða það eitthvað....Anný og Elín..og Sibbi...og Robbi...og Dóran...og Dúnan....og Helga...brósi og allar frænkurnar...og frændurnir...það þarf ekkert að minnast á gamla settið eða stubbana mína tvo sem eru að skemmta þeim Heart  

 

Við vorum að fá þær fréttir að Jes, pabbi Baldurs, er að fara til Kína í heilt ár!  Hann fer 1. mars því að Novo Nordica, sem hann er að vinna fyrir, er að byggja þar einhverja verksmiðju sem hann á að .....ráðgjafast eitthvað í sambandi við.....ok ég er ekki með það ALVEG á tæru hvert hans hlutverk mun verða en hann er allavega mjög spenntur Cool  Það er eiginlega verst að Baldur skuli ekki vera eldri því ef hann væri orðin allavega 5 ára væri það náttúrulega ævintýraleg upplifun fyrir hann að fá fara og vera hjá pabba sínum í Kína í svolítin tíma.

  En sem betur fer líkar Jes vel í vinnunni sinni svo hann mun vera þar áfram og útlit er fyrir mikið fleiri svona langtímaverkefni hjá honum í framtíðinni hingað og þangað um veröldina svo að við erum nokkuð viss um að þegar þar að kemur fái Baldur að njóta góðs af því.  InLove

Nú er gott að við höfum æfingu í því að vera foreldrar í sitthvoru landinu, þar sem samskipti þeirra feðga munu að mestu vera í gegnum webcam á meðan á þessari útilegu föðurins stendur. Smile

 

Jæja...ekki dugar að sitja að snakki, ég í að pakka og drífa mig af stað Tounge


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Á vit ævintýranna....enn á ný :O)

Höfundur

Birna Eik Benediktsdóttir
Fædd og uppalin Kópavogsmær sem þrátt fyrir flakk um víða veröld hefur ræturnar kirfilega festar á Íslandinu góða. Móðir, dóttir, systir, frænka, vinkona, nemi og síðast ekki ekki síst óþrjótandi uppspretta seiglu og jákvæðni

Nýjustu myndir

  • jón hjá tannsa
  • DSC_0490[1]
  • IMG_1841
  • SDC11485
  • stóru

Nýjustu myndböndin

Jón í baði

bjútífeis að syngja fatlafól

Jón Egill tæpra 11 vikna að gera grín að mér :O)

Jón Egill 5 vikna kjaftaskur

Jón Egill eins mánaðar.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 19
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 2889

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband