19.10.2008 | 14:03
Tækl...
Tækl...þetta er hálfgert orðskrípi...tæklun...að tækla. Maður getur tæklað í fótbolta...það fengu ýmsir að reyna á Keilisleikunum góðu Og svo er spurning hvort að maður tækli lífið...eða hvort maður láti lífið tækla sig Spáum aðeins í það...
Proactive....eða reactive...hvort vill maður vera? Er betra að bregðast við aðstæðum sem að aðrir búa manni...eða á maður að búa til sínar eigin aðstæður? Ég hef alltaf hallast að því að betra sé að taka ábyrgð á eigin aðstæðum sjálfur...og gera það besta úr þeim sem mögulegt er, að eigin frumkvæði og eftir eigin höfði...en uppá síðkastið hefur mér heldur brugðist til þess bogalistinn Þá er eins gott að snýta sér í ermina, hysja uppum sig ræflana, ganga í málin og endurraða svolítið í lífinu. Massa smá jólahreingerningu á þetta helvíti
Ekki öfunda ég þann sem velur sér það hlutskipti að velkjast um sem fórnarlamb í eigin lífi...eilífur aðaleikari í erfiðleikum sjálfskapaðrar tilveru... Að upplifa samferðafólk sitt sem "hina" og vera eilíft á móti og eilíft að standa vörð um sjálfan sig hlýtur að vera persónuþroskaheftandi og það hlýtur að kyrrsetja fólk í viðjum eigin óhamingju, öryggisleysis og einmannaleika... Verst er að fólk áttar sig sjaldnast á því að það er að velja sér þetta hlutskipti sjálft....því það er of upptekið af því að "lenda" síendurtekið í hringiðu lífsins sem saklaus fórnarlömb örlaganna - pant ekki!
Djúpar pælingar....
Helst viðhorf fólks til erfiðleika ekki þétt í hendur við viðhorf þeirra til lífsins? Ef að lífið er eins og hindrunarhlaup....verðum við þá ekki að læra njóta spottans á milli hindrananna til þess að hafa orku í stökkið þegar að hindrun kemur? Og ef að við drífum ekki yfir...og dettum...þá verðum við líklega að geta haft slíka trú á góða spottanum sem liggur handan hinnar föllnu hindrunnar að við finnum orku til þess að klöngrast á fætur og skreiðast yfir....til þess að geta notið þess er bíður hinum megin við
Hvað um þá sem leggja ekki í hindranirnar...hlaupa bara fram og til baka á sama spottanum milli tveggja hindranna..því þeir þora ekki að reyna. Kannski vekur hindrunin ótta...kannski er það góði spottinn hinum megin við sem hræðir meira því að oft virðist fólk eiga auðveldara með að velkjast í vel þekktu volæði...en að brjótast út úr því yfir í óþekkta hamingju....HVAÐ EF..það er svo bara ekki hamingja hinumegin? HVAÐ EF...volæðið er það sama beggja vegna?
Ef maður forðast hindranir vegna "HVAÐ EF"..... er líklega tími komin að líta í eigin barm og spyrja sjálfan sig hvort að eigin viðhorf þyldu ekki smá hreingerningu því það getur ekki verið hollt fyrir sálina að skokka alltaf sama spottann, japla alltaf á sama bitanum og neita sjálfum sér um þann þroska að yfirstíga hindranir standandi með sjálfum sér í stað halloka....
Bara....bring ot on and let´s mass it
Um bloggið
Á vit ævintýranna....enn á ný :O)
Eldri færslur
Tenglar
Mínir tenglar
- Andlitsbók
- Aurinn
- Fyrsti útskriftarhópur Keilis á Facebook
- Hjallarnir
- íslenski hesturinn í DK
- Íslenskir hryðjuverkamenn
- Keilisfrumkvöðlarnir
- Peace one Day - friðardagurinn 21. sept.
- The girl effect
Bloggarar
- Begga
- Dagmar Sønder
- Dagný
- Dóran
- Edda Kósk
- Elín Árna
- Ella í rassi
- Eybjór
- Gimpið
- GoggaLára
- Guðný Harpa
- Helga Rún
- Korkusíðan
- Kristín fænka
- Linda Sønder
- Lúvísan
- Ómar og Árdís
- Robbinn
- Sigga sønder
- Úlli
Myndasíður
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
vá....
held að Birna
hvað gerðirðu við alvöru Birnu?
Dóra að slóra (IP-tala skráð) 19.10.2008 kl. 16:30
dam.... datt hluti úr kommentinu....
átti að vera þarna: held að Birna sé andsetin.....
nú er etta bara misheppnað comment
Dóra að slóra (IP-tala skráð) 19.10.2008 kl. 16:32
hahaha elska þig samt :O) Það er fátt meira í anda hinnar miklu DÓRU.....og smá misheppnað komment
Birna Eik Benediktsdóttir, 19.10.2008 kl. 17:19
vá hvað þetta er flott pæling hjá þér, þú ert alger snilli!
Kristín í vonda veðrinu á Íslandi (IP-tala skráð) 23.10.2008 kl. 16:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.