12.11.2008 | 23:02
Kreppukvæði ;O)
Þótt veraldar gengið sé valt
Og úti andskoti kalt
Með góðri kellingu
Í réttri stellingu
Bjargast yfirleitt allt
Þessa fallegu hugvekju var hún Hlíf kennarastelpa með á statusnum sínum á facebook í dag...Hlíf er auðvitað margrómaður snillingur með keppnishúmor og sannar hún það í enn eitt skiptið með þessu
Annars er lífið í sönder sárt núna...ég fór nefninlega á mínu fyrstu æfingu í dag ...og þrátt fyrir að útsýni í gymminu sé EKKI af verri endanum er erfitt að njóta þess með svitann drjúpandi ofan í augu En þetta var geðveikt. Fór í tíma sem heitir því lítt aðlaðandi nafni "boot camp" og stóð hann ALGERLEGA undir nafni...þjálfarinn, með axlir á stærð við mjaðmaliðina á mér....húmorin í framsætinu og naglan atturí, keyrði okkur svo út að ég labbaði út úr tímanum í hálfgerðri endorfín vímu Ég er strax farin að hlakka til harðsperranna sem ég mun fá að njóta í fyrramálið...er maður ruglaður... Fá að finna loksins fyrir kroppnum á sér...vöðvunum og orkunni...ohh..þið þarna líkamsræktarfrík þekkið þessa tilfinningu Mest ánægð var ég með hvað þetta boot camp dæmi er mikið í ætt við bardagaíþróttir....sakna þess svo mjög að fá að tuska stóra stráka almennilega til
Benedikt gengur rosalega vel í skólanum...hann var að fá sína fyrstu umsögn og einkunaspjald og er hann framúrskarandi í lestri og stærðfræði og fær A í öllu hinu.....montmont
Baldur neitar ennþá staðfastlega að tala íslensku eða dönsku...en það er kannski ekki nema von þar sem að barnið er með 3 tungumál í gangi að staðaldri og skilur þau öll...en hann er voða sætur að tala sitt "abesprog" eins og krakkarnir í leikskólanum segja hahaha. Svo neitar hann líka staðfastlega að pissa í kopp eða klósett...bara bleyju takk og ekkert múður kona! Og mér er alveg sama....hann má alveg pissa í bleyju áfram
Eyþór blómstrar í sínu Tae Kwon Do...er alveg að freistast til þess að finna fyrir hann fimleika líka þar sem hann er svo kattliðugur og klár á kroppinn. Hann langar líka að byrja í fimleikum aftur eins og í "gamla daga" hehehe hvað er "gamla daga" þegar maður er 7 ára
Ég er annars bara farin að hlakka GÍFURLEGA til þess að koma heim og knúsa allar druslurnar mínar á Vallarheiðinni...kvenkyns sem karlkyns...og að sjálfsögðu kreista kópavogsliðið mitt duglega líka og svo Eyjarfjarðarfólkið
óver end át frá bootcamp múttunni
Um bloggið
Á vit ævintýranna....enn á ný :O)
Eldri færslur
Tenglar
Mínir tenglar
- Andlitsbók
- Aurinn
- Fyrsti útskriftarhópur Keilis á Facebook
- Hjallarnir
- íslenski hesturinn í DK
- Íslenskir hryðjuverkamenn
- Keilisfrumkvöðlarnir
- Peace one Day - friðardagurinn 21. sept.
- The girl effect
Bloggarar
- Begga
- Dagmar Sønder
- Dagný
- Dóran
- Edda Kósk
- Elín Árna
- Ella í rassi
- Eybjór
- Gimpið
- GoggaLára
- Guðný Harpa
- Helga Rún
- Korkusíðan
- Kristín fænka
- Linda Sønder
- Lúvísan
- Ómar og Árdís
- Robbinn
- Sigga sønder
- Úlli
Myndasíður
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
vá, hvað ég væri til í að hitta ykkur eitt augnablik yfir jólin... ohh!
til hamingju með árangurinn hjá Benna - hann sver sig greinilega í ættina
knús og sakn á ykkur öll, Kristín frænka og hundastrákarnir
Kristín (IP-tala skráð) 12.11.2008 kl. 23:24
Kvitt frá einni vallarheiðar druslunni.
sibbinn (IP-tala skráð) 13.11.2008 kl. 14:33
ohhh já shit hvað okkur hlakkar mihhikiiið til að knúsast með ykkur...
og já..shit hvað ég skil þig.. ég á erfitt með að lofta bolla vegna strengja en erað elska það alla leið og til baka!! bara best!
keep up the good work out!!
love
anný og arnhildur (IP-tala skráð) 14.11.2008 kl. 15:50
hæmmm...hvenær kemur þú heim??
Dúna (IP-tala skráð) 14.11.2008 kl. 19:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.