27.1.2009 | 20:34
Rílí!
visir.is gerir það að fréttaefni að Jóhanna Sigurðardóttir skuli vera samkynhneigð....
Æ....mér finnst þetta hallærisleg frétt ef frétt skyldi kalla, að draga kynhneigð fólks inní svona umræðu. Jóhanna Sigurðardóttir er ekkert merkilegri eða ómerkilegri hver sem kynhneigð hennar er.
Svona pirrar mig. þetta er ömurlega íslenskulega sveitó. Jóhanna má sofa hjá hverjum sem hún vill on her own time, svo lengi sem hún stendur undir ábyrgð sinni sem stjórnmálamaður þegar hún er í vinnunni.
Mér finnst þetta helst minna á það þegar Bill nokkur Clinton fékk á sig slæmt orð sem forseti vegna þess að hann var ótrúr konu sinni.....svo þegar kemur til kastanna er hægt að sjá að maðurinn var bara með betri forsetum sem BNA geta státað af á síðari tímum....ÞÓ hann hafi haldið framhjá.....kynlífi fólks á bara ekki að blanda í umræður um starfsgetu þeirra......
Þetta er pirr dagsins, sem fyrir utan þetta var afar árangsursríkur og jákvæður dagur
Um bloggið
Á vit ævintýranna....enn á ný :O)
Eldri færslur
Tenglar
Mínir tenglar
- Andlitsbók
- Aurinn
- Fyrsti útskriftarhópur Keilis á Facebook
- Hjallarnir
- íslenski hesturinn í DK
- Íslenskir hryðjuverkamenn
- Keilisfrumkvöðlarnir
- Peace one Day - friðardagurinn 21. sept.
- The girl effect
Bloggarar
- Begga
- Dagmar Sønder
- Dagný
- Dóran
- Edda Kósk
- Elín Árna
- Ella í rassi
- Eybjór
- Gimpið
- GoggaLára
- Guðný Harpa
- Helga Rún
- Korkusíðan
- Kristín fænka
- Linda Sønder
- Lúvísan
- Ómar og Árdís
- Robbinn
- Sigga sønder
- Úlli
Myndasíður
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 2990
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta er einmitt ekki réttindabaráttu samkynhneigðra til framdráttar, þ.e. að segja að hún sé samkynhneigð og þar með viðurkenna að það sé eitthvað öðruvísi við það. Kjánaleg fréttamennska en vekur víst mikla athygli einhvers staðar
Róbert Jóhannsson, 27.1.2009 kl. 23:38
Nákvæmlega mín hugsun...þetta væri eins og að draga athygli að því að Steingrímur J. sé rauðhærður...OG sköllóttur...og draga það fram sem eitthvað sérkenni frekar en eðlilega varísjón í mannfllórunni líkt og samkynhneigð er.
Birna Eik Benediktsdóttir, 28.1.2009 kl. 07:41
Það skrýtnasta er nú samt að það er einhver sér fréttavefur samkynhneigðra sem er að fjalla um þetta. Þurfa þeir í alvörunni sér fréttavef? Eru þeir ekki að gera svolítið lítið úr sjálfum sér þannig?
Róbert Jóhannsson, 28.1.2009 kl. 10:20
Auðvitað er þetta fréttaefni og afar mikilvægt fréttaefni fyrir réttindabaráttu samkynhneigðra. Því opnari sem umræðan er, því fleiri sem komast til metorða þrátt fyrir kynhneigð sína, því betra. Já já kynhneigð á ekki að skipta máli, ekki frekar en kyn, kynþáttur eða trú, en staðreyndin er samt sú að það hefur haft mikil áhrif. Þetta er bara mjög stórt skref í átt að því að gerð manneskju skipti meira máli en það sem áður var upptalið.
Og nei Róbert, þar með eru samkynhneigðir ekki að gera lítið úr sér. Það er hin mesti miskilningur, ekki frekar en Martein Luther King gerði lítið úr sér, eða Rosa Parks eða réttindabarátta blökkumanna í BNA að fagna þeim merku tímamótum sérstaklega að blökkumaður hafi í fyrsta sinn í sögunni orðið forseti BNA nú á síðasta ári. (Ég meina, Íslendingar segja gjarnan stolltir frá því að á Íslandi hafi kona orðið forseti fyrst í heiminum. Vorum við að gera lítið úr konum með því?)
Bjarndís (IP-tala skráð) 1.2.2009 kl. 14:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.