28.1.2009 | 17:21
afköstin maður!
Það er ekkert lítið sem maður er upptekin þegar maður er í fríi
Ég búin að vera í stanslausum reddingum, breytingum og leggingum alla vikuna. Núna síðast í dag púlluðum við Jóna ævintýralegt púsl á risarúminu hans Eyþórs...sem núna stendur svo flott og uppábúið, tilbúið fyrir fyrstu nóttina
Svo núna er nýja herbergið hans Eyþórs farið að líta út eins og herbergi, með hillum, dótarí á veggjunum, leikföngum og bókum og herbergi Benedikts og Baldurs er aðeins létt þar sem búið er að dreifa aðeins úr herramönnunum og fækka um eitt rúm
Baldur sefur bara í sinni neðri koju eins og hann hafi aldrei gert annað...montmont, og Benna finnst það ekki lítill heiður að sofa LOKSINS í efri kojunni og eiga þar pláss sem litla dýrið kemst ekki í
Eyþór er svo að massa skólann núna að hann er farin að fylgja stundarskránni sem hinir sjöáringarnir fylgja nema í stærðfræði...þar er hann að fylgja 9-10 ára börnum!! Litli snillingur Það semsagt fannst loksins hvað það var sem var að bögga hann....og það var að honum leiddist...það á ekki við okkur mæðginin að sitja aðgerðarlaus og bíða eftir að hinir klári
Annars er þetta danska skólakerfi svo stórkostlegt....að ég fer í skólann í næstu viku....verð þar í viku og svo kemur viku vetrarfrí! Kommon sko...hvernig væri bara ða hafa jólaprófin FYRIR jól og byrja nýja önn í janúar..þá væri frábært að fá frí aðra vikuna í febrúar....mér finnst einhvernvegin eins og áramótunum hafi verið frestað og að þau gangi ekki yfir fyrr en maður byrjar í skólanum aftur af einhverri alvöru
OG talandi um alvöru..... Bíddu...hver er búin að ná fimm fögum af sex.... Ég, ÉG, ÉG......eigum við að ræða það....miðað við ruglaða álagið síðustu önn og 0 skólaástundun hefði ég átt að falla í öllu.....ef ég væri ekki svona ÓGEÐSLEGA KLÁR
Je beibí
Um bloggið
Á vit ævintýranna....enn á ný :O)
Eldri færslur
Tenglar
Mínir tenglar
- Andlitsbók
- Aurinn
- Fyrsti útskriftarhópur Keilis á Facebook
- Hjallarnir
- íslenski hesturinn í DK
- Íslenskir hryðjuverkamenn
- Keilisfrumkvöðlarnir
- Peace one Day - friðardagurinn 21. sept.
- The girl effect
Bloggarar
- Begga
- Dagmar Sønder
- Dagný
- Dóran
- Edda Kósk
- Elín Árna
- Ella í rassi
- Eybjór
- Gimpið
- GoggaLára
- Guðný Harpa
- Helga Rún
- Korkusíðan
- Kristín fænka
- Linda Sønder
- Lúvísan
- Ómar og Árdís
- Robbinn
- Sigga sønder
- Úlli
Myndasíður
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
já þú ert snilli tilli! alveg klárlega baby!.. til hamingju með þetta allt!.. frábært að heyra að það sé búið að ráða við vanda Eyþórs!...
pæld í því, ef ekki værir fyrir þessa kreppu að þá værum við Elín hjá þér núna!!
a og co (IP-tala skráð) 29.1.2009 kl. 09:39
Ohh píkan þín....mig lagnar SVO í ykkur...djö hvað það væri bestast að dandalast með ykkur
Birna Eik Benediktsdóttir, 29.1.2009 kl. 12:42
já...bha,, það hefði eigilega verið best ef við værum þarna úti á þessari tímasetningu :D
a og co (IP-tala skráð) 29.1.2009 kl. 13:32
Til hamingju með prófin Flott hjá þér :)
Linda (IP-tala skráð) 29.1.2009 kl. 20:51
Dugleg ertu Birna. Frábært hjá þér!!
Hvernig fór þetta með ritgerðina umtöluðu?
Helga Rún (IP-tala skráð) 29.1.2009 kl. 23:14
Hún flaug í gegn helvísk
Birna Eik Benediktsdóttir, 30.1.2009 kl. 00:21
Æði!!! enda faglega unnin ;) af allskonar fagmönnum
Helga Rún (IP-tala skráð) 1.2.2009 kl. 15:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.