Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009

Sigríðarson.....eða dóttir?

 

Mikið vildi ég að ég gæti hent inn nýrri sónarmynd af litla Jóni....en ég er ekki á minni tölvu...þar sem hún hefur ákveðið að fara í DNS server verkfall.....Shocking

 

 

En við Sigríður fórum í sónar í dag....20 vikna sónarinn sem þýðir að ég er hálfnuð í dag Smile  Þar kom í ljós að litli Jón er í raun Jón....en ekki Gunna InLove   og jeminn bara hvað við Sigga vorum spenntar....tæknin núna er orðin svo ótrúleg að við fengum að sjá andlitssvip, öll innri líffæri..meira að segja pínulitlu nýrun Grin  og ósæðina, litla fætur sparka og sprikla og kroppinn litla teygja sig InLove....og ALLT er FULLKOMIÐ Heart Litla dýrið er bara nákvæmlega eins og það á að vera miðað við meðgöngulengd .... og aftur verður maður skotin í unganum sínum.....ótrúlegt að það sé endlaust pláss í hjartanu á manni fyrir þessa orma Heart 

 

Sérstakar þakkir fá Sverrir frændi.....og Eyþór frændi.....sem pössuðu stóru bræðurna á meðan við Sigga fengum að kíkja á litla Jón Kissing

 

 

Annars er allt frábært að frétta af okkur, ég keypti mér crocs skó......CROCS SKÓ.....ég vona að þið fyrirgefið mér þegar ég segi ykkur afhvejru.....hehe.....það er sko til þess að vera í garðinum sko .........Garðinum sem ég var að setja sandkassa í fyrir Baldur......og strákarnir leika sér í fótbolta í....já...og sem er bara OKKAR.....og er LOKAÐUR með hliði.....ok...ég er að monta mig smá enda mjög ánægð með þetta allt saman  LoL

 

Í gær fór ég með guttana í risabúð....eins og Byko.....og keypti ýmislegt...þar á meðal baðherbergisskáp.   Ég dröslaði honum heim eins og öðru og plantaði Baldri í baðið og settist við smíðar við hliðina á honum......með glænýju bor/skrúf-vélinni massaði ég þessu saman, stykki sem er einhverjir 80x60cm með Baldur á hliðarlínunni, Eyþór og Benna í playmodeildinni og litla Jón undercover að standa sig vel í sparkverkinu....og ekki nóg með það...heldur boraði ég göt í vegginn og massaði þessu upp.....á frekjunni hahaha og komst þá að því að húsið er víst ööööööörlítið skakkt...Blush    Ég nefninlega boraði alveg beint....svo húsið bara hlýtur að vera skakkt Cool   Baldri fannst ég allavega mjög dugleg Police

 

Strákarnir eru búnir að fara fyrsta daginn sinn í skólann og leist okkur mjög vel á.....það fyrsta sem við tókum eftir var að 6 ára börn fá að borða yfir daginn í þessum skóla.....en þurfa ekki að bíða matarlaus frá hálf átta til hálf tólf Shocking   Og Kennarinn hans Eyþórs er rúmlega þrítugur strákur.....ekki kona komin hátt á sjötugsaldur Woundering  Engir bekkir eru fjölmennari en með 20 börnum...en flestir vel undir þeirri tölu. 

 

Við Baldur ætlum að hygga okkur heima fyrstu vikurnar og jafnvel bara frammá vorið.....það er ákveðið geðpróf fyrir ólétta móður hans hahaha Grin

 

 

OG et lille stykke noget for farmand Smile

 

Baldur er som altid meget livlig og sjov....han er begyndt på at sige lidt mere...også ting andre kan forstå..ikke kun mor hehe InLove  Han spørger efter dig meget i disse dage her og vi er heldige at vi har billeder af dig siden vores tur i Island og mange af jer to sammen siden han var helt små som vi kikker på og snakker om hver dag.  Vi glæder os meget til at kunne komme på nettet derhjemme for at snakke med dig med webcam Grin    Vi havde ikke vores camera med på vores tur til Sønderborg så du får ikke nye billeder i denne omgang, men det ser ud til at det er min computer der striker på mig men ikke netforbindelsen i huset så jeg er i gang med at få den lavet.

Baldur leger meget med Playmo og dyr i disse dage. Han tegner også rigtig meget og det gør han så godt at man ville ikke tro at han er kun to og et helt Heart   Han vil hellere drikke mælk end at spise mad og det er vi ueninge om i disse dage, han viser sin vilje meget sterkt og højrøstet men lige meget hvor meget og højt han skiger, eller om han finder på at kaste med ting eller slå....så giver mor sig ikke, man skal spise mad...ikke kun drikke mælk.   Udover meget høj mælkekærlighed fra drengens side er han fulstændig perfect....og han har det udmærket :O)

 

 

 


Nóg að gera í lífinu :O)

 

Þannig er það Grin

 

Eyþór litli píanósnillingur blómstrar í sínu píanónámi, kennarinn hans er svo ánægð með hvað hann er fljótur að tileinka sér hlutina og hvað hann er lipur á nótnaborðinu InLove  

Baldur tók allt í einu við sér og fór bara að tala!  Ekkert alltaf alveg sama tungumál og við hin, en það er farið að færast aðeins nær Joyful   Nú er hægt að bera kennsl á fullt af orðum og setningum og hann syngur eins og hann eigi lífið að leysa.....Heart

Benni er enn að melta hvaða áhugamáli hann vill sinna, dansinn er honum ennþá ofarlega í huga. Enda er hann búin að æfa dans í 2-3 ár...en svo kallar fótboltinn líka svolítið. 

 

Litli Jón vex og dafnar og hafa núna fundist spörk utan frá tvisvar sinnum InLove  Við Sigga bíðum spenntar eftir næsta sónar þar sem við ætlum að fá að vita hvort að litli Jón sé í raun gutti....eða hvort að heimasætan sé loksins á leiðinni Heart  Mamman er bara svo mikil strákamamma í eðli sínu að það hvarflaði ekki að mér annað en að tala til þessa "innbúa" á sama hátt og til hinna fyrri og er það mikill djókur meðal hinna væntanlegu stóru bræðra að núna þegar geirvörtur hafa loksins losnað við viðurnefnið Jón....eftir margra ára fliss LoL...að þá kalli þeir bara litla krílið Jón í staðin Grin  svona þar sem þeir eru vaxnir uppúr því að spyrja mig að því hvað ókunnugir á götu heita (fengu ss alltaf svarið "Nú! Auðvitað Jón!")  

 

En hvort sem það kemur lítill Jón eða lítil Gunna þá er mikil spenna í gangi....tímatal bræðranna miðast við fyrir eða eftir komu litla Jóns InLove

 

 

Ég er á milljón yfirleitt, alla daga, allann daginn og hef ekki einu sinni tíma til þess að setjast niður og blogga hvað þá annað..þetta blogg fer að breytast í svona weekly uptade síðu LoL  Við erum byrjuð að pakka niður hægt og rólega vegna yfirvofandi flutninga og er ég voðalega fegin því (lesist: komin með ógeð á þessum helvítis skókassa sem ég bý í og tónlistinni sem fylgir honum)

 

Lífið rúllar annars bara áfram án þess að maður taki eftir því.....eða muni að taka myndir Blush

 

 


Barnastúss og gestagangur :O)

 

Það er alltaf nóg að gera Cool   

 

Við fengum frábæran gest á föstudaginn, beint í heimabakaða pizzuveisu og fínerí....mamman svaf svo eiginlega bara mest allan laugardaginn...Whistling en sunnudagurinn var tekin með trompi og við skelltum okkur í sund með strákana fyrir hádegið Tounge  Eyþór fór svo í heimsókn til vinar síns en við hin fórum heinm að stússast.  Svo fórum við að sjálfsögðu á Mongolian Barbaque eins og er skylda að gera með alla gesti sem villast til Sonderborgar Wizard   Þegar þessi færsla er skrifuð liggur undirrituð afvelta vegna ofáts á Mogólskum sérréttum (elska að geta borðað á meðgöngu !! ) 

 

 

Ég parkeraði myndavélinni uppí hillu.....og hef ekkert náð í hana aftur...ég fer að bæta úr því......lofa Blush  Annars bara er allt við það sama í litlu stóru familíunni í skókassananum í suðurborg Smile


Fleiri krakkapælingar :O)

 

Þau eru æði þessir ormar LoL

 

Við erum búin að eiga annasama helgi....laugardagurinn fór að mestu í heimilisstúss og svo flúðum við endalaust danskt rapp á sunnudeginum með því a fara í sund Grin  Það var algert æði....eftir sundið lögðum við Baldur okkur en stóru strákarnir sáu Línu og Kára úti á leikvelli og slógust í hópinn.....og leikur barnanna var auðvitað að safna saman áfengisflöskum!  vá hvað ég er orðin þreytt á að búa í þessu greni Pinch

 

Svo alveg heillöngum tíma síðar var gerð hér innrás...4 stykki óhreinir krakkar á aldrinum 4-7 ára komu inn að leika Shocking   Eins gott fyrir mig að æfa mig í því hahaha...en eru búin að vera rosa góð og það er alveg fyndið að horfa á ástarsambandið á milli Karólínu og Baldurs....þau sitja saman og leiðast ...og kyssa hvort annað á kinnina Kissing 

Svo var hressingartími...sem kom sér vel fyrir mig því ég átti svo mikið af eggjum sem ég vissi ekki alveg hvað ég átti að gera við...svo rúgbrauð með eggjum og berjasaft var á matseðlinum Cool  við matarborðið sátu þau...fimm stykki og auðvitað kom upp litla barnið í bumbunni og fjölskyldutengsl....hvernig komst það þangað, er það strákur eða stelpa, og hver á mann í rauninni...þýðir þetta að pabbi Baldurs eigi núna til dæmis líka Karólínu og Maríu?  HAHAHA LoL  þetta voru frábærar pælingar og ég bara hélt mér fissandi utan við þær nema ég væri spurð beint að einhverju....en ég heyrði allavega að synir mínir virðast hafa svörin á hreinu Police

Þetta er spekingahornið Whistling

ormasúpa

 

Við erum annars bara að búa okkur undir skólavikuna...bæði mína og strákanna 

 

Já og sá sem nennir að kenna mér á bölvað flassið á myndavélinni má það mjög gjarnan Halo


Um bloggið

Á vit ævintýranna....enn á ný :O)

Höfundur

Birna Eik Benediktsdóttir
Fædd og uppalin Kópavogsmær sem þrátt fyrir flakk um víða veröld hefur ræturnar kirfilega festar á Íslandinu góða. Móðir, dóttir, systir, frænka, vinkona, nemi og síðast ekki ekki síst óþrjótandi uppspretta seiglu og jákvæðni

Nýjustu myndir

  • jón hjá tannsa
  • DSC_0490[1]
  • IMG_1841
  • SDC11485
  • stóru

Nýjustu myndböndin

Jón í baði

bjútífeis að syngja fatlafól

Jón Egill tæpra 11 vikna að gera grín að mér :O)

Jón Egill 5 vikna kjaftaskur

Jón Egill eins mánaðar.

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband