Rómantík í Reykjavík

 

Reykjavík er spes borg. á Sumardaginn fyrsta þurfti sjónum að rigna burt svo ekki væri hvítt yfir, búðir eru opnar allan sólarhringinn og allt kostar milljónkall. Þrátt fyrir að hundslappadrífa sé afar rómantísk sé komið auga á fegurð hennar, og þó það sé hentugt að alltaf sé hægt að komast í búð og eyða millum.....er ég samt með væga heimþrá Blush

 

Við höfum þó getað haft það náðugt þessa daga sem við höfum stoppað. Eyþór er búin að heimsækja besta vininn og við erum búin að fara í milljón og eina hjólabúð til þess að skoða gaurahjól því að í fyrsta skiptið síðan ég flutti til DK árið 2000...er ódýrara að kaupa barnahjól hérna heima en það er úti Shocking  Á milli hjólabúða höfum við svo ræktað ættmennin og vinina...þó svo aldrei verði komist yfir alla á svo skömmum tíma Cool

 

Bræðurnir nutu gestrisni Höllu frænku, Magga og Elfu móðursystur sinnar í gær og gistu í Kópavoginum á meðan mamman naut kvöldsins í faðmi Reykjavíkur.......barnlaus aldrei slíku vant Grin Þeir að sjálfsögðu voru eins og englar.......alveg eins og mamma sín Whistling

 

Heiðinn kallar þó sem fyrr svo við förum að koma okkur í rokrassgatið okkar á suðurnesjum, áður þurfum við þó að afgreiða nokkrar heimsóknir til viðbótar og ekki má gleyma stórleik HK og Vals á eftir Wizard

 

 

Planið er að aulast til þess að muna eftir myndavélinni og reyna að ná handboltabullumyndum af þeim bræðrum, verst að HK fötin eru í Danmörku sem og andlitsmálninginn Whistling 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

skemmtið ykkur í borg óttans ;)

sakn sakn og knús á línuna

Kristín frænka (IP-tala skráð) 23.4.2009 kl. 14:48

2 Smámynd: Elín Sigurðardóttir

Bíddu ertu á landinu...hvaða flakk er þetta eiginlega á þér núna?

Elín Sigurðardóttir, 23.4.2009 kl. 22:07

3 Smámynd: Birna Eik Benediktsdóttir

Bara eyða páskunum með gamla settinu

Birna Eik Benediktsdóttir, 23.4.2009 kl. 23:22

4 identicon

hæ sætu mín.. vona ða þið séuð hress og kát, er spennt að heyra hvernig Baldur hefur það eftir aðgerðirnar...  ertu enn netlaus?? ég er svo sjaldan inná þessu núna og verð hundfúl yfir að þú getir ekki verið inná akkurat þegar mér dettur í hug að kikja hehehehe...

annars erum við fín og flott, hreyfingar á fullu og svona skemmtileg heit, sumar fílíngur kominn í mig og ég get ekki beðið eftir öllum útileigunum sem ég ætla að vera í í sumar, svo bíðum við og sjáum hverstu hress ég verð með þær þá

sakn ykkar bönch...love u long time og ávallt og fast...

Anný og co

a og co (IP-tala skráð) 10.5.2009 kl. 21:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Á vit ævintýranna....enn á ný :O)

Höfundur

Birna Eik Benediktsdóttir
Fædd og uppalin Kópavogsmær sem þrátt fyrir flakk um víða veröld hefur ræturnar kirfilega festar á Íslandinu góða. Móðir, dóttir, systir, frænka, vinkona, nemi og síðast ekki ekki síst óþrjótandi uppspretta seiglu og jákvæðni

Nýjustu myndir

  • jón hjá tannsa
  • DSC_0490[1]
  • IMG_1841
  • SDC11485
  • stóru

Nýjustu myndböndin

Jón í baði

bjútífeis að syngja fatlafól

Jón Egill tæpra 11 vikna að gera grín að mér :O)

Jón Egill 5 vikna kjaftaskur

Jón Egill eins mánaðar.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 19
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 2889

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband