Færsluflokkur: Bloggar
21.8.2012 | 16:39
Jón Egill
Ljónið, krúttið, vargatítla, frekjudósi, mjúkastur, mömmusinnar, nonns, Litli Jón og ýmislegt fleira hefur verið notað til þess að lýsa þessum litla manni síðastliðin 3 ár.
Þó svo hann hafi fæðst fyrir um að bil tveimur vikum virðast heil þrjú ár hafa henst hjá Fyrst í stað var hann bara mjúkur og lítill og krúttlegur...
Það eru ss til endalausar krúttmyndir af þessum litla manni, þetta er sko bara brotabrot af safninu frá fyrstu 3-4 mánuðunum. Svo fór minn að eldast og eftir því sem samhæfing augna og handa fínpússaðist fór ákveðnin, áræðnin og ormaskapurinn að koma betur og betur í ljós
Svo fór dýrið að fullorðnast. nálgast annað afmælið og svo það þriðja og mátti nú kannski segja að þá væri frekjudósin fullþroskuð og tími til komin að reyna að finna á hana lok... það hefur auðvitað gengið upp og ofan eins og ákveðinna manna er siður...
Jón Egill hefur ferðast mikið á sínum stutta tíma og hitt marga úr sinni gríðarstóru fjölskyldu óteljandi vini. Litli sjarmurinn hefur yfirleitt ekki átt erfitt með að fá fólk á sitt band í gegnum tíðina...
En svo þarf heimsins lengsta bloggfærsla að fara að taka enda svo að bræðrabrall fær "smá" pláss hérna að lokum. Þessi litli kútur er risastór persónuleiki í litlum mjúkum kroppi, hann vill meina að honum eigi að hlýða og finnst við hin frekar glötuð að vera ekki á sömu skoðun. Yfirleitt kenna börn foreldrum sínum þolinmæði, ást, sjálfsfórnarlund og allskonar svona ljóðrænar tilfinningar en þessi áveðni, krúttlegi og sjarmerandi litli vargur hefur fyrst og fremst kennt mér að ég veit EKKERT umbarnauppeldi
Hin heilaga ferning...í ýmsum myndum (já....Baldur er að sleikja bróður sinn á einni myndinni.)
Af þessum ungu mönnum er til gífurlegt magn mynda og hér að ofan er einungis smá sýnishorn af því sem hefur verið tekið á síðustu þremur árum. Við getum treyst á það að litli viljasterki glókollurinn okkar haldi okkur öllum við efnið næstu árin...okkur hlakar mikið til þegar hann byrjar í skóla og á að vera kyrri maðurinn
Tvær nýlegar af afmælisbarninu svona rétt í lokin...önnur vill þó bara vera á hlið...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.3.2011 | 12:32
Á að hrista í þetta líf?
Það er spurning.
Lífið hendist áfram öllum að óvörum og nú er að koma vor 2011
Strákasúpan dafnar vel, þrír í Danmörku og einn á Íslandi. Eyþór og Benni eignuðust litla systur um Jólin og Baldur eignaðist lítinn bróður í Janúar svo að núna eru systkinin víða orðin mörg. Benni og Eyþór eiga þá 4 systkini, Baldur líka 4 en Jón heldur sínum 5 óbreyttum.
Ég hlakka agalega mikið til sumarsins, að fá Eyþór í heimsókn og svo er fyrirhuguð þriggja vikna fjölskylduferð til landsins bláa með alla súpuna...ég er orðin svo dönsk að ég er auðvitað byrjuð að plana
Benni og Jón æfa júdóið af kappi og það líður ekki sú æfing sem ekki er haft orð á því hvað fjögurra ára pjakkurinn lætur finna fyrir sér, ári yngri en næsti fyrir ofan en er þeim, þrátt fyrir það, engin eftirbátur...litla ofurhetjuþykkni
Aðaláhugamálið hans Jóns er mannfjöldastjórnun. Hann sýnir mikla hæfileika á því sviði sem og á sviði tamninga. Árangurinn má yfirleitt sjá seinnipart dags, rétt fyrir kvöldmat þegar tveir fullorðir og tvö börn leika æfðar listir sem litla herramanninum eru þóknanlegar. Hver sagði svo að minnihlutastjórn væri slæm hugmynd?Það eru komnar nýjar myndir (loksins) og nýtt albúm í myndahorn þeirra bræðra hér til hliða.
Bloggpenninn er svolítið ryðgaður en það er vonandi að ég hrökkvi í gang við þetta smáskot ;)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.6.2010 | 18:33
Leikvallaóverdós
Við einstettum okkur í byrjun júní að ná að skoða alla leikvellina í odense....hér með tilkynnast mistök. Odenseborg gefur út snilldarkort yfir alla leikvellina í kommúnunni en við erum varla hálfnuð, svo margir eru þeir!
Nú fer alveg að líða að brottför stóru guttanna og mér er strax farið að vaxa það í augum að pakka niður fyrir þá....ég bara ELSKA að pakka Þeir fengu þó smjörþef af dönsku sumri hérna rétt fyrir brottför þar sem við höfum verið að bráðna síðstu daga og allir orðnir vel sólbrúnir.
Ég ef verið að velta svolítið fyrir mér aldurstakmörkunum á netinu...eins og td á fésinu. Er þetta sniðugt og þá afhverju. Hver er ástæðan fyrir því að aldurstakmörk eru sett og ber okkur sem foreldrum að kenna börnum okkar að fylgja svona reglum, eða brjóta þær? Hverjar eru hætturnar í netnotkun barna og hversu ung eiga þau að vera þegar maður byrjar að kenna þeim á þetta verkfæri.
Þessi pæling er bara hálfnuð hjá mér svo ég ætla að láta staðar numið og íhuga þetta aðeins meira...
ég er orðin löt að setja myndir hérna inn því það er svo tímafrekt....ætla samt að reyna að herða mig aðeins :O)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.6.2010 | 18:42
Umdeild hamingja.
Hversu hamingjusamur má maður vera ef maður veldur öðrum óhamingju með hamingju sinni?
Þessi
litli mjúki kroppur veldur mér ómældri ánægju. Ég man ekki hvernig lífið var áður en hann var til, um leið og hann fæddist opnaðist nýtt herbergi í hjartanu á mér bara fyrir hann. En á meðan veldur tilvist hans öðrum svo mikilli óhamingju að hann er falinn, hann er skömm, hann er skítugt leyndarmál sem ekki má ræða eða viðurkenna. Svo mikið er lagt í að gera tilvist hans að engu að gripið er til lyga og óblíðra yfirlýsinga um óskir í þá áttina að hann myndi hætta að vera til.
Þegar tilfinningar til barns eru svona ólíkar, hversu mikið "má" ég þá fagna komu hans? Hversu glöð má ég vera? Má ég tilkynna komu hans með öllum þeim tilfinningum sem ég bý yfir eða "á" ég að sýna aðgát til þess að særa fólk ekki enn meira? Má ég minnast á fæðingu hans á opnum vetvangi eða á ég að ræða hann bara við mitt fólk? Á ég að hundsa bakland hans og sögu sem hann erfir frá föðurætt sinni og reyna að stroka allt út sem minnir á að drengurinn tilheyrir ekki bara mér? Ef fólk spyr mig hver á hann á móti mér...á ég þá líka að ljúga?...Eða neita að svara?
Drengurinn er orðin 10 mánaða í dag (eða á morgun réttara sagt) og þessar pælingar vella ennþá stundum upp í kollinum á mér...sérstaklega þegar ég er spurð útí samband hans við föðurfólkið sitt og þegar fólk sem þekkir föður hans vel veit ekki af tilvist hans.
Í fyrradag átti sér svo stað svo undarlegt atvik að ég hef ákveðið að héðan í frá ætla ég ekki að læðast neitt með hann Jón minn lengur og vera bara eins montin af honum og mig langar...þó hann sé líkur pabba sínum Hann er og verður Sigurgrímssonur, hvað sem mönnum og konum kann að finnast um það.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
20.6.2010 | 15:30
Jæja......bækurnar mættar aftur.
Nú er mál til komið að bursta rykið af heilanum og fara að hugsa um eitthvað annað en bleyjuskipti og krúttíbollukúr. Í haust byrjar skólinn af fullum krafti og ég er svo agalega séð að ég er strax farin að lesa
Ég er búin að taka FULLT af myndum í júní en hef verið löt að henda þeim inn...eitthvað ósjálfrátt bloggverkfall í gangi, en með nýjum búningi bloggsins ætla ég mér líka að vera duglegri að skrifa hérna inn aftur...ég held hreinlega að helvítis andlitsdoðranturinn hafi komið í stað bloggsins þennan tíma.
Núna eru bara tvær vikur þar til að stóru strákarnir mínir fara til Íslands og verður það í fyrsta skipti síðan ég var 18 ára að þeir verði í burtu frá mér báðir tveir í heilan mánuð! Mig bæði hlakkar til og kvíðir fyrir. Litlu dýrin verða þó heima til þess að halda mér selskap :O)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.5.2010 | 13:39
Og þeir koma í röðum...
enn fleiri pabbadagar. Í dag er hálft ár síðan pabbi skildi við en finnst mér þó sem það hafi verið í síðstu viku að við systur sátum á sjúkrahúsinu á Akureyri með Kára á milli okkar. Hann líður hratt tíminn þegar maður er ekki að horfa og mér finnst hálf óhuggulegt til þess að vita að áður en ég veit af verða liðin mörg ár...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.5.2010 | 20:03
Dagarnir hans pabba...
Þeir koma alltaf í kippu í byrjun maí, sá fyrsti og sá þriðji. Frídagur verkamanna og afmælisdagurinn.
Við Benni fórum í kröfugöngu með litla stýrið okkar í vagninum, felldum bæði nokkur tár og sungum á íslensku með nallanum.
Flottur stóri bróðir með litla bróður sinn í kröfugöngu.
Við vorum heppin með veður og þrátt fyrir að gangan hafi verið erfið var þetta ljúfsár dagur. Ég er viss um að ljúfi hlutinn mun verða stærri og stærri með tímanum. Okkur Benna leið allavega báðum vel með að hafa farið og okkur fannst gott að tala um afann og hvað hann gerði og stóð fyrir.
Í dag er svo afmælisdagurinn hans pabba, hann hefði orðið 83 ára í dag kallinn. Ég bakaði ekki köku, ég gerði ekkert spes afmælislegt.....ég eyddi bara deginum í litlu mennina mína. Allir sóttir snemma og slegið var upp spilavíti í stofunni. Við Benni tefldum líka eina afaskák og hlógum og höfðum gaman. Við erum búin að hugsa soldið um það hvernig ætli það hafi verið þegar mamma hans afa var að eignast hann...það er svo stutt síðan Nonni bættist í okkar fjölskyldu að sjúkrahúsið og allar þær pælingar eru Benna ferskar í minni svo það komu fram ansi margar áhugaverðar pælingar og við urðum að gúggla soldið til þess að athuga skilyrði fólks snemma á 20. öldinni.
Ætli ég hringi ekki svo bara í mömmuna mína og óski henni til hamingju með daginn og skáli í púrtvíni fyrir besta pabbanum sem hægt er að hugsa sér.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.4.2010 | 16:23
Keppnisæfingar í ólympískum kúkableyjuskiptum...
Jón notar bleyju, sem er svosem ekkert skrítið miðað við hvað hann er mikið smotterí. Hann er líka alveg ofsalega fjörugur og forvitin ungur maður og þessi blanda gefur afar lífleg bleyjuskipti. Ég þarf án gríns að setjast á gólfið með hann, halda höndunum hans með tánum mínum og reyna svo að verka hann eins hratt og ég get því litli rassinn og fótalingarnir eru bara á MILLJÓN og hann er svo hress og upptekin af því að ætla að komast af stað að ég upplifi smáan sigur og egóbúst í hvert sinn sem mér tekst að koma á hann hreinni bleyju án þess að fá kúk útum allt...
Annars er hann bara í daglegu starfi við að ormast í krúttið á sjálfum sér...ekkert nema brosið og tvítennti vargurinn mér til ómældrar ánægu. Hann slátraði hér klósettrúllu um daginn svo að ég er enn að finna pappírssnifsi hér og þar....ég fann meira að segja soldið af henni í bleyjunni hans daginn eftir
Annars fer að bera yfir okkur flóðöldu gesta og ég hlakka mikið til
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.4.2010 | 13:39
Skarð hoggið í raðir Keilisfrumherja.
Við vorum um 80 stykki sem útskrifuðumst 2008. Fyrsti nemahópur Keilis. Stórkostlega fjölbreyttur hópur þar sem ungir og .....minna ungir unnu saman, karlar og konur allir stefndu að einu takmarki.
Það má segja að hópefli Capacent hafi tekist of vel því að slík var samheldnin í hópnum, ef einn var að detta afturúr var honum hjálpað...setið yfir stærðfræði langt frammá nætur, íslenskuritgerðir unnar í sammvinnu og allir gerðu sem best þeir gátu.
Þetta voru góðir tímar, þetta var gott ár. Sumir fundu ástina, aðrir sögðu skilið við hana. Börn voru fædd á árinu og uppúr kynnum Keilisfólks komu svo fleiri börn. Hvað sem öðru líður þori ég að fullyrða að ekki bara ég heldur að hver einasta manneskja sem tilheyrir þessum hópi eignaðist vin eða vini sem hún heldur enn sambandi við. Ég eignaðist vini sem ég ætla mér aldrei að sleppa.
Engin var með öllu nafnlaus þar sem þetta var lítill hópur og fannst mér ríkjandi velvild og hjálpsemi okkar allra á milli, þvert á námsbrautir, áratuga eða áhugamál.
Svo allt of fljótt er einum kippt úr hópnum. Sagt hefur það jú verið um Suðurnesjamenn að þeir bjóði Unni óhræddir í byrginn og sem betur fer koma þeir yfirleitt heilir heim. En annað átti fyrir honum Gumma okkar Steins að liggja. Fallegi fallegi drengur, svo fallegur við fólkið í kringum sig, svo fallegur við konuna sína, svo ósköp mikið fallegur drengur. Skjannahvítt brosið, kjúllinn í skottinu og alltaf tilbúin að hjálpa með brotareikninginn. Glettinn og skemmtilegur. Heill og góðviljaður. Við Gummi krösjuðum blakæfingar raungreinadeildarinar......við vorum grúppíur.
Engin orð geta huggað svona stóran harm. Ég get sent aumt netknús...ég get sent styrk í hugsunum en það virðist máttlítið á svona stundu. Ég vona bara að hún Berglind okkar keilismær viti að við erum mörg hjá henni í huganum.
Mig hefur aldrei langað í flaggstöng...ekki fyrr en núna. Núna vildi ég óska að ég gæti flaggað mínum fallega fána lands elds og ísa...lands sjómanna, sem sem stundum þurfa að láta í minni pokann fyrir ógnarvaldi hafsins. Mig langar að flagga i mínu danska úthverfi....æpandi bláa fánanum mínum inni á milli þeirra rauðu og hvítu...láta alla vita að vinur minn var einn þessara hugrökku sjómanna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.3.2010 | 23:06
Dsjís sko!
Við gerðum okkur dagamun, Baldur fór og valdi sér stóru stráka hjól með Ben Ten myndum (jeij, hjólapúsl) og svo fórum við eins og sönnum smáborgurum sæmir og fengum okkur kjötbollur að hætti svía í IKEA. Guttarnir fóru svo að halda uppi fjörinu í leiklandinu í IKEA á meðan við Nonni renndum í gegn og hirtum upp hitt og þetta nýtilegt.
Ég fór svo og hirti stóru mennina því þeir vildu koma með í barnadeildina.......við áttum okkur einskis ills von þarna snemmkvölds í IKEA og tókum lyftuna upp.....og þegar upp var komið ákvað lyftan að þá væri nóg komið! Við sátum ss. föst í lyftunni í IKEA.....hún vildi ekki hleypa okkur niður, og ekki opna hurðarnar. Við vorum þó svo heppin að við vorum ekki ein í lyftunni, heldur var þarna stödd ung pakistönsk kona með nýfætt ungabarn og eitt litlu eldra
Það besta var samt þegar tvær mínútur af þrjátíu voru liðnar sagði Baldur "mamma! ég kan ekki bíða leeeeenngiiii!"
Ok ömurleg aðstaða en þetta var samt svo sjúklega sorglega fyndið að vera fastur í lyftu með hrúgu af þreyttum, brjálæðislega þolinmóðum krökkum
Gamanið kárnaði að vísu hratt þegar við reyndum að komast út úr IKEA kerrulaus með fullt af drasli og eina feitabollun og þurftum að ganga yfir þvert og endilangt helvítis húsið.....en við komumst samt heim með dótaríið okkar og það allra mikilvægasta......nýja hjólið
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Á vit ævintýranna....enn á ný :O)
Eldri færslur
Tenglar
Mínir tenglar
- Andlitsbók
- Aurinn
- Fyrsti útskriftarhópur Keilis á Facebook
- Hjallarnir
- íslenski hesturinn í DK
- Íslenskir hryðjuverkamenn
- Keilisfrumkvöðlarnir
- Peace one Day - friðardagurinn 21. sept.
- The girl effect
Bloggarar
- Begga
- Dagmar Sønder
- Dagný
- Dóran
- Edda Kósk
- Elín Árna
- Ella í rassi
- Eybjór
- Gimpið
- GoggaLára
- Guðný Harpa
- Helga Rún
- Korkusíðan
- Kristín fænka
- Linda Sønder
- Lúvísan
- Ómar og Árdís
- Robbinn
- Sigga sønder
- Úlli
Myndasíður
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar