Þyrnir í auga.....

 

 

...hvers...og hversvegna?    Máltækið þyrnir í auga finnst mér skemmtilegt.....þyrnir í auga....ég ætla að endurtaka það nokkrum sinnum hérna fyrir neðan Joyful

 

Það er undarleg tilfinning að vera þyrnir í augum annarrar manneskju. Maður fer að hugsa hvort að maður hafi í raun gert eitthvað eða sagt sem að gefur viðkomandi manneskju ástæðu til þess að gera mann að þyrni í auga sér eða ekki. Shocking Stundum hefur maður það...en stundum er það líka bara óöryggi eða óánægja viðkomandi manneskju sem að gerir það að verkum að tilvist mann er böggandi fyrir hana.

 

Þá er jú lítið hægt að gera...en hafi maður í raun brotið af sér gagnvart öðrum má maður vel sjá sóma sinn í því að biðjast afsökunar á því...en sé "þyrnissyndrómið" sjálfsprottið hjá hinum aðilanum getur maður ekkert nema bara haldið áfram að lifa og vonað að fólk komist yfir þetta að lokum.

Ég hef upplifað það að vera þyrnir í augum annarra...bæði hef til þess unnið stundum og svo hef ég upplifað það að vera einfaldlega fyrir annarri manneskju með því einu að vera sú sem ég er.FootinMouth

 

 

Þessa dagana er ég hinsvegar að upplifa því nær alsaklausa manneskju sem þyrni í auga mér Blush...ljúf og góð persóna sem hefur fátt gert á minn hlut...svo að ég verð að játa fyrir sjálfri mér að þetta er sjálfssprottið syndróm hjá mér þar sem ég ætti vel að geta litið framhjá því litla sem útaf hefur borið okkar í millum.  Þess í stað upplifi ég pirring gagnvart þessari manneskju...eitthvað sem ég vill gjarnan geta haft stjórn á sjálf og skammst mín til þess að vera ekki að asnast til þess að láta annað fólk stjórna minni líðan.Cool

 

Ég kem ekki fingri á hvort þetta er afbrýðisemi, óánægja, óöryggi, fordómar, tillitsleysi, óþolinmæði eða eitthvað allt annað hjá mér....en ég ætla allavega að leggja mig fram um að vera góð við þessa manneskju...því ég nenni ekki svona veseni! Wizard

 

Annars er lífið gott í Sonder....börn og nám halda manni staðfastlega við efnið sem fyrr og er það alger bjargvættur hversu góður hópurinn frá Keili er í því að hjálpast að og halda hvort öðru félagsskap...það er mikil bót í því að eiga meðbræður í eymdinni í útlandinu hehehe LoL


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eitthvað kannast ég nú við þetta að einhver fari í taugarnar á mér og ég veit ekki af hverju. Held samt að það sé yfirleitt vegna þess að fólk er ljótt, feitt eða rauðhært og ég er allt af þessu enda þoli ég ekki sjálfan mig.

sibbinn (IP-tala skráð) 6.11.2008 kl. 10:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Á vit ævintýranna....enn á ný :O)

Höfundur

Birna Eik Benediktsdóttir
Fædd og uppalin Kópavogsmær sem þrátt fyrir flakk um víða veröld hefur ræturnar kirfilega festar á Íslandinu góða. Móðir, dóttir, systir, frænka, vinkona, nemi og síðast ekki ekki síst óþrjótandi uppspretta seiglu og jákvæðni

Nýjustu myndir

  • jón hjá tannsa
  • DSC_0490[1]
  • IMG_1841
  • SDC11485
  • stóru

Nýjustu myndböndin

Jón í baði

bjútífeis að syngja fatlafól

Jón Egill tæpra 11 vikna að gera grín að mér :O)

Jón Egill 5 vikna kjaftaskur

Jón Egill eins mánaðar.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband