30.11.2008 | 09:57
Benedikt Eysteinn Birnuson
Er 6 ára í dag :O)
Gengur einnig undir viðurnefnunum hobbitinn, Benni spenni, Benni spenni spýturass, spýtó (sem stytting á spýturass), flotti gotti, og svo að sjálfsögðu klári, sæti, fallegi, mjúki, flotti..og þar fram eftir götunum...haus
Það tók piltinn ekki nema 2-3 tíma að mæta á svæðið þegar hann hafði ákveðið að láta verða af þessu og varð það það síðasta sem hann var snöggur að hehehe
Hann var mesta bolla sem ég hafði hitt sem ungi (þangað til ég hitti Baldur) enda mikill brjóstamjólkurkall líkt og bræður hans báðir og varð hann fljótt þykkari yfir kroppinn en ég! Andvökunæturnar voru þó ófáar fyrsta árið hans Benediktst og afrekaði hann það meðal annars að vera yngsta barn á Íslandi til að fá rör í eyrun!
Benedikt er ormur...sem kemur mér mikið á óvart miðað við hvað ég er ALLTAF stillt og góð ...hann hlýtur að fá pjakkháttinn frá ókunnugum bara ... en hann er semsagt glettinn og skemmtilegur drengur. Auðveldur í umgengni, klár og fallegur, góðviljaður, traustur og sviphreinn og Það mega guðirnir vita að bræður hans munu eiga mikinn klett í honum þegar fram líða stundir. Hann er satt best að segja afar líkur Benedikt afa sínum, bæði í útliti og innræti og þar er svo sannarlega ekki leiðum að líkjast...þrátt fyrir hina alræmdu þrjósku....eða seiglu eins og við kjósum frekar að kalla það Hann ber þó sem betur fer kvittun föður síns líka, hafbláu augun sem hann fæddist með breyttust nefninlega í undraverða blöndu af mógrænu, brúnu, gulu, grænu og bláu þegar fram liðu stundir og skipta marglitu augun litum eftir skapi drengsins
Litla rófan mín stendur sig vel hvar sem hann kemur og passar allastaðar inn. Hann er gæddur miklu jafnaðargeði og er móður sinni til endalausrar ánægju....hann hefur átt margar skemmtilegar spekúlasjónir í gegnum tíðina því hann er spekingur mikill, spurningar eins og..."mamma..eru þeir gúmmítöffarar?" (í heitum potti fullum af fólki í sundlaug í rvk) "afhverju er afi svona ROSALEGA gamall?" "ég er með stærri haus en Eyþór....en hann er með stærra typpi"....nokkur dæmi
Ég hlakka mikið til þess að fá að fylgjast með litla glettna pjakknum mínum stækka og mannast..mun hann halda áfram að líkjast mér og mínum eða mun hann líkjast föður sínum og sínu föðurfólki...hvað vill hann verða..hvað bíður hans...full framtíð af björtum tækifærum, svo mikið er víst
Um bloggið
Á vit ævintýranna....enn á ný :O)
Eldri færslur
Tenglar
Mínir tenglar
- Andlitsbók
- Aurinn
- Fyrsti útskriftarhópur Keilis á Facebook
- Hjallarnir
- íslenski hesturinn í DK
- Íslenskir hryðjuverkamenn
- Keilisfrumkvöðlarnir
- Peace one Day - friðardagurinn 21. sept.
- The girl effect
Bloggarar
- Begga
- Dagmar Sønder
- Dagný
- Dóran
- Edda Kósk
- Elín Árna
- Ella í rassi
- Eybjór
- Gimpið
- GoggaLára
- Guðný Harpa
- Helga Rún
- Korkusíðan
- Kristín fænka
- Linda Sønder
- Lúvísan
- Ómar og Árdís
- Robbinn
- Sigga sønder
- Úlli
Myndasíður
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
til hamingju með drenginn í dag
Dagmar Íris (IP-tala skráð) 30.11.2008 kl. 14:22
Til hamingju með Benna
Sigga í Sønderborg (IP-tala skráð) 30.11.2008 kl. 22:27
Til hamingju með bónda litla, það er aldeilis að tíminn líður hratt :-)
Vona að þið hafið það gott í Danmörkunni.
Guðrún Helga (IP-tala skráð) 30.11.2008 kl. 23:53
Tillykke med guttann
Dagný (IP-tala skráð) 1.12.2008 kl. 21:14
til hamingju með daginn um daginn Benni minn, Birna til amingju með orminn :)
Kristín (IP-tala skráð) 2.12.2008 kl. 18:08
já eða hamingju ;)
Kristín (IP-tala skráð) 2.12.2008 kl. 18:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.