Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2009
26.7.2009 | 12:08
Litið uppúr bókunum
Jújú, það er víst nauðsynlegt af og til.
Ég leit uppúr minni grísku klassík í gær og við skunduðum með lýðinn á víkingahátíð. Við höfum þrætt þær ansi margar ásamt því að vera fastagestir í Hafnarfirðinum en vá hvað engin hinna kemst í hálfkvisti við þessa
Þarna voru 6-7 hundruð víkingar samankomnir, á aldrinum nokkurra mánaða til ellismella búandi í tjöldum, baðandi sig í sjónum og borðandi frumstæðan mat...á milli þess sem þeir fóru í Netto í víkingagallanum hehe
Þarna var bæði verslað og prófað hitt og þetta, bogfimin reynd, sá minnsti skellti sér á bak og núna eiga þeir eldri LOKSINS líka Þórshamars-hálsmen...líkt og litla dýrið Fannst bræðrum það ekki amalegt að hitta fyrir íslenska víkinga í tjaldbúðunum og fá að prófa bardagabúnaðinn...en mér fannst Baldur samt flottastur með hjálminn.....því hann náði niður á mitt andlit haha Ég var ekkert ALLT OF dugleg með myndavélina, en þó voru teknar nokkrar. Sumar má sjá hérna í færslunni og aðrar í albúmi bræðranna.
Ég hef ekki tölu á því hversu oft ég var spurð "er þessi ekki bara að fara að koma" eða eitthvað í þá áttina, enda minnsti víkingurinn búin að koma sér upp ansi myndarlegu virki framaná mömmu sinni. Enda hefði það nú ekki komið mér á óvart þar sem við brokkuðum um stokka og steina ef að maðurinn hefði eitthvaðð farið að hugsa sér til hreyfings.
En við komumst heim seint í gærkvöldi, með uppgefna og grútskítuga litla víkinga, með bálilminn í hárinu og sverðinn föst í litlu lúkunum og kasólétta mömmunna með samdráttarverki sem voru farnir að minna óþægilega mikið á hríðir.....en eftir góðan nætursvefn var allri þreytu að sjálfsögðu gleymt og menn sprækir að nýju
Baldur fékk mikla athygli útá kunnáttu sína í umgengni hrossa, þetta litla dýr sem varla stendur uppúr skónum sínum byrjaði á því að leyfa merinni að þefa af handabaki sínu....klappaði henni svo á hálsinn (sem hann varð að teygja sig uppí)
OG leit svo á eiganda hestsins og sagði....Babu upp þita heett.
Víkingurinn auðvitað bráðnaði algerlega og vippaði drengnum upp og héldu þeir uppi töluverðum samræðum, þar sem guttinn fór á bak bæði með hnakki, og eftir af búið var að spretta af.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.7.2009 | 13:12
Það er annað hvort of eða van.
Það er örugglega því að hér eru hvorki Kasper né Jesper né Jónatan, sem pössuðu alltaf að taka hvorki of eða van
Síðustu jól og áramót sat ég í kjallaraíbúð í Hléskógum í Eyjafirði og tók sprettinn á nokkrum ritgerðum og náði önninni með stæl....sú íbúð var ókynnt og sat ég þar af leiðandi í ullargræjum frá toppi til táar, snjóbuxum, með húfu og griflur að pikka á tölvuna.
Núna sit ég í stofunni minni, í hitamollu og rakaógeði að taka sprettinn á 2 mislöngum verkefnum sem heimta gríðarlega heimildavinnu og einni ritgerð og hef 10 daga til þess að ná önninni með stæl (fyrsta einkun þó komin og var hún 9 svo það lofar góðu ) Hérna er ekki loftkæling og rakastigið er tvær mínútur í allt á floti svo svita, klístur og þorstastigs hámörkum er náð hvað eftir annað. Ekki bætir úr þessi líka indælis höfuðverkur sem hefur talið sig ómissandi undanfarnar vikur.
Væri ekki draumur að prófa að taka svona törn bara í eðlilegum hita...þar sem maður hvorki svitnar við það eitt að vera til, né andar frá sér klakahrönglum
En ég fann myndavélina...bara á sínum stað ofan í skúffu, þessvegna fann ég hana ekki áður hehe...maður leitar aldrei á "sínum stað"! Svo að nú gætu farið að koma myndir af bræðralaginu á nýjan leik :O)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.7.2009 | 19:04
Dsjís maður!!
Hér er að vanda aaaðeins of mikið að gera....og aaaaðeins og fáir til þess að gera það flissss
En í svo mörgu er að snúast að ég finn mér varla tíma til þess að setjast niður og blogga eitthvað almennilega....fann hann ekki heldur núna
Smiðurinn góði kom á skyndiákvörðun síðustu föstudagsnótt og er það algert æði að hafa hann hjá okkur, það munar óneitanlega um fleiri hendur á heimilinu.....þar er að segja fullorðinshendur haha
Myndir munu settar inn þegar myndavélin finnst........og NEI ég týndi ekki EKKI......veit bara ekki aaaaaaalveg hvar hún er .....sem er ekkert líkt mér....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.7.2009 | 16:17
Afmæli já....
Þabbara svona...ég bara varð gömul yfir nótt
Ég bara vaknaði í gærmorgun...og var þá allt í einu orðin 27 ára....get að vísu ekki sagt að það breyti miklu fyrir mig...en samt!
Ég átti yndislegan afmælisdag...svona þegar ég var búin að senda stóru börnin mín í SFO sem var komið í sumarfrí og svona ......spursmál um óléttuheilann eða?
Fékk sem sagt 3 vikna sumarfrí með sonum mínum... lækkandi hitastig þar sem hitinn fór alveg niður í 25 gráður og smá rigningu í afmælisgjöf, sem og dýrðlegt heilnudd sem ég lifi ennþá á Það voru greinilega fleiri en ég sem nutu lækkandi hitastigs og ferskrar rigningar....
Við fundum þessa tvo ásamt tveimur öðrum úti í lauginni í garðinum okkar....það var HEILmikið brasað og bardúsað í kringum þessa blessuðu froska...
Barnungarnir mínir toppuðu svo daginn í gær með því að krúttast fram úr hófi við kvöldlesturinn, við vorum búin að lesa öll saman og fengu þeir þá að fara í sín ból og skoða smá bækur. Fyrst fór krúttverjinn uppí rúm til Eyþórs stóra bróður þar sem Eyþór las fyrir hann sögu um manninn með gula hattinn og apann hans...á dönsku.
Málinn rædd á milli bóka...og nýjar valdar......mér finnast svona "aftaná" myndir oft svo krúttlegar
Því næst klifraði litla dýrið upp í efri koju til Benna brósa og skoðaði þar vísindabækur af miklum eldmóði með íslensku tali þangað til að við sungum einn "bappa ðóva" og mennirnir lögðu sig. "bappa ðóva" þýðir "fara að sofa", og er notað sem heiti yfir lagið sem við syngjum á hverju kvöldi fyrir háttinn
Planið næstu vikur er svo að halda áfram heimarækt á fólki...reyna að sjá til þess að litla dýrið heilsi ekki uppá okkur fyrr en í ágúst og grillast úr hita
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.7.2009 | 10:56
Töffari er fæddur.....
....að vísu fæddist hann fyrir 6 og hálfu ári...en hann blómstraði semsagt í gær
Ég var að setja mig í snoðhausastellingarnar eins og venjulega...en þá heyrist í kauða "mamma....get ég ekki fengið svona mömmuhár" Ég er ss. búin að vera með hanakamb síðustu ár
Við ákváðum að atuga hvort að það væri ekki bara hægt, sem það auðvitað var og er ungi maðurinn ekki lítið ánægður með afraksturinn...raunar svo glaður að litli bróðir hans vildi alveg eins (sem er of fyndið ), og ætlar Eyþór að leggjast undir sláttuvélina í dag....fáum myndir af því seinna
Töffarinn var svo ánægður með sig (sem er frábært og óvenjulegt hjá þessu annars hlédræga barni ) að ég stóðst ekki mátið að taka nokkrar myndir af honum....hann á orðið ágætis safn af pottlokum, þar sem hann er bara fædd sixpensaratýpa...og fékk eitt þeirra að vera með
Rosa alvarlegur á þessari mynd, sem var fyrsta myndin sem smellt var af.... svo var ég næstum dottin í sundlaugina í garðinum.....svo næstu myndir urðu allar hálf pjakkalegar
Ég skil ekki alveg vegna hvers þessar blessuðu myndir krefjast þess að koma svona þversum í færslunni þar sem þær snúa rétt í albúminu....kannski snúast þær bara að sjálfu sér seinna, eins og myndin af Baldri hérna ekki alls fyrir löngu
Þær voru nokkrar í viðbót, töffaramyndirnar og eru þær í skæruliðaalbúminu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.7.2009 | 22:37
Skæl :O(
Óléttuskæl yfir þessu...
Hver hefur ekki séð heimildamyndina "the dying rooms" um kínversk munaðareysingjahæli..og grátið yfir henni. Slæmt var það á meðan "vitneskjan" sem maður bjó yfir var að þessi börn, stúlkur fyrst og fremst, væru yfirgefin af foreldrum sínum....en að þessi börn hafi verið tekin með valdi frá foreldrum sem vildu ekkert frekar en að geta haldið þeim.....og komið fyrir á ....
Ég veit ekki hvort ég hugsa eitthvað öfugt, en mér er það þó léttir að vita að flest þessara barna hafa þó verið ættleidd af fólki sem elskar þau sem sín eigin, burtséð frá því hver græðir fjáragslega á því....verra væri það væru þau föst, þessi litlu grey, á kínverskum munaðarleysingjahælum
Kínversk börn seld til ættleiðingar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.7.2009 | 17:42
Sigríður.
Allir ættu að eiga eina slíka, þetta er mjög spes tegund
Siggan mín kom hérna í 3 daga um mánaðarmótin, skrúbbaði og sjænaði fyrir fóstursoninn, henti upp með mér gardínum og sagði garðinum stríð á hendur....sem hún auðvitað vann þessi elska
Við skottuðumst niðrettir til sönder að sækja Sigguna á sunnudaginn, og hittum fólkið okkar þar. Tókum góðan rúnt á hafnarbakkanum, með ís og hnoði, gríni og glensi og enduðum svo að sjálfsögðu á Mongolian ásamt fríðu föruneyti
Smellt var af myndavélinni í gríð og erg, bæði í sönder og hérna heima og hef ég búið til nýtt albúm að því tilefni, ófæddum börnum til heiðurs, mest er óneitanlega af myndum af litla Jóni og má þakka Sigríði föður hans fyrir það, en það er allavega ein af Baldri og ein af Eyþóri...ég er hrædd um að engin mynd sé til síðan Benedikt var hinum megin við mig Og bara þessar einu af Eyþóri og Baldri.
Ormaalbúmið hefur stækkað svolítið sem og hið nýja innvortisbarnaablbúm
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.7.2009 | 17:31
Hámarki hita náð...
Það er ekki gott að vera að detta í 35. viku meðgöngu, með of lágan blóðþrýsting og upplifa hitabylgju, í svona hita ætti að vera bannað að þurfa að gera eitthvað eins og að þvo þvotta, elda mat, þrífa, vesenast í börnum eða þurfa að sinna erindum eins og verslun og skrifstofuheimsóknum....einungis ætti að vera leyfilegt að liggja í makindum sínum á bökkum sundlauga eða við hvítsendnar strendur með kokteil í annarri og vantsmelónu í hinni....ég er þó búin að nýta þennan tíma til ýmis konar tilraunastarfsemi og hef ég sannreynt ýmsar kenningar.
1. Tæplega þriggja ára gutti getur dundað sér ENDALAUST með botnfylli af vatni í bala
2. Börn verða eins og múlattar á litinn eftir einn dag úti í garði í sundlauginni.
3. Óléttar mömmur gera ALLT til þess að forðast hitann...fara meðal annars í kvöldgöngur.
4. það er líffræðilega mögulegt að verða sveittur um leið og slökkt er á sturtunni.
5. Innvortis börn virka sem náttúrulegir hitapokar.
6. Nammi og/eða ís getur keypt ótrúlegan frið í skamman tíma í einu....en útheimtir ávallt aukavinnu í barnaþvott eftirá.
7. Það er hægt að verða móður við að blása sápukúlur.
Það hlýtur eitthvað gáfulegt að bætast við þetta safn þegar líður á sumar, en í þessum skrifuðu orðum er um 30 stiga hiti úti í garði hjá mér og klukkan er rúmlega 7 um kvöld, það er alger stilla svo steikin er alger ...þessvegna er ég inni í tölvunni
Ég hlakka óneitanlega til kvöldsins þar sem gert er ráð fyrir að hitinn fari jafnvel niður í 15 stig í nótt. Ég kemst bara ekki hjá því að verða hugsað til gleymsku þeirrar er Ella frænka minntist á um daginn, svona valda gleymsku... ungbarnagrátur og veðurfarið á Íslandi til dæmis flokkast undir slíka gleymsku....núna verður mér nefninlega tíðhugsað til þanka minna sumarið 2006 þegar mikil hitabylgja gekk yfir Köben og ég sat þar í íbúð með 6 glugga í suður......kasólétt af Baldri, horfði á alla alsberu danina út um stofugluggann minn og hét því að vera aldrei aftur ólétt um sumar !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Á vit ævintýranna....enn á ný :O)
Eldri færslur
Tenglar
Mínir tenglar
- Andlitsbók
- Aurinn
- Fyrsti útskriftarhópur Keilis á Facebook
- Hjallarnir
- íslenski hesturinn í DK
- Íslenskir hryðjuverkamenn
- Keilisfrumkvöðlarnir
- Peace one Day - friðardagurinn 21. sept.
- The girl effect
Bloggarar
- Begga
- Dagmar Sønder
- Dagný
- Dóran
- Edda Kósk
- Elín Árna
- Ella í rassi
- Eybjór
- Gimpið
- GoggaLára
- Guðný Harpa
- Helga Rún
- Korkusíðan
- Kristín fænka
- Linda Sønder
- Lúvísan
- Ómar og Árdís
- Robbinn
- Sigga sønder
- Úlli
Myndasíður
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar