Færsluflokkur: Bloggar
21.6.2009 | 19:26
Úberskýrsla....í fáum orðum ;O)
Oooo jújú, svo mikið er að gera þessa dagana að ég hef ekki gefið mér tíma til þess að skrifa svo mikið sem þanka eða tvo...en úr því má alltaf bæta þó svo að það verði ekki gert í dag
Við höfum að mestu verið á stanslausu flandri undanfarnar vikur. Ég gleymdi myndavélinni að sjálfsögðu í öll skiptin nema eitt ..hehe... og það var í dag þegar við fórum til Kerteminde, að sjálfsögðu vopnuð háfum og fötu fyrir veiðigóssið
Ég náði þó ekki mörgum myndum þar sem ég var á nojunni á eftir litla stýrinu með bumbuna útí loftið útum allar hafnir þar sem við erum ekki búin að verða okkur útum björgunarvesti....mig langaði heldur lítið að þurfa að henda mér útí á eftir þessu krúttrassgati
Nú eru nokkrar veiðiferðarmyndir komnar í albúm ormanna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.6.2009 | 00:15
Bræðraást :O)
Þessir pjakkar eru bara of sætir
Við vorum að klára ða borða og Eyþór stóð upp, skolaði diskinn sinn og setti í uppþvottavélina, Benni gerði það sama en Baldur sagði "Benni...Benni...bappa mé" þá á Benni að hjálpa Og Benni byrjar "komdu fyrst niður af stólnum ...(og hjálpar bróður sínum niður)...taktu svo diskinn...(sem sá litli gerir og horfir á stóra bróður sinn með aðdáun í augunum)...hentu af honum í ruslið...(sá litli hallar diskinum yfir ruslið...sá stóri skefur af)....og settu hann svo svona hér í vélina...(sem sá litli gerir, mikið hreykinn af sjálfum sér)" Svo hrósar Benni litla bróður sínum i bak og fyrir
Svo fæ ég hvísl frá Benna "ég kenndi honum þetta bara" og bros með
Þeir eru miklir félagar þessir tveir ...þeir brasa í rólegheitum....spekúlera....vinna og knúsast
Svo ná þessir tveir frekar saman í hasar og látum, spaugi og kitli...svona ekta "fariði út í garð með þessi læti" leikjum
Óneitanlega erfiðara að ná myndum af þessum tveimur.......sem eru alltaf á iði og í fjöri
Grunnurinn að bræðralaginu liggur svo að sjálfsögðu í þessum tveimur ...
Best er þríeykið þó sameinað....
Uss hvað það verður gaman þegar Litli Jón bætist í hópinn
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
8.6.2009 | 20:07
Drengja-helgi :O)
Vá hvað þetta var skemmtileg og viðburðarík helgi
Okkur var boðið í heimsókn til Helgu og Hjalta í Tarmi, boð sem að sjálfsögðu var þegið með þökkum. Helgin byrjaði á því að við komum við í Lególandi á leiðinni í Tarm til þess að sækja Helgu, heimasætuna í Tarmi, í vinnuna...það gekk ekki betur en svo að síminn minn strauk úr bílnum þegar Helga var að stíga inn
Ég er nú ýmsu vön í símamálum...eins og flestir vita...og tók þessu með hinni stökustu ró....reyndar svo mikilli ró að ég fattaði ekki að síminn væri horfin fyrr en ég saknaði þess að hafa klukku um kvöldið þegar ég var að fara að sofa, ég hugsaði þá með mér að annað hvort lægi hann útí bíl undir sætunum........eins og hefur nú gerst áður (takk Einsi fyrir að finna hann þá), væri á götunni fyrir framan Hotel Legoland...eða þar inni í anddyrinu þar sem við lékum okkur á meðan við biðum eftir Helgu
Ég ákvað bara að athuga með símann daginn eftir þegar við ætluðum hvort sem er að fara í lególand með strákastrolluna alla saman svo við bara lögðum okkur á okkar grænu eyru í orlofsíbúðinni góðu og fengum smá heimþrá þegar við heyrðum í hrossunum undir okkur
Í bítið var vaknað og sturtað og borðað og nestað og græjað...og haldið í Lególand. Ég með mína 3 og hálfan: Eyþór 8 ára, Benna 6 og hálfs árs, Baldur tæpra 3 ára og svo litla stýrið í bumbunni....Ella og Hjalti með sína 3: Gunnar 12 ára, Hákon tæpra 6 ára, Guðna tæpra 4 ára.....en Mattías litli fékk að vera heima hjá Helgu stóru systur sem er 15 ára...enda bara 15 mánaða pjakkur.
Það fyrsta sem ég gerði var að athuga með símann...ég fann hann ótrúlegt en satt! Hann hafði ekki verið slegin eins og síminn góði í Sonderborg (sem merkilegt nokk lifði sláttuvélina af, takk Gimsi fyrir að finna hann þá) eða þvegin eins og margir aðrir símar sem ég hef komist í...neinei...en það hafði verið keyrt yfir hann að minnsta kosti 5 sinnum of oft og leit hann því svona út...
Eða þetta voru semsagt þær leyfar sem ég gat kroppað uppúr malbikinu......úbs
Ella er samt svo hugrökk að hún er búin að lána mér annan síma....og sim-kort..því hið gamla tapaði lífinu þarna einhversstaðar fyrir framan Hotel Legoland...svo ég er með nýtt númer.....í smástund, ég ætla að láta virkja hið gamla aftur ..... einhverntíman
Annars var þetta mjög skemmtilegur og hressandi dagur...með alla þessa strákorma. Hjalti var með okkur fram eftir degi en þurfti svo að fara og sjá til þess að einhverjir danir fengju að borða í brúðkaupinu sínu á Hotel Legolandi svo við Ella frænka kláruðum túrin einar....eða eins einar og hægt er að vera með 6 stráka með sér
Ég var alveg dauð þegar við komum heim og var voða fegin því að Guðlaug (hin frænkan sem býr í sveitinni í Tarm...systir Ellu) var búin að baka pizzur í liðið, svo það var hægt að fóðra, hátta og svæfa á nótæm.
Sunnudagurinn var líka tekin í útstáelsi...við fundum rosalega flottan skógarleikvöll í Velje og nú fékk Mattinn líka að koma með, svo þetta var föngulegur hópur íslenskra frænda sem skunduðu þarna um og léku sér
Borða, baða, hátta, svæfa rullan var svo tekin með stæl við heimkomu og var ég svo þreytt eftir helgina í gærkvöldi að ég nennti ekki neinu....ekki einusinni að blogga hehe
Mikið frænkuspjall var tekið, sem og "mág" frændaspjall, einkahúmorinn þvílíkur að þeim er vorkun sem kemur ókunnur í hópin, við hlógum okkur máttlaus yfir einleiknum "Pabbinn" (þarf að ræða ekki ekki ekki ekki ekki ekki atriðið HAHA )
Ég nánast gleymdi myndavélinni ALVEG...enda upptekin af krónískri liðagigt mest alla helgina HAHA (verið að vitna í "Pabbann")
En þó náðust nokkrar sem flestar rötuðu beint í ormaalbúmið
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.6.2009 | 12:29
Leiðrétting
Enn og aftur kenni ég meðgönguheila um mistökin.....
Ég bloggaði hér um daginn svolitlum fréttum af Litla Jóni....þar sagði ég að hann hefði við 27 vikur verið metin 1400gr að þyngd....og sagði svo að þetta væru um það bil 3 merkur. Þetta er víst hin mesta vitleysa
Mig misminnti þannig að ein mörk væri 500 gr. en hún er víst 250 hehe ÞESSVEGNA fannst henni hann eitthvað stór Ég skildi ekkert hvaða veður hún var að gera yfir þessari 3 marka písl....en ég skil hana aðeins betur núna þar sem hún mat peyjann á 6 merkur við 27 vikur. (Þess má geta til gamans að íslensk börn eru yfirleitt stærri en dönsk við fæðingu, Baldur minn sem fæddist þremur og hálfri viku fyrir tímann var tæpar 16 merkur og 53cm og skrifuðu ljósurnar stærðina á þjóðernið haha)
Ef þetta er svo framreiknað miðað við eðlilega þyngdaraukningu fósturs frá 33. viku (hún fann ekki upplýsingar um þyngdaraukningu fyrr á meðgöngu) er yfirleitt talað um 250-275 gr á viku...ss rúm mörk á viku. Þetta gæti þýtt að pjakkurinn bæti á sig allt að 2 kílóum síðustu 7 vikurnar, það plús þessi 1400gr. fram að 27. viku gera 3400gr............en frá viku 27 að 33 líða jú 6 vikur.....sem við höfum engar viðmiðunartölur fyrir....Við bætist svo standard vikan sem ég reikna með að fara fram yfir settann dag.
Allar líkur eru því á veglegri feitabollu um miðjan ágúst ...það væri í rauninni ekkert nýtt svona hérna meginn þar sem menn eru venjulega hraustlegir við fæðingu (með örfáum undantekningum þó (Eyþór sem var bara 14 merkur)) Og skilst mér að vel úti látinn drengur yrði heldur ekki nýmæli Holtsættarmegin
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.6.2009 | 21:51
Og svo það síðasta....:O)
Stóru bræðurnir voru á marglyttuveiðum og komu með smá feng að sýna litla bró....marglytta heitir vandmand á dönsku...þessvegna tölum við um "hann" í vídjóinu ;O)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.6.2009 | 21:17
Taka tvö :O)
Kerfið er aðeins samvinnuþýðara í dag....hérna koma hin tvö
Þarna er spiderman í karakter....ég vil meina að maður læri svona takta af eldri bræðrum sínum..híhí.
Ok...kemur bara eitt á hverja færslu.....þá kemur bara önnur færsla með því síðasta :O)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.6.2009 | 21:42
Vídjó :O)
Því var stolið úr mér að ég gæti auðvitað líka sett vídjó hérna inn......ég kenni meðgönguheila og hita um ég á þó nokkur vídjó af þessum ormum mínum en ætla að finna hérna eitthvað sem ég tók um helgina.
Þarna er verið að athuga sjómálin, ég veit að hann er í gamalli og upplitaðri sundbleyju....hann fékk hana þegar hann var 4 mánaða hehe. Þetta er síðasta sumarið sem hann þarf að nota hana svo ég neita að kaupa nýja úr því hún passar ennþá......og hana nú.
Æ mig langaði að setja inn tvö í viðbót....en þessa moggabloggsvesen vill ekki hlýða mér.....þau verða bara að koma seinna :O)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.6.2009 | 20:30
Kerteminde, heaven on earth :O)
Þorpið litla sem lúrir við austurströnd Fjóns, þorpið litla sem systur tvær utan af Nesi nutu í 3 mánuði forðum daga ástamt börnum, mönnum og fylgdarfólki.....þorp með máluðum útihurðum, litlum skökkum burstahúsum og dönum sem segja "halloj" yfir götuna þegar þeir mætast á hjólunum....ég komst að því þegar ég var komin langt yfir tvítugt að þetta þorp hefur líka sögulegt gildi fyrir dani.....ekki bara mig og mína fjölskyldu
Ég .....vopnuð litla liðinu...ætlaði í Tivoli í dag....það vildi þó ekki betur til en svo að Tivolíið var bara farið Eyþór bugaðist á staðnum og tuðaði eins og gömul kelling á meðan við Benni ákváðum bara að fara á ströndina í staðinn.....Baldur var geim í hvað sem er svo við hentumst heim og sóttum strandgræjur.......og rúntuðum svo í þessar 20 mín sem það tekur að fara til Kerteminde.
Þarna eru piltar þrír mættir, algerlega soðnir eftir bílferðina. Við ákváðum að það eina viturlega í stöðunni væri að fá sér ís áður en farið yrði í sjóinn.
Gomsarnir voru snöggir á háttaranum og voru komnir í réttar græjur fyrr en varði, ég auðvitað fór með pattanum og ég verð að játa að ég lifi enn fyrir þessa einu frískandi stund í dag haha.....tær í sjó....
Við Baldur höfðum nú ekki sérstaklega langa viðdvöl í flæðarmálinu fyrst í stað heldur héldum brátt að okkar beisi og fengum okkur kex og eplasafa til hressingar.
Flæðarmálið í Kerteminde er þannig að maður getur vaðið og vaðið og vaðið lengst út á haf....en sjórinn verður ekki dýpri en svo að hann nær manni í mitti. þessi gífurlega sandparadís var vel nýtt af þeim bræðrum...en Baldur og Benni unnu að mestu rétt í flæðarmálinu á meðan Eyþór var á sundi.
Þessar......og fleiri eru allar að finna í ormaalbúminu góða sem virðist vera í einhverjum vaxtarkipp þessa dagana.....þetta er að komast inn í möntruna mína...."lykar, veski, sími, MYNDAVÉL"
Við vorum sem fyrr vel nestuð og mættum bara heim í kvöldbaðið....þeir bræður fengu að fara allir saman í sturtu og var mikið um hrossahlátra inna af baðherbergi og alveg er hreint ótrúlegt hvað eitt baðherbergi getur orðið blautt á ekki meiri tíma en tíu mínútum
Við litli Jón erum vel maríneruð eftir daginn...ég orðin heltönuð á bumbunni og gaurinn bara lá og svaf í hitanum....NÚNA aftur á móti er hann að ná sér niður á mér fyrir virkni helgarinnar með endurinnréttingum og samdráttarverkjum og svoleiðis skemmtilegheitum
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.5.2009 | 21:15
Íslendingur með dönsku ívafi...?
Er það að vera í lopapeysu með sólarvörn....eða að vera úti að "hygga sig" í hitanum með bjór, með tölvuna í fanginu?
Í dag var það dýragarðsferð með nesti að dönskum sið......en með peysur á alla til öryggis Langar að taka það fram að gamni að klukkan 18:00 þegar við vorum að fara heim var 29 stiga hiti....svo ekki reyndist þörf fyrir peysurnar góðu
Við semsagt skelltum okkur í dýragarðinn í dag. Mín brá sér í húsmóðurhlutverkið og útbjó hið fínasta nesti með öllum græjum, smurði mannskapinn með sólarvörn og fann eins lítil föt og siðsamlegt þykir (samt með peysur með til öryggis ) Heilmiklu þurfti að pakka til þess að taka með og þykist ég nokkuð montin með mig að hafa EKKI gleymt myndavélinni í þetta skiptið, (né bleyjum) en draslið varð svo mikið að ég tók kerruna með til þess að strolla því í...pjakkurinn harðneitar yfirleitt að vera í henni hvort sem er
Þarna mættum við semsagt bright and early, vel lúbaður íslendingahópur reddí að drekka í sig dýratengdar upplifanir......þar að auki drukkum við í okkur ótrúlegt magn af vatni, eplasafa og kakómalti...og einstaka sinnum voru á vörum mínum orð eins og "komdu niður" "það fer enginn annar þarna upp vinur" "komdu til okkar" .........þrjár stjörnur fyrir þann sem getur getið sér til um til hvers var talað í ÖLLUM tilfellum....
Við skottuðumst í þessum blessaða dýragarði allann daginn og fram undir kvöldmatartíma og ætlum alveg örugglega aftur bráðlega
Ég veit það er erfitt að trúa því....en þetta eru EKKI allar myndir dagsins....enn fleiri eru í albúmi þeirra bræðra...og enn fleiri bara inni á tölvunni
Við ákváðum svo að ná okkur í Orma-pizzu og mömmu pítu á leiðinni heim.....og fórum í grettukeppni á meðan við biðum eftir matnum.... feitinn, sem er ekkert feitur lengur, svaf í krúttíbolluna á sér á meðan þar sem hann hafði gefist upp eftir tveggja mínútna veru í bílnum. Pizzugæjinn hefur hitt okkur 2-3 áður og er maður greinilega eitthvað eftirminnilegur...svona með urmull af drengjum sem finnst gaman að spjalla við bakarana....og þegar við komum inn var það fyrsta sem blessaður strákurinn gerði að bjóða okkur vatn....hehe hann ss sá hvað við vorum soðin eftir daginn
Benni bjútí vildi fá mynd af sér með mynd af bróður sínum litla....svona af þvi hann missti af grettukeppninni.......alltaf svo góður stóri bróðir
Eftir matartímann heima fór Spiderman hin yngri í bað og var skrúbbaður hátt og lágt...enda hafði hann gengið um berfættur að mestu allann daginn og var grútskítugur og sveittur .......en upplitið var ekki hetjulegt undir það síðasta Hinar eldri ofurhetjur nutu sinna baða öllu frekar, Þess er ef til vill óþarft að geta að ungviði heimilsins var afar fljótt að sofna hér í kveld
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.5.2009 | 19:51
Mistókst....
Að taka því rólega í dag.
Við vorum komin í sund um 10 leytið í morgun.....en þá vorum við LÖÖÖNGU vöknuð því Baldur er svo æðislegur þessar vikurnar að vera að vakna kl 5 Svo mér fannst vera komin eftirmiðdagur þegar við vorum komin í sundið.
Við vorum að prófa nýja laug sem ar alveg frábær miðað við danskan standard....en það þarf ss að borga auka ef maður vill fara ofan í hlýju laugina....sem er 34 gráður..og maður má bara vera í henni í hálftíma....ef maður gerir það ekki má maður bara vera í íííiíííísköldu lauginni...sem gerir varir á litlum mönnum bláar á öööörskammri stundu En Eyþór sýndi tæra hetjutakta og stökk af háa brettinu sem er 3 metra hátt!!!! Og Baldur trylltist á bakkanum úr spenningi....því hann langaði líka upp og hoppa ...óboj Eitthvað lítið vatnshræddir bræður....Benni er bara nógu varkár fyrir þá alla
En við slógum þessu svo bara upp í kæruleysi þegar við vorum að skríða uppúr á hádegi og fengum okkur ís...og komum við í bakaríi á leiðinni heim og átum svo bollur og drukkum kókómjólk úti í steikjandi hita í garðinum ......svo kom loksins að því að Baldur legði sig Hljóma ég eins og þreytt mamma eða???
Eftirmiðdagurinn var tíðindalítill....ég ætlaði að taka myndir....en gleymdi því ....sorry Við lögðum stofuna undir púslverksmiðju þegar við vorum búin að fá aaaaaalveg nóg af sólinni í eftirmiðdaginn og erum að athuga hvort þessi milljón púsl sé öll heil eða hvað.....þetta er framhaldsverkefni hehe ....Svo tókst mér að brenna lasagne....hver vissi að það væri hægt?.....en jújú..þegar maður býr í dönsku húsi með gömlum ofni má mótið með matnum ekki vera of lágt niðri í ofninum.....engin blástur og þar af leiðandi brennt á botninum....en við skófum ofanaf og fengum okkur svo bara ávexti og gulrætur í eftirmat
Næstu dagar verða líklega eitthvað á þessa leið.....sjóðheitir.....fullir af fjöri, ærslum og prakkarastrikum...(ég skrifa sko bara ekki prakkarastrikin......allavega ekki öll hehe) Er s að spá í að leggja í dýragarðinn með strolluna á morgun....svo ég býst við þverrandi geðheilsu flisssss
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Á vit ævintýranna....enn á ný :O)
Eldri færslur
Tenglar
Mínir tenglar
- Andlitsbók
- Aurinn
- Fyrsti útskriftarhópur Keilis á Facebook
- Hjallarnir
- íslenski hesturinn í DK
- Íslenskir hryðjuverkamenn
- Keilisfrumkvöðlarnir
- Peace one Day - friðardagurinn 21. sept.
- The girl effect
Bloggarar
- Begga
- Dagmar Sønder
- Dagný
- Dóran
- Edda Kósk
- Elín Árna
- Ella í rassi
- Eybjór
- Gimpið
- GoggaLára
- Guðný Harpa
- Helga Rún
- Korkusíðan
- Kristín fænka
- Linda Sønder
- Lúvísan
- Ómar og Árdís
- Robbinn
- Sigga sønder
- Úlli
Myndasíður
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar