19.1.2009 | 08:41
Hahahaha...kaldhæðnislega fyndið... :O)
Ég ss mætt til Dk..alveg bara í gírnum til að dánlóda þvílíku upplýsingunum fyrir prófið sem er ekki á morgun heldur hinn....öll spennt.... Og þá fær eitt barn skarlatsótt, annað bara hlýtur að vera með gömul stykki af kæstri skötu föst í eyrunum og maður er með hjartað í buxunum milli vonar og ótta um að frumburðurinn nái að plumma sig í skólanum....ekki mætti hann jákvæðu viðmóti í morgun...svo mikið er víst Svo er ég búin að vera með höfuðverk í 2-3 vikur sem bara ÆTLAR ekki að fara
Hehehe er það bara mér sem finnst þetta eitthvað sorglega fyndið? Maður ætlar sér einhverja rosalega hluti...og endar svo uppí sófa með fárveikt barn að tala um hver er mesti vondi kallinn á cartoon network Svo mun seinni hluti dagsins fara í snatt á milli lækna með lýðinn og ná í Eyþór snemma til þess að vera ekki að ögra örlögunum um og of
Mér var nær að eyða helginni í að breyta íbúðinni....hefði hvort sem er ekkert getað lært með guttana alla að hjálpa en samt....Benni verður ekki orðin góður á miðvikudaginn hvort sem er svo að ég verð að fá að taka sjúkrapróf...sem verður þá í fyrsta skiptið á minni skólagöngu sem ég annað hvort mæti ekki í próf eða fell En ætli það sé ekki eins gott að sætta sig við það bara, ekki er hægt að setja Bennann á hóld
En ég ákvað að brjótast útí þvottahús í morgun...gera eitthvað af viti ....til þess eins að komast að því mér til mikillar ánægju að ég komst ekki inn í þvottahúsið, eitthvað að hurðinni..eða læsingunni...eða eitthvað. Svo þarna stóð ég...með fulla IKEA poka af þvotti, búin að djöfla mér niður eina og hálfa hæð að drífa mig rosalega því Benni var einn uppi í íbúð...í fimbulkulda...og komst ekki inn flissssssssss.......
það er bara ekki annað hægt en að hlægja...get ekki lært....get ekki haldið áfram að taka til og breyta og dótarí heima hjá mér því Benninn er svo aumur....kemst ekki í prófið...og get ekki einusinni þvegið þvott....HAHAHA Hversu sad er hægt að verða...sjálfsíronían ræður algerlega ríkjum hérna núna...enda ekki annað hægt í stöðunni en að hlægja að þessu
Um bloggið
Á vit ævintýranna....enn á ný :O)
Eldri færslur
Tenglar
Mínir tenglar
- Andlitsbók
- Aurinn
- Fyrsti útskriftarhópur Keilis á Facebook
- Hjallarnir
- íslenski hesturinn í DK
- Íslenskir hryðjuverkamenn
- Keilisfrumkvöðlarnir
- Peace one Day - friðardagurinn 21. sept.
- The girl effect
Bloggarar
- Begga
- Dagmar Sønder
- Dagný
- Dóran
- Edda Kósk
- Elín Árna
- Ella í rassi
- Eybjór
- Gimpið
- GoggaLára
- Guðný Harpa
- Helga Rún
- Korkusíðan
- Kristín fænka
- Linda Sønder
- Lúvísan
- Ómar og Árdís
- Robbinn
- Sigga sønder
- Úlli
Myndasíður
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Jáh!!! ÞAð er ekkert hægt að gera nema hlæja þegar örlögin fara svona illa með mann Birna mín ;)
Það er nú þó fjandi gott að þú getir hlegið að svona aðstæðum, margir sem hafa ekki þann hæfileika og eru þokkalega súrir í lífinu.
Ég á nú plentý með minn eina gutta, en þú hlýtur að vera ein af þeim sem á auka hendur á tonnavís... hvar fær mar svolleis? Kannski spes díll í gangi ;)
bkv, þú rokkar bara sjúkraprófið ;)
Edda gunn (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 22:25
hehe Æ ég kýs að kalla þetta kaldhæðni örlaganna, þegar svona margir litlir hlutir sem skipta í raun engu máli....koma saman....og fara úrskeiðis allir í einu....og ÞÁ tekur maður eftir þeim öllum í einu....og þá er bara hægt að hlægja að eigin máttleysi
Annars reyndi ég hér um árið að fá svona díl að það yxu á mig auka hendur við hvert barn...en ég fékk það ekki í gegn og þarf því að láta mér mínar tvær duga en sem komið er...en ég á marga góða og trausta vini sem að eru mér innan handar oftar en ekki
Birna Eik Benediktsdóttir, 20.1.2009 kl. 22:34
Hver þarf auka hendur þegar hann hefur leynikraft ? Það besta við svona aðstæður er að geta sest niður og hlegið, annars er alveg eins gott að henda geðheilsunni út um gluggann!
svona fór bóndinn úr húsi rétt í þessu á mótmælin margumtöluðu, ég kallaði á eftir honum Árni minn ef einhver spyr þá erum við skilin!
Segðu svo að það sé ekki gott að brosa yfir lífinu
Helga (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 23:09
Segðu Árna að ég sé stolt af honum.......einhver þarf að láta í sér heyra á þessu skeri úr því ég er í DK
Birna Eik Benediktsdóttir, 20.1.2009 kl. 23:16
Heyrðu þú ert nú bara phonecall away réttast væri að biðja hann um að hringja í þig svo þú getir lagt þitt af mörkum símleiðis Nú eða bara verið með honum í anda hehe..
Helga (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 23:20
ég er nú þegar með honum í anda....á alveg í erfiðleikum með að hemja mig hérna með harðfiskinn heima í stofu
Birna Eik Benediktsdóttir, 20.1.2009 kl. 23:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.