22.1.2009 | 22:34
Staðreyndaskotið mætt á ný.
Önnur færsla í staðreyndabókina (kannski þetta verði legend eins og The Book of Next Time!)
Ég fékk þær upplýsingar hjá mínum elskulega lækni í dag...hann er frábær án gríns að þar sem að ég er í fyrsta skipti að ganga með barn sem mallað er úr okkur Gimsa (hvernig sem það svo kom til ) byrja ég á núllpunkti í sambandi við hættu á að fá meðgöngueitrun sem og marga aðra meðgöngutengda kvilla.
Nú hefur verið sýnt fram á það...samkvæmt þessum læknadreng....að til dæmis meðgöngueitrun byggist að miklum hluta á viðbrögðum ónæmiskerfis móðurinnar við "aðskota" DNA í líkama sínum. Svo að þó ég hafi aldrei sýnt nein merki meðgöngueitrunar áður, segir það mér ekkert um líkurnar á henni núna þar sem líkami minn hefur aldrei mallað akkúrat þessa blöndu áður.
Fyrir þá sem ekki vita er meðgöngueitrun orsökuð af ýmsum atriðum en ekki er vitað nákvæmlega um öll smáatriði. Prótínleki frá nýrum móðurinnar, sem greinist sem eggjahvíta í þvagi hennar er eitt algengasta einkenni meðgöngueitrunar sem og háþrýstingur og mikill bjúgur.
Nú hef ég aldrei á ævi minni fengið vott af bjúg...fæddi meðal annars elstu drengina mína með hringinn á fingrinum, það hefur aldrei mælst eggjahvíta í þvagi hjá mér í mæðraskoðun né heldur hár þrýstingur...hann hefur iðulega verið of lágur ef eitthvað er En þetta flotta reckord....sem sagt...nýtist mér ekkert í þetta skiptið hehe
Viðbrögð ónæmiskerfis móðurinnar við framlagi föðurins í blönduna er einnig talið hafa áhrif á ógleði móðurinnar og jafnvel ástands húðar hennar sem og skapsveiflna....svo stelpur...ef þið voruð alveg hel ónýtar á meðgöngu...þá er kroppurinn á ykkur ekki að gúddera þessa blöndu svo glatt
Alveg hreint merkilegur andskoti...maður hélt nú að maður væri nokkuð sjóaður svona í 4. skiptið en þetta bara hef ég aldrei heyrt fyrr...ég gúglaði þetta og allt saman þegar ég kom heim frá doksa....og fann bara hellings rannsóknir þessu til stuðnings!
Settu þetta í pípuna þína og reyktu það!
Um bloggið
Á vit ævintýranna....enn á ný :O)
Eldri færslur
Tenglar
Mínir tenglar
- Andlitsbók
- Aurinn
- Fyrsti útskriftarhópur Keilis á Facebook
- Hjallarnir
- íslenski hesturinn í DK
- Íslenskir hryðjuverkamenn
- Keilisfrumkvöðlarnir
- Peace one Day - friðardagurinn 21. sept.
- The girl effect
Bloggarar
- Begga
- Dagmar Sønder
- Dagný
- Dóran
- Edda Kósk
- Elín Árna
- Ella í rassi
- Eybjór
- Gimpið
- GoggaLára
- Guðný Harpa
- Helga Rún
- Korkusíðan
- Kristín fænka
- Linda Sønder
- Lúvísan
- Ómar og Árdís
- Robbinn
- Sigga sønder
- Úlli
Myndasíður
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 2990
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Alveg er er ég sammála þér, þetta er merkilegur anskoti heh ég hef aldrei heyrt þetta fyrr !!!
Jóhanna María Ævarsdóttir (IP-tala skráð) 23.1.2009 kl. 09:13
þetta hef ég aldrei heyrt áður en trúi þessu alveg. Læknir sem tók á móti dóttur minni á sjúkrahúsinu þegar hún fór úr lið í 13. skiptið á innan við ári vildi meina að þetta liðavandamál mætti m.a. rekja til næstum hálfs meters hæðarmunar foreldranna...
og meðgöngurnar mínar voru báðar living hell
harpa frænka á Ísafirði (IP-tala skráð) 25.1.2009 kl. 00:51
Það er óhollt að reykja ...
bjornjul (IP-tala skráð) 26.1.2009 kl. 14:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.