Færsluflokkur: Bloggar
26.8.2008 | 22:57
Kæra fjölskylda, vinir og kunningjar!
Færsla dagsins í dag er tileinkuð ykkur, því dagurinn var frekar tíðndalítill
Mig langar að nota tækifærið á rólega deginum og þakka fyrir kveðjurnar allar sem okkur eru að berast á þessa síðu, það er virkilega gaman að sjá hverjir eru að fylgjast með okkur (trúið því bara að fyrir eins forvitna manneskju og mig er það næstum líkamlega sársaukafullt að sjá að kannski 40 ip tölur hafi heimsótt síðuna einn daginn....og 3 kvittað )
Í dag fengum við tildæmis frábærar kveðjur, aðra frá Öddu skólasystur okkar úr keili (Adda við elskum þig ((kallað utan úr sal sko ))og hina frá henni Hlíf, snilldarkennara úr Keili, og vegna þess að hvorug þeirra skildi ekki eftir sig neina slóð langar mig bara að segja hérna : ...allt Keilisfólk í danaveldi sendir bestu kveðjur yfir hafið til ykkar og allra hinna sem forvitnin rekur hingað
Við vonum að við fáum að heyra frá ykkur sem flestum, og hitta að sjálfsögðu þegar fram líða stundir og tækifærin gefast
Smá ormamynd handa ykkur í tilefni tíðndalausa dagsins í dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
25.8.2008 | 21:22
Þröngt mega sáttir sitja.
Og það er eins gott!
Í gær vorum við hvorki meira né minna en 14 manns í höllinni góðu
Áður en þið missið öll vatn og tilheyrandi þá kíktu Kobbi og Laufey hingað með hann Hermann litla til þess að ná í bílinn sinn, Ómar, Árdís og Kristín eyddu hér líka hluta úr degi og svo var það fasta fólkið, ég og mínir 3, Einsi, sverrir, Gimsi og Lína....þetta gera 14 stykki!
Svo borðuðum við saman öll nema Kobbi og hans fólk.
Smá myndasyrpa frá kommúnulífinu
Hermann Kobbaldóson að leggja sig hjá Sverri
Árdís hin íslenska, Kobbaldó og Meistari Ómar.
Pattin og Einsi bongó að bonda.
En helginni lauk sem betur fer og það var skóladagur í dag...ég afrekaði það að koma engu í verk...nema taka til í höllinni sem verður að teljast til tíðinda, og svo var fyrsti foreldrafundurinn í kvöld.
Danskur foreldrafundur er frá sjö um kvöld....til klukkan hálf tíu! Þetta var allt saman afar danskt, mikið talað um fællesskap og samvinnu og þar frameftir götunum, ég þýddi svona það allra mikilvægasta út á kantinn á meðan hægt var og þakkaði fyrir þá mildi að hin danski eðalsamsöngur hafi ekki verið tekin þarna....eða að honum hafi verið lokið þegar við hrundum innúr dyrunum.
Ég ætla að taka mér það bessaleyfi að kvóta hana Ellu frænku mína í Rassi..."ef íslendingar eru söngglaðir, þá eru danir sönggeðveikir!" Það nefninlega heyrir til undantekninga ef að fleiri en 6 danir hittast og það er ekki tekið eins og eitt gott samsöngslag um vináttu og fællesskab.
Nú erum við semsagt ekki nema 7 eftir í kotinu góða sem samnýtt er af Keilisfólki og rétt um helmingurinn sofnaður..þá er bara að koma restinni niður
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.8.2008 | 12:43
Ísland í öðru sæti!
Snilld á snilld ofan...þarf að ræða það hverslags árangur það er fyrir 300 þúsund manna þjóð að ná öðru sæti á ólympíleikum í hópíþrótt!
Það var fjölmennt á Loftið (fundarstað íslendingafélagsisn í Sonderborg) í morgun...ungir sem aldnir, menn og konur að fara hamförum yfir hverju skoruðu marki. Barráttuviljinn í herberginu var slíkur að VIÐ sem þarna sátum hefðum getað valtað yfir þessa bölvuðu frakka....ææ það er ekki hægt að bölva þeim..þeir voru með svo gott lið og spiluðu svo flottann leik að þeir áttu þennan sigur alveg skilin.
En annars er sunnudagur mest búin að vera nýttur til hvíldar...og þvottar...og tiltektar...og barnastúss.
Over end át from sönní denmark...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.8.2008 | 12:39
Helgin....annar hluti.
Ég ákvað að skipta þessu bara niður í tvær færslur...þetta er verður alltaf svo andskoti mikið hjá mér
Laugardagurinn var heldur rigningarlegur svo ég fór í að fletta í gegnum alla bæklingana sem ég er búin að útvega mér um svæðið til þess að reyna að finna einhvern skemmtigarð eða eitthvað til þess að skoða sem væri mestmegnis innandyra...það gekk ekki betur en svo að Danfoss garðurinn sem ég HÉLT að væri innandyra....var svo bara svona 50/50 inni og úti...en hey...það er hugurinn sem gildir!
Við söfnuðum saman fólkinu okkar og lögðum af stað í þessa langferð...en það er klukkutímaferð heimaað frá okkur og í þennan garð.
við komumst að því þegar á áfangastað var komið að þetta er svona vísindagarður...ÞAÐ fannst ÖLLUM spennandi....en þó mest að vísu strákunum...bæði þeim litlu og þeim stóru
Það var ýmslegt skoðað, prófað og uppgötvað þennan eftirmiðdaginn...meðal annars uppgötvaði Sverrir að þolinmæði hans er ekki endalaus og að hæstu hljóðin koma oft úr minnstu krakkaormunum
Við enduðum svo þetta kvöldið á að detta inná Mongolian Barbeque aftur....og vá hvað ég fer þangað með alla sem koma í heimsókn til mín...það er bara gaman að koma þarna...burtséð frá því hvað maturinn er góður...öll þjónusta og viðmót er bara til fyrirmyndar.
Það er ögrun að ætla að ná þessu litla dýri í fókus Ormabræður á veitingastað.
Við héldum svo heim á leið með þreytta krakkahópin, lofuðum vídjói og keyptum öl ofan í stóra fólkið...nú var planið að bíða eftir liðsaukanum...von var á Einsa bongó, meistara Ómari með hattinn, Árdísi íslensku og þeirra afspengi.
Einsi datt inn um 11 leytið þegar allt smáfólkið var löngu búið að gefast upp á latabæ...og ætluðu Ómar hin hárfagri og hans fríða föruneyti þá að finna sér hótel, því þau...eins og við hin...voru ekki með gistingu þegar þau mættu á svæðið
Það vildi bara svo illa til fyrir blessað fólkið að það var allt uppbókað, langleiðina til Þýskalands! Mottó Suður-Danmerkurfélagsins var þá sett í gagnið..."einn hópur, ein lausn" og fór Gimsi þá sem eldibrandur á heimavistina þar sem hann hefur gist og skildi okkur Einsa og Sverri eftir með börn og bjór...því var snögglega reddað að Ómar, Árdís og afspengi fengju að halla sér í hans herbergi og að hann myndi bæta sér hér á karlabúrið mitt
litlu dýrin sváfu þetta allt af sér inni á stórri stórri vindsæng......og voru hæst ánægð með að vakna í einni klessu í morgun
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.8.2008 | 12:07
Helgin.
Þetta er nú búin að vera meiri helgin hjá okkur hér í baunalandinu.
Á föstudagskvöldið var menningarnótt, Sverrir var svo heppin að vera koma þennan föstudag og sá hann því bæinn lifandi og skemmtilegan fyrsta kvöldið sitt hér.
Við byrjuðum að venju á étingi...enda allir soltnir eftir skóladaginn, og var svo haldið af stað niður í bæ...ég komst að því að það væri sprungið á hjólinu mínu sem er ekki gott. Svo ég varð að reiða fákinn með okkur.
Mannmergðin var slík að okkur þótti heillvænlegast að læsa hjólunum okkar bara ofan við miðbæin og taka þetta á fæti...fyrir utan mitt hjól að sjálfsögðu því þar er hægt að beisla pattann
Stemmningin var æðisleg...dönsk að sjálfsögðu þar sem ungir og aldnir skemmta sér saman og sáum við fullt af atriðum á götunum, meðal annars indiána að spila á hljóðfæri og konur af öllum stærðum og gerðum að sýna magadans.
Dimmt en hlýtt að horfa á indiána á menningarnótt.
Við röltum svo niður á höfn og keyptum svona voða sæta blikkljósasprota fyrri börnin...þessir litlu sætu sprotar auðvitað breyttust í geislasverð á augabragði og settu börnin upp sína eigin sýningu með tilþrifum á við Obi Wan Kenobi
Kvöldinu okkar slúttaði svo með flugeldasýningu laust fyrir klukkan 23 og stóðu bæði ungir og aldnir opinmyntir á meðan. Þegar þessu slúttaði hurfu allt í einu allir danirnir....bara eins og maurahópur...við ákváðum að rölta aðra leið en allir Jensarnir til þess að komast kannski heim einhverntíman og fann ég mikið fyrir því að við vorum þrjú fullorðin með þessa 4 krakkaorma.....það munar ekkert smá miklu að hafa fleiri hendur og augu á ormunum þegar staðið er í svona útstáelsi...takk strákar
Þreytt smáfólk fær pásu á gömlu köllunum.
Við komum heim klukkan 5 mínútur yfir 12 á föstudagsnóttina, með afar þreytt smáfólk. Baldur var sofnaður á stólnum aftan á hjólinu en restin datt næstum bara áður en að höfuðin snertu koddana. Fullorðna liðið drattaðist svo ekki í bælið fyrr en um eitt leytið....og vorum því að vonum hæst ánægð þegar að Baldur kallaði RÆS! klukkan hálf sjö morguninn eftir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.8.2008 | 19:13
Nú fer að bætast í hópinn!
Von er á Sverri nokkrum Hermannssyni í fyrramálið til borgarinnar fögru í suðri. Fulltrúar Keilis á staðnum búast að sjálfsögðu við því að mæta á lestarstöðina með blómvönd og taka á móti guttanum. Á laugardag bætast svo enn fleiri í hópinnog munu þá vera á ferðinni meistari Ómar og Einsi bongó.
Þegar allt liðið er komið á staðin má búast við því að einn saknaðarbjór verði drukkinn í hvert skipti sem hópurinn hittist til heiðurs Sverri þeim er kenndur er við veldi...komu hans til borgarinnar fögru hefur verið frestað um eitt ár.....(við verðum á rassgatinu af söknuði allan þann tíma ) en við bíðum hans með óþreyju og heimtum að hann verði nú duglegur að æfa bjórvöðvana...
Þetta lið fer semsagt að smátínast heim á sína sveit og fer lífið þá að færast í eðlilegar skorður....svona þegar maður fær íbúðina sína og sonna
Annars var ég dreginn upp í Alsion í dag...skólahúsið okkar hérna heitir það. Bara til að skoða og athuga...ég get varla beðið eftir því að fara í skólann...kynnast fullt af nýju fólki og öðlast annan tilgang með deginum en að skila börnum....snatta smá....skoða og hjóla um...hangsa smá...ÞVO ÞVOTT....versla.....og svona dótarí.
Það er annars af mér að frétta að ég er að þróa með mér nördahlið...það er víst nauðsynlegt til þess að vega upp á móti fegurðinni
Sú (ég er viss um að það var kvenmaður að lýsa hjásvæfu HAHAHA) sagði fyrst..."allt er hey í harðindum" hafði lög að mæla...sjónvarpslaus...flakkaralaus....jafnvel netlaus á tímabilum...og ég er farin að horfa á einhverja bölvaða nördaþætti sem að bölvað gimpið prangaði inná mig af sinni tölvu....að maður skuli láta þetta fréttast um sig!
Annars allt gott frá sunny Denmark...pís át
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
20.8.2008 | 23:14
Þottur og börn!
Hvað er málið með þvott...án gríns...verður hann til hjá mér? Er miðlæg uppspretta óhreinataus í heiminum í körfunni minni...eða er þetta einhver fylgifiskur þess að hafa ákveðið að eignast heila þrjá drengi?
Undarlegt með þvott...hann er alveg eins og börn...maður þarf að þrífa hann aftur og aftur...brjóta hann saman aftur og aftur...og ganga frá honum inní skáp aftur og aftur.......eins virðist alltaf aukast í fataflota heimilisins og það sama á við um barnaflotann.
Ætli maður endi ekki á að sitja uppi í höll (þó ekki höll eins og þessari höll hans Sverris) fullri af fötum og börnum...
Þetta var heimspeki dagsins
Annars fór miðvikudagurinn að mestu í þvott...eftir að ég fór og fékk mér nýtt þvottakort því mitt varð fyrir því óláni að villast inná heita eldavélarhellu....og bráðna smávegis...svo að það varð ónothæft...
Það var smá snatt hægri vinstri í morgunsárið, en svo bara chill á kantinum á þvottavélinni fram eftir degi.
Við fórum þó í smá "opdagelsesrejse" eða könnunarleiðangur þegar börn höfðu verið sótt, og skoðuðum við skóginn sem er á bakvið skóla barnanna og lékum okkur á leikvelli skólans, sem er RISA stór alveg þangað til það fór að rigna og menn og konur urðu að drífa sig heim í kvöldmat og baðgjörninga (sko..alveg eins og þvottur....börn þarf að þvo aftur og aftur og aftur)
Ungu mennirnir kláruðu svo daginn yfir Latabæ (sendum ömmuröggu ástar-þakklætis-og saknaðarkveðjur ) á meðan að beðið var eftir lakinu úr þurkaranum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
20.8.2008 | 22:42
Bekk onlæn!
Jæja, þetta voru hræðilegir 4 mánuðir....tja..eða 3 dagar...mér leið eins og þetta væri alveg heillangur tími...það er ÓÞOLANDI að komast ekki á netið!
Ef við rennum hratt yfir byrjun vikunnar þá var hún einhvernvegin svona (núna get ég látið myndir tala sínu máli...mín orðin svo tæknileg sjáiði til )
Á mánudeginum var lagt upp í svaðilför, mín gerðist sérleg aðstoðarkona við hjólakaup gegn loforði um aðstoð við heimflutninga á þessum líka forláta garðstólum hehehe.
Hjólakaupinn gengu vonum framan og var keyptur grænn fákur undir gamla manninn sem vonandi mun duga eitthvað fram á elliheimilisárin. Svo urðum við að skjótast (í rigningunni!) að hirða eins og eitt stykki barn og svo var lagt upp í stólaleiðangur....stólaleiðangur!...stólaleiðangur? Sama hvaða merki maður setur fyrir aftan þetta orð, það er bara rangt þegar maður veit að þessi leiðangur var farin á REIÐHJÓLUM! HAHAHA
Ef þið kæru vinir og vandamenn hafið komið til DK þá vitið þið að danir víla ekkert fyrir sér í flutningum...að sjá menn með SJÓNVARP á hjólinu er ekkert tiltökumál...við ákváðum því að bregða okkur í danska búninginn og óneitanlega lenti mesti bauninn á gimpinu þar sem að á bakaleiðinni var sótt enn fleira smáfólk og þá var ég komin með patta aftaná og var svo með fulla körfu af dótaríi... myndir segja meira en þúsund orð (flissflissfliss)
Jújú...það er ALVEG hægt að flytja 4 stóla á einu hjóli
Þetta hafðist samt allt saman og var ákveðið að fara með liðið út að borða (undarlegt...þar sem það er bara til einn pottur í höllinni góðu og 4 plast diskar!)
Mongolian barbeque varð fyrir valinu og þvílíkt og annað eins! Þetta var bara frábær staður (Einsi bara VERÐUR að fara þangað!)...krakkarnir voru til fyrirmyndar og sýndum við það og sönnuðum að það er víst hægt að fara með stóran barnahóp út að borða (þó að einn sé 2 ára) án þess að það sé vesen eða hávaðasamt. Sætu dýr.
Allir voða eðlilegir að reyna að hjálpa pattanum að skoða ofan í ísborðið
Það voru allir þreyttir þegar átu var lokið og drifum við okkur heim í háttinn...eftir einn ís...því það var jú skóli daginn eftir hjá smáfólkinu.
ÞRIÐJUDAGUR.
Planið var að taka þriðjudaginn með stæl...smáfólki komið á rétta staði og hinir fullorðnu drifu sig, pappírum hlaðnir, niður á bæjarskrifstofu..nú skyldi sko málunum reddað...en NEI. Við vorum í fyrsta lagi komin niður í bæ...löööngu áður en skrifstofan opnaði....þá var bara að drepa tímann...spássera og skoða og njóta sólarinnar og góða veðursins...
skrifstofan opnaði svo loksins og við í það bara....en það voru en og önnur en og svo fleiri en, svo við gengum þaðan út på tirsdag formidag.....og fik os en øl. (dönskukennsla dagsins)
Svo var einhvernveginn alveg fullt sem hægt var að gera...en þreytan, sem áður, getur yfirbugað mann á verstu stundum...svo ég eiginlega bara stimplaði mig út frá 13-16.
Eftir lúrinn góða var maður auðvitað sprækur svo að liðið var allt saman drifið á McDonalds vin okkar og svo var bara hægt að skoða og skoða og skoða í stærstu búð í heimi....stóru dýrin nutu sín í botn í leikfangadeildinni og litla dýrið elti ýmist mig eða gimpó að næsta sjónvarpi hahaha.
Komið var við í Netto á heimleiðnni...rétt fyrir 8 um kvöld..og horfði ég á börnin leika úti...í kvöldsólinni í blíðskaparveðri.....ahhh ég eeeelska blíðskaparveður. Baldri var þó skömmu síðar öllum lokið (fyrri helmingnum af honum lauk töluvert fyrr um daginn) og brunuðum við þá heimleiðis.
Góða nótt kúr á alla....
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.8.2008 | 00:30
Another day in sunny Denmark!
Ætlar þessari blíðu ekkert að linna? Nei það er eins gott að ögra ekki veðurguðunum með svona tali, rignignu spáð næstu daga og ég er búin að vera að reyna að virkja sérsamninginn minn við æðri máttarvöld til þess að koma í veg fyrir að spár rætist
Dagurinn var tekin með trompi (eftir keppnismorgunkúr) og liðinu bara skverað á ströndina.
Einn reddí á ströndina
Tókum smá rölt í bakarí og á leikvöll sem er á ströndinni, stoppuðum að sjálfsögðu til þess að borða góðgætið úr bakaríinu og röltum svo meðfram ströndinni til að svæfa litla dýrið...hann datt um hádegið og þá var komin tími á sull
Gísli, Eiríkur og Helgi mættir til leiks
Við vorum séðari en í gær og tókum sundskýlur með okkur til þess að þurfa ekki að vera nærbuxnalaus á leiðinni heim! Aumingja Lína hafði ekki fattað það svo að hún varð að fórna brókunum í sjóinn
Skeggrætt um marglyttubjörgun...sætu rassar
Það gerist varla betra en að vera búin að bleyta tásur í svölum sjónum, sitja svo bara í sumarfötunum (þessum sem eru bara geymd inni í skáp á Íslandi) og slaka á meðan stóru börnin sulla í grunnu, tæru vatninu og litla barnið sefur sem fastast í kerunni. Við vorum að sjálfsögðu trufluð af og til með upphrópunum á borð við "MAMMA ég fann skelfisk!" þá var búið að brjóta þúsund og eina bláskel þar það fannst loksins ein með gumsi innan í..."má ég borða hann?" hehehe Benni ævintýraétari.
Þegar klukkan var orðin jeij mikið (hverjum er ekki sama hvað klukkan er á svona dögum) sáum við að það færðist yfir okkur drungalegur skýja bakki, eða "draugaský". Krakkaskarinn var drifinn uppúr svo hægt væri að nýta sólina til þurkunar áður en hún hyrfi bakvið draugaskýið og allir klæddir í þurr föt.
Við röltum svo af stað að Tarzan trénu góða þar sem krakkarnir spreyttu sig í klifurkúnstum...ég tók víst myndir....ég lofa kann bara ekki alveg að setja þær hérna inn ennþá
Þaðan var rölt að ísbátnum, já bátnum...ekki bílnum og keyptur ís á línuna...það hefur reynst heillvænlegra að standa í ískaupum þegar feiti pattinn er sofandi...þá þarf ekki að gera stórhreingerningu á kerrunni og honum sjálfum eftirá
Við röltum ofan af bryggjunni og upp í gegnum gamla bæinn hér í sonderborg. Hann er rosalega skemmtilegur, með mörgum litlum, agalega dönskum húsum og hér eru í alvörunni brattar brekkur! Í Danmörku!
við paufuðumst upp þessar brekkur með kerruna góðu, spáðum í húsum og götum frá liðnum öldum og duttum allt í einu niður á leynileikvöll! Vel falin lítill leikvöllur á milli lítilla húsa, við litla götu. Þar var auðvitað alveg nauðsynlegt að stoppa þar sem að einhverra hluta vegna virtust börnin ekki hafa jafn gaman að því að spá í húsum og götum og fullorðna fólki.....uuundarlegt
Þetta varð heillangt stopp á þessum blessaða leikvelli, þar var allt til alls og litla dýrið vaknað, svo að engum lá neitt á að drífa sig af stað. Skýjin dimmu voru horfin svo að tækifærið til að flatmaga í sólinni var að sjálfsögðu gripið.
Hann Baldur er frekar spes týpa...hann er fallegur og góður, sposkur og fyndinn, krúttulegur og frekur og alveg einstaklega forvitin, alveg eins og tveggja ára menn eiga að vera. Hann hefur þurft að skoða ýmislegt í þessari veröld meira en annað fram að þessu og eitt af þessum hlutum eru líkamshár....eða vöntun á þeim ef svo ber undir. Hann hefur tildæmis eytt miklum tíma í að greiða bróður sínum...og rífa í hárið á honum, eftir að Eyþór varð svona lubbalegur um hausinn (hann er að safna til að geta spilað á gítar og orðið rokkari...það er ekkert fyndið neitt...hehehe..neinei)
En það varð Baldri og hans óþrjótandi forvitni til happs, að í dag ákvað gimpið að feta í fótspor danskra kynbræðra sinna og fara úr að ofan í steikjandi sólinni...víst var mömmustubbur nývaknaður og sat myglaður í fanginu á mér þarna í grasinu (sem kannski varð lífrænu lopapeysunni hans Gimsa til happs hehe) en svipurinn á feita sköllótta gæjanum þar sem hann glápti opinmynntur á stóra loðan gæjann var eins og hann hefði aldrei augum litið annað eins ferlíki HAHAHA Svo sneri hann sér í mömmukot og muldraði myglað "ojj"
Þetta minnti mig óneitanlega á aðrar tilraunir Baldurs í sambandi við líkamshár hahaha litla könnuðarkrútt.
Æi hann var svo sætur á bleyjunni...að labba í útlandinu....litli heimshornamaður
En nóg af fermetranum...þegar stóru börnin voru farin að rífast um ekki neitt og fullorðna fólkið nógu sólbakað til að endast út vikuna var farið á stúfana til þess að leita að góðum étingi... og kínverskt varð það í þetta skiptið...skrítið hvað allir veitingastaðir í DK virðast vera útlenskir...þeir eru ítalskir, mongólskir, kínverskir, tailenskir...en aldrei aldrei skal maður finna danskan veitingastað...nema nottla Jensen´s Bøfhus...smá pæling
Baldur hélt öllum við efnið í þetta skiptið, og var oftar en einusinni boðið að sitja bara í kerrunni frekar en við borðið hjá okkur hinum. Stóru börnin voru að mestu stillt...sem er ótrúlegt þannig séð miðað við hitann og þreytuna, sykurinn og spenninginn sem í þeim var hehehe.
Að kvöldverði loknum var ennþá hlýtt og bjart úti, enda klukkan ekki nema rétt rúmlega 6 (mar er að skríða í eldri borgarann...borða á skikkanlegum tíma ) og fórum við því bara í spássitúr...fundum stórann almenningsgarð inni í miðjum bænum og svo leikvöllinn góða hjá Lofti íslendingafélagsins. Þar sprikluðu krakkagemsarnir þangað til að bensínið var svo til búið og var svo rölt heim á leið...með viðkomu hjá kaupmanninum á horninu.
Það voru rjóð, sælleg og þreytt börn, og kúguppgefnir forleldrar sem yfirgáfu litlu búðina á horninu, þegar klukkan var langt gengin í rosa mikið...þrátt fyrir frábæra helgi, er ég eiginlega bara ánægð með að það sé skóladagur hjá börnunum á morgun og að maður verði að sinna hinu dags daglega útstáelsi, en ekki standa í strandferðum með fjörugan barnahóp
Bloggar | Breytt 20.8.2008 kl. 22:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
16.8.2008 | 21:10
AHHH sunny Denmark!
Já dagurinn sko...
Hér var vaknað fyrir allar aldir og kúrt fram til klukkan 10! Svo drifum við okkur á fætur og fórum á Ringriderfestival...sem er nokkurs konar riddarahátíð, og að dönskum sið var auðvitað búið að gera úr þessu hina bestu skemmtun með smá loppemarkaði, leiktækjum fyrir börn og svo auðvitað bjór og öðru góðgæti eins og hver maður gat í sig látið. Við skemmtum okkur konunglega þarna í steikjandi sólinni fram yfir hádegi og alveg þangað til Gimpsið hringdi í okkur og sagði okkur að hundskast niður í íslendingahús...það væri að byrja landsleikur milli dana og íslendinga...
Við vorum trufluninni fegin, kláruðum aðeins í hoppukastalanum en náðum svo í hjólin okkkar og nutum hlýrrar golunar á leiðinni niðureftir. Þetta var okkar fyrsta heimsókn í þetta hús og erum við svo heppin að þetta er leikskóli á daginn, svo að garðurinn fyrir framan er kyrfilega lokaður og það eru skemmtileg leiktæki í honum líka. Krakkagerið gat því skemmt sér konunglega niðri í garði á meðan að fullorðna fólkið, Baldur og Saga, lítil dama á Baldurs aldri, sýndu sínum mönnum stuðning í verki með því að þræla ofan í sig eins og einum köldum og arga á sjónvarpið...ég verð nú að játa að ég var alveg ÖLL spennt þarna síðustu sekúnturnar.. .en þegar menn og konur voru búin að ná sér niður eftir taugastrekkinginn var tekið létt spjall svona í eftirrétt.
Þarna var nokkuð um mannin og marga hafði maður séð áður, annað hvort í barnaskólanum eða í leikskólanum en svo voru þarna líka mörg ný andlit. Alltaf spennandi að koma í nýjann hóp af fólki
Þetta entist fram undir kvöldmat svona þegar maður inklúderar gott stopp á leikvellinum með Baldri að leik loknum og ákváðum við litla famlían að fá okkur að borða í bænum...en fara svo strandleiðina heim...borðtúrin gekk ekki sem best svo við bara hummumm hann En strandtúrinn var frábær!
Við hjóluðum i gegnum gamla bæinn sem leið lá niður að sjó...og fórum af hjólunum þegar niður á smábátahöfn var komið og röltum bara og spjölluðum. Það var ennþá funheitt þó að klukkan væri orðin 7 og ekki ský á himni.
Við röltum að slottinu og fundum ALVÖRU TARZAN TRÉ...þar voru teknar nokkrar myndir af klifurköttunum sem að munu koma hér inná um leið og kvendið fær nörd til að segja sér hvernig á að gera það...
Hér má sjá piltana í Tarzantrénu...það var rosa stórt og má sjá fleiri myndir af þeim bræðrum öllum saman að klifra í albúminu Skæruliðarnir
Eftir heiiiiillangt stopp í þessu blessaða tré löbbuðum við sem leið lá á ströndina og ætluðum bara smá að bleyta á okkur tærnar....bara pínu....hehe, þegar liðsaukinn barst leit út eins og liðið hefði bara ætlað að stinga sér í sjóinn...strákarnir á brókinni, Baldur á bleyjunni og mamman búin að bretta hátt upp á allar ermar og skálmar. Lína var ekki lengi að vippa sér úr og slást í hópinn, strákarnir voru nefninlega að "bjarga" marglyttum...hehe..sem þýðir að finna þær..taka þær upp og henda þeim lengra út í sjó...rosa sport. Þetta fannst dömunni ekki beysið og kom frumkonan fljótt í ljós
Ég var eitthvað að benda börnunum á að fara varlega með dýrin, passa að drepa þau ekki og að það væri ekki fallegt að reyna að hitta þau með smásteinum....en um leið og ég heyrði mig segja þetta...rifjaðist upp fyrir mér smá atvik (og stevie....vertu með!) tveir krakkar....á einkaströnd heilsuhælis í Úkraínu...að einmitt fiska hlussumarglyttur uppúr sjónum OG KASTA ÞEIM Í FÓLKIÐ SEM VAR Í SÓLBAÐI!! Ég ákvað að fara ekkert frekar útí þessa sálma...
Eftir heillangann tíma..Baldur búin að stingast einusinni á bólakaf og liðið orðið vel saltað var hópurinn drifin uppúr og í þurr föt, og svo var bara röltfært í kvöldblíðunni....svona kvöldblíða fær mann til þess að hugsa.....HVURN FJANDANN VAR ÉG AÐ FLYTJA TIL íSLANDS!!!
Sønderborg er ofsalega sjarmerandi lítill bær og ég er alveg viss um að við eigum eftir að gera okkur heimakomin á þessari strönd sem og í öllum bænum. Á leiðinni heim löbbuðum við frammá eitthvað sem danir kalla beach party...
Danskt beach party: strandblak aðstaða...tónlist....bæði live og úr beat boxi....fólk allt frá nokkura mánaða til þeirra sem eru komnir með annan fótinn í gröfina, pyslur sem líta út eins og....tja...langar ekki að segja það...en .....alveg fullorðins KÚKUR.....og bjór......og gos fyrir krakkana...og ís. Danir eru nefninlega svo skemmtilegir að þeir gera ráð fyrir börnum á svona skemmtunum.
Við komum heim hress og kát eftir frábæran dag og ákváðum bara að setja fermetrann í rúmið..enda klukkan orðin 9..og spila og drekka rautt danskt gos sem strákarnir hafa saknað...og borða nammi....óverdósa smá á litar og bragðefnum fyrir svefninn og rústa gömlu í domino....er hægt að ímynda sér betri daga en akkúrat svona?
Þetta er semsagt afbökuð mynd af stærsta Domino í heimi...í boði Eyþórs
Ég sagði góða nótt við þreytt og sælt smáfólk með sand í hárinu (hinir fullorðnu fengu líka að njóta sandregns í boði Baldurs nokkurs Prause....atvinnu skemmtanastjóra) og stjörnur í augunum yfir því sem við gætum nú gert á morgun...vá hvað maður er undarlega ástfanginn af börnunum sínum á alveg einstakan hátt (smá múss...Anný...bara smá...bara fyrir þig.......og Elínu...mússmúss
)
Bloggar | Breytt 20.8.2008 kl. 19:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Um bloggið
Á vit ævintýranna....enn á ný :O)
Eldri færslur
Tenglar
Mínir tenglar
- Andlitsbók
- Aurinn
- Fyrsti útskriftarhópur Keilis á Facebook
- Hjallarnir
- íslenski hesturinn í DK
- Íslenskir hryðjuverkamenn
- Keilisfrumkvöðlarnir
- Peace one Day - friðardagurinn 21. sept.
- The girl effect
Bloggarar
- Begga
- Dagmar Sønder
- Dagný
- Dóran
- Edda Kósk
- Elín Árna
- Ella í rassi
- Eybjór
- Gimpið
- GoggaLára
- Guðný Harpa
- Helga Rún
- Korkusíðan
- Kristín fænka
- Linda Sønder
- Lúvísan
- Ómar og Árdís
- Robbinn
- Sigga sønder
- Úlli
Myndasíður
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar