Bloggfærslur mánaðarins, maí 2009

Íslendingur með dönsku ívafi...?

 

Er það að vera í lopapeysu með sólarvörn....eða að vera úti að "hygga sig" í hitanum með bjór, með tölvuna í fanginu?

 

Í dag var það dýragarðsferð með nesti að dönskum sið......en með peysur á alla til öryggis Shocking  Langar að taka það fram að gamni að klukkan 18:00 þegar við vorum að fara heim var 29 stiga hiti....svo ekki reyndist þörf fyrir peysurnar góðu Joyful

Kjánasafnið á leiðinni í dýragarðinn

 

Við semsagt skelltum okkur í dýragarðinn í dag. Mín brá sér í húsmóðurhlutverkið og útbjó hið fínasta nesti með öllum græjum, smurði mannskapinn með sólarvörn og fann eins lítil föt og siðsamlegt þykir (samt með peysur með til öryggis LoL)   Heilmiklu þurfti að pakka til þess að taka með og þykist ég nokkuð montin með mig að hafa EKKI gleymt myndavélinni í þetta skiptið, (né bleyjum) en draslið varð svo mikið að ég tók kerruna með til þess að strolla því í...pjakkurinn harðneitar yfirleitt að vera í henni hvort sem er Cool

 

Þarna mættum við semsagt bright and early, vel lúbaður íslendingahópur reddí að drekka í sig dýratengdar upplifanir......þar að auki drukkum við í okkur ótrúlegt magn af vatni, eplasafa og kakómalti...og einstaka sinnum voru á vörum mínum orð eins og "komdu niður" "það fer enginn annar þarna upp vinur" "komdu til okkar"   .........þrjár stjörnur fyrir þann sem getur getið sér til um til hvers var talað í ÖLLUM tilfellum....Whistling Fötin fljót að fjúka....

 

 

Við skottuðumst í þessum blessaða dýragarði allann daginn og fram undir kvöldmatartíma og ætlum alveg örugglega aftur bráðlega Smile

Ég veit það er erfitt að trúa því....en þetta eru EKKI allar myndir dagsins....enn fleiri eru í albúmi þeirra bræðra...og enn fleiri bara inni á tölvunni Woundering

 

 

Litlu bræðrarassgöt :O) ÞARNA ER TÍGRISDÝR!! Að grillast í rúmlega 30 stiga hita Nestispása Tarzan fann auðvitað eitthvað að hanga í Samvinnan blívar hehe...elska svona eðlilegar myndir :O)Spiderman in the making Sem bugaðist aðeins sökum húfunar. Batman mættur  Metal spiderman haha Fólk stoppaði til þess að dást að töffaranum hehe Ofurhetjubræður....með tattoo og andlitsmálningu Vígalegur útkrotað lið HAHA Horfast í augu grámyglur tvær.... Glansinn aðeins fer dvínandi hjá spiderman., Tveir vel soðnir tap 

 

Við ákváðum svo að ná okkur í Orma-pizzu og mömmu pítu á leiðinni heim.....og fórum í grettukeppni á meðan við biðum eftir matnum.... feitinn, sem er ekkert feitur lengur,  svaf í krúttíbolluna á sér á meðan þar sem hann hafði gefist upp eftir tveggja mínútna veru í bílnum.    Pizzugæjinn hefur hitt okkur 2-3 áður og er maður greinilega eitthvað eftirminnilegur...svona með urmull af drengjum sem finnst gaman að spjalla við bakarana....og þegar við komum inn var það fyrsta sem blessaður strákurinn gerði að bjóða okkur vatn....hehe  hann ss sá hvað við vorum soðin eftir daginn Pinch

 Pizzusprell HAHA   svo gáfulegir Bakkabræður bíða eftir pizzu sprelli Og ein með mynd af Baldri....úr því hann sefur bara útí bíl 

 

Benni bjútí vildi fá mynd af sér með mynd af bróður sínum litla....svona af þvi hann missti af grettukeppninni.......alltaf svo góður stóri bróðir InLove   

Eftir matartímann heima fór Spiderman hin yngri í bað og var skrúbbaður hátt og lágt...enda hafði hann gengið um berfættur að mestu allann daginn og var grútskítugur og sveittur .......en upplitið var ekki hetjulegt undir það síðasta  Whistling  Hinar eldri ofurhetjur nutu sinna baða öllu frekar,  Þess er ef til vill óþarft að geta að ungviði heimilsins var afar fljótt að sofna hér í kveld Heart

Batteríin búin í batterman


Mistókst....

Að taka því rólega í dag.

 

Við vorum komin í sund um 10 leytið í morgun.....en þá vorum  við LÖÖÖNGU vöknuð því Baldur er svo æðislegur þessar vikurnar að vera að vakna kl 5 Shocking   Svo mér fannst vera komin eftirmiðdagur þegar við vorum komin í sundið.

 

Við vorum að prófa nýja laug sem ar alveg frábær miðað við danskan standard....en það þarf ss að borga auka ef maður vill fara ofan í hlýju laugina....sem er 34 gráður..og maður má bara vera í henni í hálftíma....ef maður gerir það ekki má maður bara vera í íííiíííísköldu lauginni...sem gerir varir á litlum mönnum bláar á öööörskammri stundu FootinMouth    En Eyþór sýndi tæra hetjutakta og stökk af háa brettinu sem er 3 metra hátt!!!!  Og Baldur trylltist á bakkanum úr spenningi....því hann langaði líka upp og hoppa ...óboj Wink    Eitthvað lítið vatnshræddir bræður....Benni er bara nógu varkár fyrir þá alla Wink

 

En við slógum þessu svo bara upp í kæruleysi þegar við vorum að skríða uppúr á hádegi og fengum okkur ís...og komum við í bakaríi á leiðinni heim og átum svo bollur og drukkum kókómjólk úti í steikjandi hita í garðinum ......svo kom loksins að því að Baldur legði sig Grin   Hljóma ég eins og þreytt mamma eða???

 

Eftirmiðdagurinn var tíðindalítill....ég ætlaði að taka myndir....en gleymdi því ....sorry Blush    Við lögðum stofuna undir púslverksmiðju þegar við vorum búin að fá aaaaaalveg nóg af sólinni í eftirmiðdaginn og erum að athuga hvort þessi milljón púsl sé öll heil eða hvað.....þetta er framhaldsverkefni hehe ....Svo tókst mér að brenna lasagne....hver vissi að það væri hægt?.....en jújú..þegar maður býr í dönsku húsi með gömlum ofni má mótið með matnum ekki vera of lágt niðri í ofninum.....engin blástur og þar af leiðandi brennt á botninum....en við skófum ofanaf og fengum okkur svo bara ávexti og gulrætur í eftirmat LoL

 

Næstu dagar verða líklega eitthvað á þessa leið.....sjóðheitir.....fullir af fjöri, ærslum og prakkarastrikum...(ég skrifa sko bara ekki prakkarastrikin......allavega ekki öll hehe)   Er s að spá í að leggja í dýragarðinn með strolluna á morgun....svo ég býst við þverrandi geðheilsu flisssss Whistling


Öskudagur til eilífðar...

 

Það finnst Baldri allavega Grin

 

Hvað á maður að halda þegar maður er 2 ára og mamma manns bara málar mann í framan!  OG segir að maður sé spiderman Woundering    Svo sér maður sig í speglinum og hefur auðvitað ALDREI séð neitt eins rosalegt og þetta spiderman-andlit og lifir að sjálfsögðu í þeirri sjálfsblekkingu um aldur og ævi að maður sé í raun......Spiderman Cool

 

Þetta gerist þegar maður sér sjálfur um umbreytingarnar...takið eftir díteilnum í kringum augað LoL

 Heimatilbúin Spiderman Sæta fés :O)Allir í rólegheitunum á háttatíma hehePjakkur  Bræðraást

 

Alltaf gott að vera vel vopnaður....þó maður taki sér pásu í baráttunni við hið illa til þess að elska bróður sinn svolítið InLove   Svo segir hann bara  "Babbu NE mjudu"   ef ég reyni eitthvað að klípa hann í lærinn....það á víst að þýða að Baldur sé ekki mjúkur Tounge

Ég henti restinni af þessum sprellmyndum í albúm þeirra bræðra Joyful


Bumbuhornið.

 

Ég á nú enga nýja mynd af bumbunni til þess að láta fylgja með þessum upplýsingum svo þið verðið bara að skrolla neðar á síðuna ef þið viljið sjá bumbu .....en...það eru smá fréttir Grin 

 

 

Mæðraskoðun nr 2 var semsagt í dag, það er óhætt að segja að þeir séu rólegir í þessu danirnir, vinkonur mínar heima sem eru komnar þetta í kringum 30 vikurnar eru velflestar búnar að fara 4 sinnum í skoðun!

En mér hentar þetta svosem ágætlega, finnst fátt eins leiðinlegt í rauninni og að mæta í þessar skoðanir....þetta er alltaf eins "nei ekkert í þvagi...fínn en heldur lágur þrýstingur...þú ert ekki að þyngjast nóg...barnið er sprækt...og þar fram eftir götunum.

 

 

En ég fékk þó smá áþreifanlegar upplýsingar núna, samkvæmt mati vegur litli kroppurinn núna rétt um 1400 grömm...það eru næstum heilar 3 merkur Heart Ég hef þyngst um rúmt kíló...sem eru rúmar 2 merkur og er því sem fyrr, ekki að standa mig sem skyldi í þeim bransa en allt annað virðist fínt og flott.  Pilturinn er komin í höfuðstöðu og komin langt ofan í grindina þó svo að hann sé óskorðaður enn svo nær engar líkur eru á því að hann nái að smella sér þaðan uppúr á næstu 10-11 vikum svo ég fæ líklega lítinn keiluhaus í fangið í ágúst InLove

 

 

Hann semsagt stendur á haus, þetta litla kjánaprik....og snýst um sinn eigin öxul...ég finn litla botninn hreyfast og snúast og svo finn ég eftir því hvoru megin spörkin koma, í hvora áttina hann snýr.....í dag er hann að níðast á hægri hliðinni á mér...þá liggur botninn og bakið út til vinstri.  Það er sérstök upplifun að ná taki á litlum fæti eða litlum botni svona innan í manni Heart

 

 

En eitthvað hefur hann bardúsað drengurinn í fyrradag svo að það klemdist í mér taug þannig að ég sárfinn til í vinstri mjöðminni og niður allann bölvaðan fótlegginn.  Ég vil nú meina að almennt séð sé ég hörkutól...en andskotinn hvað þetta er vont..það bara liggur við að ég grenji við að standa upp úr bílnum....og ég þori varla að reyna að hjóla Crying

 

Þið vitið það sem þekkið mig best að ég hef verið að fara yfirum á aðgerðarleysi undanfarinna daga svo ekki er útlitið bjart fyrir ykkur sem þurfið að hlusta á barlóminn ef að bætist hreyfihömlun ofaní.....svo ég er á afneitaranum...denial is a powerful thing....og ætla bara samt!!   Sjáum til hversu lengi það endist Whistling

 

 

Svona í blálokin mega endilega allir taka sér örskotstundu til þess að ákalla sína guði eða vættir, kyrja, biðja eða hugleiða fyrir honum Aroni litla sem varð fyrir bíl á uppstingingardag og senda honum og hans fólki góða strauma.  Hann er sonur Hildar vinkonu og stjúpsonur Einars vinar okkar og er hugur okkar mest hjá þeim þessa dagana.


Ég mundi allt í einu eftir myndavélinni :O)

 

Klukkan hálf níu um kvöld mundi mín allt í einu eftir myndavélinni...svo ég elti skrílinn út þar sem þeir voru að "taka til" í garðinum eftir nýafstaðinn vatsslag og smellti nokkrum......kannski ég fari bara að vera betri í þessu myndadæmi þó svo að ég prívatð og persónulega muni líklega seint njóta þess mikið að glenna mig framaní hana þessa elsku LoL

 

F&F      (fegurð&frekja)     Tveir að knúsast...einn að burstast :O) Eyþór að reyna að vera í fýlu....Benni að bursta með besta vininn :O)  Sæta gamla konan mín.....og pjakklingur :O)Einn sem vildi sjá myndina ÁÐUR en búin er að taka hana  haha :O) Fallegu, fjörugu pjakkar :O)

 

 

Það er ekki amalegt að blíðan sé svo mikil þegar klukkan er langt gengin í níu að kvöldi að menn séu úti hálfberir og berfættir InLove   En það er hálf ömurlegt að ég kann ekki að klippa myndina til....finn það ekki í þessu nýja stýrikerfi og klippfítusinn í bloggkerfinu er ekki að gera sig.....svipurinn á litla dýrinu er nefninlega kostulegur á þessari neðstu  en maður sér hann ekki því það er ekki hægt ða klippa hana til og súmma inn ......þið verðið bara að ímynda ykkur þetta haha Grin


Víkingaverksmiðjan

 

Svona er maður svakalegur...með sverð sem afi smíðaði...skjöld sem Eyþór bróðir smíðaði ..á bleyjunni LoL  Já og auðvitað snoðaður vegna tyggjótilrauna Whistling

 

vígalegur

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Maðurinn tók nokkrar pósur í viðbót....

æ svo mikill sætihaus mömmusinnar :O)       ...í fötum...

 

Baldur á botninum

 

 

       ...og án fata...

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég sé þennan alveg fyrir mér með rautt alskegg, kannski svolítið hár og jafnvel augnabrúnir......og í buxum Grin  en sama hvað ég reyndi vildi myndin bara ekki snúast...þið verðið bara að snúa höfðinu Whistling  En hún, ásamt fleirum, snýr rétt í skæruliðaalbúminu Halo

 

Litli víkingur

 

 

 

 

 

 

 


Að taka því rólega......

 

Hverjum datt í hug að það væri góð hugmynd?   Eða eitthvað gaman?

 

Ég er búin að gera nánast ekkert nema sitja kyrr í tvo heila daga.....og er komin með höfuðverk af slökun Shocking

Ef maður fer út að slá grasið.....með gömlu góðu handknúnu sláttuvélinni...er það þá ekki í lagi ef maður bara slær voða voða hægt Halo    Eða endurskipuleggur þvottahúsið.....bara í rólegheitum..eða smíðar safnhaug úr gömlum spýtum ...bara....voða hægt...er það þá ekki í lagi Whistling   Ég fæ jú að finna fyrir því ef ég fer mér of geyst....en er ekki afstætt hvað telst geyst?

 

Ég er bara ekki gerð fyrir kyrrsetu og rólegheit.....frábært að sitja úti og njóta góða veðursins....en ekki BARA sitja...betra að vera ða bardúsa eitthvað garðvesen eða eitthvað á meðan.   Núna er ég að spekúlera í því að fara að mála veröndina og fuglahúsið.....þetta er farið að láta á sjá eftir veturinn (og ég veit auðvitað ekkert hvenær þetta var málað síðast)

 

 

Ég gleymi alltaf þessari blessuðu myndavél....(ég er yfirleitt að gera svo mikið að ég gleymi að láta alla pósa og brosa til að taka mynd HAHA LoLEn ég skal reyna að bæta mig Halo


í alvöru..?

 

Er þetta ekki grín?

 

Er ekki nóg að þessi flokkur hafi skotið sig í fótinn og að því loknu migið í skóinn sinn í nýafloknum kosningnum og aðdraganda þeirra, þarf hann líka að taka leikskólabarnaattitúdið og NEITA bara að tapa.....  

 

Halló...þið töpuðuð..þurfið ekki svona mikið pláss því þið TÖPUÐUÐ!  En nei...þau töpuðu ekki neitt...þurfa víst þetta pláss...EIGA herbergi í þinghúsinu því þeirra flokkur er og mun verða eilífur...en ekki hvað?


mbl.is Þeir sitja sem fastast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bumbumyndir.

 

Vegna fjölda áskoranna birti ég hérna mynd af bumbu þeirri er í daglegu tali er kennd við Litla Jón.

Þarna er bumban akkúrat 28 vikna gömul.

 

Litli J'on 28 vikurLoL

 

Ég er að sjálfssögðumeð stuttbuxurnar á hælunum þarna......svona er það þegar mittið hverfur..þá hanga buxurnar á engu og leka endalaust niður LoL


Hin alræmda Nes-sveifla

 

Dagurinn í dag byrjar tíðindalítill...ég fer að sjálfsögðu með alla á sína staði eins og venjulega og kem heim og fæ mér morgunmat, þríf svolítið hér og þar og vesenast í þvotti.  Minnist svo orða ljósunnar uppi á deild og legg mig bara aðeins....og vakna ekki fyrr en klukkan er að detta í 14! Whistling

 

Þá hringir í mig Elín nokkur Guðnadóttir, við erum systradætur og býr hún á Jótlandi. Þau skötuhjú voru þeirrar gæfu aðnjótandi að hafa sloppið heiman að frá sér með einungis einn afkomanda af sex og ætluðu þau að koma við hjá mér og kíkja á herlegheitin.

Það er skemmst að segja frá því að Ella frænka breyttist í Ellu ömmu á núll einni og tók hina víðfrægu nes-sveiflu á dæmið.  ALLT sem mig hefur langað að gera en ég ekki gert....gerði Ella og við Hjalti í rauninni bara hlýddum nema hvað hann massaði þráðlausa netið og smá skrúfgræj og leiðsluvesen án fyrirmæla  (þetta kalladótarí hehe, eitthvað sem hefði tekið mig nokkra daga og góðan skammt af geðheilsunni......tja fyrir utan þetta skrúfgræj...ég hefði aldrei gert það...það var bara fast...lofa Blush).....en þess má geta til gamans að Ella frænka var að vísu ÖGN gæfari en Amma Ella átti til að vera Whistling

Svo núna er búið að færa eina koju, einn skáp, eitt hjónarúm, einn sófa, eina hillu, einn skenk, einn örbylgjuofn, ALLA geymslukassana, ALLA kassana sem enn eru með flutningsdóti í, FULLT af leikföngum já og bleyjurnar LoL  OG borðið sem ég ar búin að gleyma hvernig lítur út er autt!

 

 

Þetta var eiginlega svolítið fyndið þegar tekið er mið af mæðrum okkar frænkna. Mamma mín er ári yngri en mamma Ellu og hafa þær alltaf verið miklar vinkonur þrátt fyrir að vera afar ólíkar.  Helga móða fékk vænan skammt af sveiflunni góðu í vöggugjöf og hefur drifkraft á við fjóra á meðan mamma mín er meiri sorterari og dútlari í eðli sínu Whistling

Og þarna vorum við, dætur þessara ágætu systra, og Ella færði og massaði og sá fyrir sér hitt og þetta....og ég sorteraði dótaríið í kring flissss Tounge     Þó er þetta ekki endilega normið milli okkar frænkna....við eigum báðar dágóðan skammt af móðursystrum okkar í okkur....sem betur fer brýst þetta bara ekki allt út í einu  HAHA Cool

 

En mikil ósköp sem maður væri fátækur væri maður frænkulaus Heart  

 

 

En ég er semsagt DAUÐ eftir allt græjið í dag.....og ætla í dvala.


Næsta síða »

Um bloggið

Á vit ævintýranna....enn á ný :O)

Höfundur

Birna Eik Benediktsdóttir
Fædd og uppalin Kópavogsmær sem þrátt fyrir flakk um víða veröld hefur ræturnar kirfilega festar á Íslandinu góða. Móðir, dóttir, systir, frænka, vinkona, nemi og síðast ekki ekki síst óþrjótandi uppspretta seiglu og jákvæðni

Nýjustu myndir

  • jón hjá tannsa
  • DSC_0490[1]
  • IMG_1841
  • SDC11485
  • stóru

Nýjustu myndböndin

Jón í baði

bjútífeis að syngja fatlafól

Jón Egill tæpra 11 vikna að gera grín að mér :O)

Jón Egill 5 vikna kjaftaskur

Jón Egill eins mánaðar.

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband