18.5.2009 | 19:03
Sumir dagar !
Í dag var einn af þessum dögum.... ég vakna hress og kát og fer með alla á sína staði...Baldur loksins að byrja hjá dagmömmunni aftur eftir þenna heila dag sem hann fékk með henni í þarsíðustu viku og sól og blíða úti.
Ég kom svo heim og ákvað að halda uppá friðinn með því að leggja mig.....en sem komið er gott og blessað. Haldiði ekki að einhver hafi svo bara skipt um dag á meðan ég svaf! Ég vakna með undarlegan doða í öðrum lófanum og fingrunum, dynjandi höfuðverk, sjóntruflanir og væga ógleði....ég ætla bara að athuga hvort þetta skáni ekki og fer að ráðum Ellu frænku og fer út og viðra mig soldið og drekk vatn og svona....en nei nei ekkert virðist þetta ætla að fara.
Nú hef ég verið svo heppinn í gegnum mínar meðgöngur að ég hef aldrei haft háan blóðþrýsting eða bjúg eða neitt því likt svo ég var hreinlega ekki viss hvort þetta væri eitthvða sem þyrfti að athuga eitthvað frekar...ég ætla þá bara ða hringja í heimilislækninn....en síminn hjá honum var lokaður...ég hringi þá í ljósmæðurnar hérna í Odense....en síminn hjá þeim er bara opin á milli 8 og 10 á morgnanna....ég hringi þá uppá fæðingardeild og fæ svolitlar skammir fyrir það...það er ekki rétt boðleið, maður á að hafa samband við sinn eigin lækni fyrst og vera vísað til þeirra...ég fékk þó að tala við ljósu sem sagði mér að hundskast uppettir eigi síðar en núna strax því þetta geti verið merki um bráðameðgöngueitrun ........ konur þurfa ss ekki að vera með bjúg og háþrýsting til þess að geta fengið þessa blessuðu eitrun.
Þarna var klukkan orðin 3 um eftirmiðdaginn svo ég sá að ég gæti ekki annað en tekið litlu mennina mína með mér og hóf því þann unað sem það er að fara og sækja börnin....hundveik og ræfilsleg þess má geta til gamans að það er vatnsþema í gangi í skólanum hjá strákunum og er því alltaf allt blautt og miður geðslegt og fékk ég að skemmta mér við að hirða þetta allt saman og mættum við svo fylktu liði uppá deild.
Þar var mér auðvitað skellt í mónitor...sem er það leiðinlegasta sem er til í heiminum....maður er bara tengdur við vél...og getur ekki hreyft sig....sem er ekkert æðis með Baldur hressan með sér
Hjartslátturinn hans Litla Jóns var svolítið ör en samt jafn svo það er í lagi, en þeim leist ekki alveg á hversu sterkir samdrættirnir eru....alveg uppí 100 (svona fyrir ykkur sem þekkið þetta) en þá eru þeir farnir að valda svolitlum óþægindum.
Eftir að ég var búin að liggja í þessari græju í um það bil hálftíma ÞÁ var tekið blóð til þess að athuga starfsemi innri líffæra. Meðgöngueitrun er víst eitthvað sem byrjar í lifur og auknu próteini í henni....eða eitthvað í þá áttina....Blóðtakan gekk ekkert svakalega vel því Baldur vildi svo mikið kúra hjá mömmu sinni.....og láta hlusta á litla barnið sem er víst í maganum á honum
En það hafðist með 2 stungum og töluverðum tíma....en þá fékk ég að vita að við myndum þurfa að bíða eftir niðurstöðunum úr blóðprufunum líka....og ennþá hafði ég ekki fengið neitt við höfuðverknum......og ég var farin að verða svöng. Klukkan var líka orðin 5 svo ég hringdi í Dagnýju og bað hana að redda mér þó ekki væri nema um eitt barn og koma og hirða af mér Baldur...svona þar sem hann er duglegastur hehe. Hún taldi það ekki eftir sér og var Baldur sem betur fer í góðu yfirlæti hjá henni og Valda það sem eftir lifði kvöldsins.
Þá var nú komið að því að ég ætlaði að senda stóru guttana í sjálfsalana að kaupa sér smá snarl....sem sagt eftir að við vorum laus við skæruliðann...en þá komumst við að því að búið var að stela helvítis veskinu mínu!!!!! Svo við vorum peningalaus ofan á allt saman
Ég gerði dauðaleit og lét leita allstaðar á hæðinni...í öllum upplýsingum og í aðalupplýsingum og alles...en neinei...sá sem hefur hirt það hefur ekki gert það til þess að skila því inn...þar fór 800 kall og öll kort heimilisins Þegar Eyþór fór svo að gráta úr hungri og höfuðverk ákvað ég að fara bara heim og fóðra börnin og koma þeim í háttinn.....þá var klukkan líka að detta í hálf átta...OG við áttum eftir að taka krókinn heim til Dagnýjar og Valda til þess að sækja litla dýrið....ég var auðvitað orðin svo svöng þarna að ég gat með engu móti svarað ljósunni þegar hún spurði mig hvort mig svimaðí ennþá.....auðvitað svimaði mig...ég var næringarlaus! (algert flashbakk í fyrri meðgöngur!)
Svo ég fór heim gegn læknisráði og sagði þeim bara að þær yrðu að hringja í mig þegar þessar niðurstöður kæmu, ég yrðu að sinna þessum börnum...bæði fæddum og ófæddum með því að fóðra okkur og lagði því af stað að sækja krúttmund......þegar við erum hálfnuð þangað ælir Eyþór.....ójá....hann er þó svo snar þetta litla grey að hann náði að æla útum gluggann...en ég hentist út á miðjum ljósum til þess að halda um lítið ennið og styðja litla manninn þar sem hann hékk hálfur útum gluggann og ældi lungum og lifur....danir sjálfum sér samir stoppuðu umvörpum til þess að athuga hvort þunguðu konuna vantaði einhverja aðstoð...en þar sem ég stóð með dynjandi höfuðverk frá helvíti, og bullandi svima og kúgaðist eins og ég ætti lífið af leysa yfir þessum herlegheitum að reyna að styðja við Eyþór greyið, varð eitthvað lítið um málefnaleg svör...heldur bara brosti ég....eða reyndi.....og sagði nej tak.
Þegar við loksins náðum á áfangastað fengum við að vita að Baldur var bara hamingusamur hjá Valda og hafði verið fínn og góður allan tíman, sem var þó bót í máli...en hann varð samt að syngja alla leiðina heim, mér og Eyþóri til mikillar gleði Gerð voru nokkru ælustopp á leiðinni heim en kom þó einungis æla í einu þeirra
Við hrundum svo inn heima hjá okkur og Baldur fór beint í rúmið og fann móðir hans til innilegs þakklætis fyrir það að hann var búin að borða kvöldmat...Eyþór og Benni fengu kornfleks í kvöldmatinn og ég er ennþá að reyna að koma einhverju niður sem ekki leitar strax upp aftur...og ætti svo kannski að hringja í lögguna og tilkynna þennan stuld!...Svona þegar ég er farin að geta séð eitthvað af viti (ábyrgðarfullt að senda næringarlausa ólétta konu út að keyra í stórborg með 3 börn í bílnum!! )
Núna vill ég meina að ég eigi að vinna í lottóinu eða eitthvað....svona til að jafna metin
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
17.5.2009 | 14:00
Ætlum að gerast víkingar....
Eða svoleiðis sko.
Fórum á rosalega flottann járnaldar-víkingamarkað hérna í hverfinu okkar og ég varð alveg steinhissa bara. Þetta er heilt þorp sem kúrir hérna í skógarjaðrinum þar sem starfsemi í er í gangi allt árið um kring! Drengirnir fóru á hestbak á íslenskum hestum sem þarna voru og fannst Baldri skítt að fá ekki að stjórna hestinum sjálfur...og láta hann hlaupa! Litli sveitamaður
Strákarnir auðvitað komust í nána snertingu við sinn innri víking komandi beint úr skátaútilegu grútskítugir lyktandi eins og bálköstur og stígandi beint inní víkingatímana Þeir auðvitað fengu allir sverð og slíður og við skoðuðum alls konar handverk sem okkur langar að sanka að okkur, þarna er hægt að eyða viku af sumarfríinu sínu...hverfa bara aftur til víkingatímans og lifa eins og þá var gert í viku.....þetta kitlar okkur óneitanlega svaðalega mikið
Það er ekkert sérstaklega leiðinlegt að vera íslendingur á svona hátíð í útlöndum....sérstaklega ekki þegar maður er með 3 dugmikla víkinga með sér og kallar á eftir þeim heiðnum nöfnum úr norrænni goðafræði, sérstaklega þegar börnin opna svo munninn og tala háfjalla íslensku og spyrja að hlutum eins og...."er þetta ekki Þórshamar"...við fengum satt best að segja alveg stórkostlegar móttökur og bræddi Baldur margan harðan víkinginn með tilþrifunum sem hann sýndi með sverðið Fyndnast var að sjálfsögðu að 2 ára guttinn rýkur alls óhræddur í fullvaxta fúlskeggjaða víkinga í fullum herklæðum....og fellir þá hehehe (Jenni auðvitað búin að búa hann undir þetta flissss)
Ég tók með mér myndavélina......sem var batteríislaus......svo þið verðið bara að ímynda ykkur þetta hehehe.....en við ætlum uppúr þessu að leita okkur að fleiri svona mörkuðum sem eru víst ansi margir í Danmörku og Þýskalandi.
Annars er hér allt á tjá og tundri núna.....fullt af útilegudótaríi blautt og illa lyktandi og 3 drengir sótugir upp fyrir haus...svo við ætlum í jarðskálftaleik og skvera hérna til
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.5.2009 | 09:49
Litli Jón í draumalandi
Eitt af þeim atriðum sem er ekki gróusaga um meðgöngu er hvað mann dreymir oft brjálæðislega drauma....
Núna í nótt dreymdi mig að ég væri fyrir norðan hjá gamla settinu mínu....en samt ekki í þeirra húsi. Ég átti kærasta sem var ljóshærður, sem er só far from it, og fór með honum í ræktina á mótorhjóli en við vorum alltaf að stoppa á leiðinni til að kela .......og ég var kasólétt.
Svo sátum við ansi mörg í sjónvarpskróknum (alveg eins og þeim sem var í Hvammi í gamla daga) og ég fór að fá hríðir....og átti drenginn svo bara þarna yfir sjónvarpinu nokkuð átakalaust. Þarna var fullt af fólki...en mest karlmenn...Sigga var þó þarna líka. Gimsi var frammi í stofu að læra með einhvejru öðru fólki sem ég þekkti líka en sýndi þessu eitthvað lítinn áhuga.
Ég kláraði bara að fæða barnið og mamma mín tók hann og klæddi hann og ég tilkynnti hvað hann ætti að heita....nafnið fannst mömmu minni afleitt því það væri svo líkt einhverju sem einhver frændi barnsins héti...
Það fékk eitthvað lítið á mig að fæða þetta barn þar sem ég bara fór út í göngutúr með kærastanum og svona...og kom svo inn seinna eftir helling kelerí úti á tröppum og mamma var bara með drenginn fyrir framan sjónvarpið. Mér fannst ég ekkert þekkja á honum svipinn og fnanst hann satt best að segja alveg agalega ófríður en þegar pabbi hans kom og kíkti á hann sagðist hann þekkja svipinn...hann væri nefninlega alveg eins og mágur hans ! flisss
Það sem stakk mig mest við litla drenginn var þó hvað hann var vel tenntur! Með 4 framtennur í efri gómi og 2 niðri, og til viðbótar var hann líka með tvær aukaframtennur niður úr gómnum fyrir aftan framtennurnar uppi! Ég ætlaði aldrei að þora að leggja barnið á brjóst með öll þessi verkfæri í munninum.....en gerði þó að lokum og það gekk eins og í sögu......
Þegar þarna var komið kom mjúk feitabolla uppí rúm til mín og sagði...mjoggamat.....svo ég vaknaði og fór að fóðra stóðið og græja stóru strákana mína í sína fyrstu skátaútilegu
Annars er bara júrópartý í kvöld og alle grier
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.5.2009 | 11:53
Að vera eða vera ekki ökólógískur
Jújú....nú er það algert möst. Ekki fara í meira en 5 mínútna sturtur, slökkva öll ljós og á öllum rafmagnsgræjum þegar þær eru ekki í notkun, kaupa náttúruvænan mat og endurvinna.
Við erum að standa okkur voða vel í þessu, það er vatnsþema þennan mánuðinn í skólanum hjá strákunum og koma þeir heim uppfullir af nýrri vitneskju á hverjum degi um það hvað vatn er mikilvægt og hvað það er mikill skortur á því í heiminum.
Ég er svo heppin að þeim bræðrum þykir fátt skemmtilegra en að fá að fara saman í sturtu/bað, og ég baða mig daglega í ræktinni svo að ekki er vatnsnotkunin mikil hjá okkur.....svona fyrir utan þvottavél og uppþvottavél
Annað sem við byrjuðum á þegar við fluttum hingað í mars var að flokka ruslið okkar og hefur það orðið fastur liður hjá okkur að fara með rusl í endurvinnsluna á laugardögum. Drengirnir vita að það er vegna þess að svo ótrúlega margt sem við hendum er hægt að nota aftur og koma þannig í veg fyrir óþarfa mengun....en mamman veit á laun að aðalástæðan fyrir ruslaflokkuninni er sú að ruslið er hirt annan hvorn föstudag og tunnan okkar er hreinlega of lítil til þess að taka við rusli frá 4 manna fjölskyldu í tvær vikur sé það ekki flokkað
Svo erum við svo heppin að endurvinnslustöðin er bara hérna steinsnar frá...við myndum hjóla þangað ef við værum ekki alltaf með fullt skottið af ruslaflokkum Fernur, málmar, gler, ljósaperur, hart plast, mjúkt plast, pappi og garðúrgangur fer allt í þar tilgerð ílát með mikilli samviskusemi. Við förum þó að losna við að fara með garðúrgang því að við erum að sanka að okkur viði og erum byrjuð að smíða okkur safnhaug í garðinn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.5.2009 | 10:40
3-D sónar
Jújú...það er trendið í dag....og væri SVO gaman að fara. EN það kostar handlegg, fótlegg og hálft nýra og eins og staðan er í dag er alveg pottþétt gáfulegra að eyða 30 þúsundunum sem þetta kostar hérna úti í eitthvað annað en myndir af unga sem ég mun hvort eð er fá að knúsa og kjamsa á fyrr en varir
Ég hugga mig við það að ég hef nú þegar fengið að kíkja á hann þrisvar sinnum og ég veit þetta er drengur sem er að gera stöppu úr involsinu í mér (hverjum hefði dottið í hug að fylgja að framan myndi skilja innri líffærin eftir alveg stuðpúðalaus )...og að hann er heilbriðgur og hraustlegur, ég veit líka að hann er annað hvort að vestan eins og pabbi, af suðurlandsundirlendinu eins og mamma eða sver sig í Holtsættina eins og Gimsi....því er þetta auðvitað ekkert nema hégómi að langa í eitthvað svona...en mig langar samt!
Þetta líður annars svo hratt að ég bara geri mér varla grein fyrir því...finnst ég hafa tekið bakföll af sjokki bara í gær yfir jákvæðu prófi.....og núna eru bara 12 vikur eftir!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.5.2009 | 21:07
Óléttar konur geisla........
Hverjum datt þetta rugl í hug? Örugglega einhverjum sem hefur aldrei verið óléttur
Ég get allavega sagt ykkur það ef ef að ég geisla eitthvað þessa dagana þá er það bara vegna þess að ég er yfirleitt rennandi sveitt (djúsí, ég veit) Ég er yfirleitt á fullu alla daga, rek stórt heimili er mjög líkamlega virk sem og upptekin af lífinu utan heimilisins....og það er bara ekki séns í helvíti að ég komi til dæmis ekki sveitt inn úr dyrunum eftir verslunarferð í Netto með 3 börn, á hjóli, í 20 stiga hita á 28. viku meðgöngu....Þetta er bara ein af þessum mýtum sem búið er að ljúga að konum svo þær láti hafa sig útí þetta......(brjóstaþoka er svo ástæðan fyrir því að við eigum fleiri en eitt barn haha)
Kannski er þessi speki runnin undan rifjum sama aðila og þeim sem datt í hug að kalla ógleði á meðgöngu morgunógleði......hvaða rosa auglýsingatrikk er það? Það hefur allavega tekist svo vel að ef að konum er óglatt lengur en fram undir hádegi telja þær sig vera alvarlega veikar....ekki bara óléttar
Í sömu ætt er að konur truflist á geði á meðgöngu....og að það sé bara í lagi! Víst þekki ég enga konu sem ekki hefur fundið fyrir því að hún er viðkvæmari í skapi....viðkvæmari fyrir skapsveiflum sem og tilfinningum á meðgöngu......en það er bara eitthvað allt annað en að nota hormónaframleiðslu þungaðrar konu sem réttlætingu á hvaða framferði sem er Vitandi það að maður ER óléttur......og ER viðkvæmur ætti maður einmitt að hugsa sig um tvisvar...því maður ÆTTI að vita að maður bregst ef til vill öfgafullt við umhverfinu.
So to sum it up...við geislum ekki, við erum sveittar og glönsum vegna þess.......meðgönguógleði kemur EKKI bara á morgnanna......og þungun er EKKI afsökun fyrir ósæmilegu framferði.
Ætlaði að fara útí fæðingar og meira djúsí en þá sagðist Dóran ekki myndu þora að lesa
Bloggar | Breytt 14.5.2009 kl. 06:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.5.2009 | 19:24
ONLINE!!!!
Það bara hlaut að koma að því!! Daman er loksins komin á netið heima hjá sér. Öðlingurinn hann Valdi straujaði bara græjuna sem var öll í rugli eftir mislukkaða uppsetningu og setti inn nýtt stýrikerfi sem er bara draumur í dós......og svo kom tæknimaður heim til þess að laga tenginguna...sóóóó here I am
Frá Odense er allt gott að frétta. Strákarnir eru loksins að blómstra í skólunum sínum, þó svo Benni þurfi smá aðstoð til þess að komast yfir verstu feimnina. Þeir eru svo líka byrjaðir í skátunum bræðurnir og koma heim ilmandi af bálkesti og sólskini einu sinni í viku...og bíða núna spenntir eftir fyrstu útilegunni sem er næstu helgi.
Eyþór fagnaði 8 ára afmælinu sínu síðustu helgi með miklum mannfögnuði í trylltasta leiklandi sem ég hef komið inní....en litli lúxusinn fyrir óléttu mömmuna að mæta bara á staðin.....og allt var reddí...og geta svo bara farið aftur að teitinu loknu
Baldri líkar vel við dagmömmuna sína, en hin börnin þar eru öll "mitla mabbi" ss. litla barnið, en það elsta á eftir honum er ekki nema eins og hálfs árs. Hin væntalegi stóri bróðir fær þá smá þjálfun í að umgangast lítil börn en hann byrjar svo á leikskóla 1. ágúst þar sem hann verður aftur yngstur....eins og hann er vanur Talmálið hans er allt að koma til svo ég bara reyni að bæla niður reiðina í garð danska heilbrigðiskerfisins
Litli Jón vex og dafnar og er hin mesti sparkari...sem kemur svosem ekki mikið á óvart svona miðað við virknisstig foreldranna Og enn sem komið er hefur hann ekki valdið móður sinni svo miklum óþægindum að undan verði að væla......mikið að minnsta kosti
Gamla góða mjöðmin mín var nú eitthvað að byrja að hóta mér strax við tuttugustu viku.....en þar sem mér hentar afar illa að setjast niður og bíða þess að tíminn líði dreif ég mig bara í ræktina og fór að lyfta.....og éta svolítið prótein til þess að byggja upp þessa vöðva sem ég hef verið að missa....við þetta bæði þyngdist ég svo að núna er ég næstum komin upp í kjörþyngd aftur....eins og ég var áður en ég varð ólétt.....OG..ég er orðin góð í mjöðminni
Þar fyrir utan hafa þetta nú bara verið þessi venjulegu skot sem maður má búast við svona af og til; þreyta, ógleði, uppköst, höfuðverkir, samdráttarverkir, endalaust pisserí, innanspörk framúr hófi og svona nokkuð ......allt saman voða saklaust óléttunesti
Það kemur ekki á óvart.....en það er Benni sem er uppteknastur af komandi litla bróður. Bæði er hann himinlifandi vegna þess að þetta er strákur...en ekki stelpa...og svo er hann svo góður við mömmu sína þessi elska......."ég skal taka þennan poka mamma....þú ert með alveg nóg í bumbunni" svona gullkorn og fleiri ámóta koma uppúr þessum engli og svo leggur hann sig fram um að passa litla bróður sinn .."leiddu mig bara Baldur minn....mamma passar litla Jón" þetta kom í eyrað á litla bróður hans þegar ég ÁTTI að halda á hans smátign.....OG 4 innkaupapokum....
Jæja...þetta kom nú bara svona í belg og biðu.......en veröldin hefur þurft að fara á mis við ansi margar af mínum víðfrægu hugleiðingum (hógværð ) sökum netleysis...og ég er slíkur hugarleiknilistamaður að ég get að sjálfsögðu ekki bloggað þanka mína aftur á bak...þetta verður allt að gerast á rauntíma
En þetta stendur allt saman til bóta.......bíðið bara
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.4.2009 | 17:17
Mætt í sólina með stóðið :O)
Ferðalagið gekk ótrúlega vel, ég er orðið svo séð að ég auðvitað leyfði börnunum að vaka frameftir kvöldinu áður í góðu yfirlæti, og fyllti svo liðið af skyri áður en við fórum í loftið...þessi blanda leiddi af sér mjög þreytt og södd börn sem steinsofnuðu fyrir flugtak og sváfu ALLA leiðina
En ég var ekki svo heppin að ná dúr þar sem að parið í næstu sætaröð var með afar óánægðan ungann mann sem grét alla leiðina....ég náði samt ekki að pirra mig á því þar sem að Baldur var svona ungi....og ég vorkenndi þeim eiginlega bara.
En það er frábært að vera komin HEIM...sól og sumar, stuttbuxur og sólarvörn og endalaust af dóti í garðinum. Mesta fjörið núna er að tjalda úti í garði og hafa göng á milli tjaldanna
Baldur byrjar hjá dagmömmunni næsta þriðjudag og er hún bara hérna í næstu götu og ég er svo klár að ég bauð mig fram i sjálfboðavinnu hjá rauða krossinum 4 tíma á viku....ss einn morgun í viku ...fram á sumar til þess að hafa eitthvað annað að gera en að taka til heima hjá mér
En eníhús, ég er farin að tölvast með dagnýju og Valda
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.4.2009 | 12:45
Rómantík í Reykjavík
Reykjavík er spes borg. á Sumardaginn fyrsta þurfti sjónum að rigna burt svo ekki væri hvítt yfir, búðir eru opnar allan sólarhringinn og allt kostar milljónkall. Þrátt fyrir að hundslappadrífa sé afar rómantísk sé komið auga á fegurð hennar, og þó það sé hentugt að alltaf sé hægt að komast í búð og eyða millum.....er ég samt með væga heimþrá
Við höfum þó getað haft það náðugt þessa daga sem við höfum stoppað. Eyþór er búin að heimsækja besta vininn og við erum búin að fara í milljón og eina hjólabúð til þess að skoða gaurahjól því að í fyrsta skiptið síðan ég flutti til DK árið 2000...er ódýrara að kaupa barnahjól hérna heima en það er úti Á milli hjólabúða höfum við svo ræktað ættmennin og vinina...þó svo aldrei verði komist yfir alla á svo skömmum tíma
Bræðurnir nutu gestrisni Höllu frænku, Magga og Elfu móðursystur sinnar í gær og gistu í Kópavoginum á meðan mamman naut kvöldsins í faðmi Reykjavíkur.......barnlaus aldrei slíku vant Þeir að sjálfsögðu voru eins og englar.......alveg eins og mamma sín
Heiðinn kallar þó sem fyrr svo við förum að koma okkur í rokrassgatið okkar á suðurnesjum, áður þurfum við þó að afgreiða nokkrar heimsóknir til viðbótar og ekki má gleyma stórleik HK og Vals á eftir
Planið er að aulast til þess að muna eftir myndavélinni og reyna að ná handboltabullumyndum af þeim bræðrum, verst að HK fötin eru í Danmörku sem og andlitsmálninginn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
20.4.2009 | 12:12
Litli lasarus
Þá er búið að skafa til innan í höfðinu á Baldri litla.
Hann átit að mæta kl. 10:30 í morgun.......og ég vill geta þess sérstaklega hvað það er frábært að halda tveggja og hálfs árs barni FASTANDI frá því það vaknar klukkan 6 og til 10:30 Ég var sem betur fer svo séð að ég vakti hann í nótt....eins seint og ég mátti án þess að brjóta 6 tíma regluna og raðaði í hann tveimur fullum skálum að Ab mjólk.....sem hann tók viið steinsofandi eins og lítill herramaður
En þetta gekk vel, það er mikil kölkun á báðum hljóðhimnum og það var líka mikið vatn og örvefur, eins var nefkirtillinn alveg nógu vel úti látin til þess að geta nýst að minnsta kosti 4....svo hann var aðeins og stór í þetta litla mjúka andlit.
Baldur er að sjálfsögðu búin að vera geðprýðin uppmáluð síðan hann vaknaði af svæfingunni....NOT! Hann er bara lítill og myglaður mömmuskítur, voða mjúkur og á voða bágt....þegar hann vaknaði blæddi mikið úr nefinu og æðaleggurinn í handabakinu ætlaði að pirra hann til helvítis en þetta er allt að rjátla af honum.....núna þar sem hann liggur og sefur á sínu græna eyra
Við komumst ekkert heim fyrr en á laugardaginn......svo þetta verður heillangt stopp í borg óttans að þessu sinni
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Á vit ævintýranna....enn á ný :O)
Eldri færslur
Tenglar
Mínir tenglar
- Andlitsbók
- Aurinn
- Fyrsti útskriftarhópur Keilis á Facebook
- Hjallarnir
- íslenski hesturinn í DK
- Íslenskir hryðjuverkamenn
- Keilisfrumkvöðlarnir
- Peace one Day - friðardagurinn 21. sept.
- The girl effect
Bloggarar
- Begga
- Dagmar Sønder
- Dagný
- Dóran
- Edda Kósk
- Elín Árna
- Ella í rassi
- Eybjór
- Gimpið
- GoggaLára
- Guðný Harpa
- Helga Rún
- Korkusíðan
- Kristín fænka
- Linda Sønder
- Lúvísan
- Ómar og Árdís
- Robbinn
- Sigga sønder
- Úlli
Myndasíður
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.4.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar